Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 34 ›
Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ „Dömur mínar og herrar. Ég heiti Inga Sæland. Ég er lögblind. Ég hef minna en 10 prósent sjón, hef aldrei ekið bíl eða séð haustlitina. En ég er félags- og húsnæðismálaráðherra - fyrsta manneskjan með fötlun sem gegnir ráðherraembætti á Íslandi.“ Innlent 10.6.2025 22:27
„Fráleitt“ að halda að ríkisstjórnin bakki með veiðigjaldafrumvarpið Atvinnuvegaráðherra sér alls ekki fyrir sér að veiðigjaldafrumvarpið verði á samningaborði þingflokkanna um þinglok og að það væri fráleitt að halda að ríkisstjórnin bakkaði með frumvarp sem hún standi öll á bakvið. Það fari í gegn fyrir sumarfrí. Innlent 10.6.2025 19:21
Guðrún spyr um há laun æðstu ráðamanna Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins steig í pontu í dagskrárliðnum Óundirbúnar fyrirspurnir og spurði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra út í nýlegar launahækkanir æðstu embættismanna ríkisins, um 5,6 prósent. Innlent 10.6.2025 14:09
Fullyrðing um slaufun verknámsskóla „kolröng“ Barna- og menntamálaráðherra segir hliðrun þrjú hundruð milljóna króna fyrir uppbyggingu fjögurra verknámsskóla fram á næsta ár ekki hafa áhrif á framkvæmdirnar. Annar áfangi framkvæmdanna hefjist í sumar. Forsætisráðherra segir að byggingarnar muni rísa fljótlega. Innlent 10.6.2025 13:52
„Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Enn ríkir mikil óánægja með kílómetragjaldsfrumvarp fjármálaráðherra eftir að efnahags- og viðskiptanefnd gerði breytingar á því út frá umsögnum hagsmunaaðila. Formönnum tveggja samtaka sem sendu inn umsögn finnst lítið hafa verið tekið mark á sér. Innlent 10.6.2025 12:54
„Ég trúi ekki öðru en að þetta fari í gegn“ Atvinnuvegaráðherra segist hafa fulla trú á því að frumvarp um breytingu á lögum um veiðigjald verði samþykkt áður en Alþingi fer í sumarfrí. Málið er eitt þeirra fjölmörgu mála sem deilt hefur verið um á þingvetrinum, sem nú er keppst við að ljúka, og sennilega það umdeildasta. Innlent 10.6.2025 12:03
Betri vegir, fleiri lögreglumenn og hægt að komast í meðferð á sumrin Fyrir viku síðan var lagt fram frumvarp til fjáraukalaga. Í því felast stór pólitísk skilaboð. Með frumvarpinu eru nefnilega rúmlega 5,2 milljarðar króna settir í nokkur af lykilmálum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Skoðun 10.6.2025 07:00
Leita leiða til að auðvelda framsal fanga til heimalands síns Unnið er að því að auðvelda yfirvöldum að framselja fanga til síns heimalands. Dómsmálaráðherra var ráðlagt af samráðherrum sínum á Norðurlöndunum að fara í fyrirbyggjandi aðgerðir, áður en við upplifum erfiðleikana í innflytjendamálum sem glímt er við þar. Innlent 9.6.2025 22:01
Ökumenn mótorhjóla greiða meira en landsbyggðin minna Umdeilt frumvarp um kílómetragjald er loks komið úr nefnd á þinginu. Gildistöku laganna hefur verið frestað og ökumenn bifhjóla koma til með að greiða meira en fyrirhugað var. Fjármálaráðherra segir breytingar nefndarinnar sanngjarnar og til hins betra. Innlent 9.6.2025 18:56
Mjög áhyggjufull yfir tilfærslu ráðuneytisins Fjármögnun vegna fyrirhugaðar uppbyggingar fjögurra verkmenntaskóla á landsbyggðinni hefur verið hliðrað til næsta árs. Bæjarstjóri gagnrýnir að hafa fengið að vita af ákvörðuninni í gegnum fjölmiðla, og segir hana koma sveitarfélaginu í opnu skjöldu. Formaður fjárlaganefndar segir tilfærsluna ósköp eðlilega. Innlent 9.6.2025 12:18
Skipulögð glæpastarfsemi er ógn við samfélagið Ég átti á dögunum góð samtöl við kollega mína í Helsinki á fundi dómsmálaráðherra Norðurlandanna. Það er mikilvægur vettvangur þar sem við miðlum reynslu okkar og stillum saman strengi. Þetta samstarf hefur líklega aldrei verið mikilvægara en núna. Skoðun 9.6.2025 07:02
Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Fjármögnun barna- og menntamálaráðuneytisins fyrir uppbyggingu fjögurra verkmenntaskóla hefur verið hliðrað til næsta árs. Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segist ekki hafa fengið neinar upplýsingar um að sú ákvörðun hafi verið tekin. Styrkur sem átti að nýta í verkefnið gæti brunnið inni. Innlent 8.6.2025 20:38
Umræðu um bókun 35 aftur frestað Þingfundi á Alþingi lauk um tuttugu mínútur yfir fjögur en þá hafði hann staðið í um sex klukkustundir. Umræður um frumvarp utanríkisráðherra um bókun 35 á Alþingi höfðu þegar staðið í sex klukkustundir á föstudagskvöld þegar henni var frestað fram á laugardagsmorgun. Umræðunni hefur aftur verið frestað fram á þriðjudag. Innlent 7.6.2025 15:38
„Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Formaður atvinnuveganefndar frábiður sér allar sögusagnir um sýndarsamning við nýjan meirihlutaeiganda útgerðarinnar Sleppu ehf. Hann segir vistaskipti í framkvæmdastjórn og breytingar á prókúruhöfum eiga eftir að ganga í gegn. Innlent 7.6.2025 09:00
Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Fimm frumvörp til laga voru samþykkt á Alþingi í dag. Til umræðu voru alls kyns málefni líkt og samræmt námsmat grunnskólanema, listar á landamærunum, sorgarleyfi foreldra og framseldir sakamenn. Innlent 6.6.2025 23:43
„Kraftmiklar og afgerandi aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi“ Frumvarp dómsmálaráðherra um farþegalista flaug í gegn á þinginu í dag. Ráðherra segir lögin mikilvægan lið í að taka fastar á skipulagðri brotastarfsemi á Íslandi. Innlent 6.6.2025 22:10
Sjávarútvegurinn standi höllum fæti Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir höggin dynja á sjávarútvegi þessa dagana. Samdráttur í ráðgjöf til veiða á þorski kosti þjóðina milljarða króna. Innlent 6.6.2025 18:55
Starfsáætlun Alþingis felld úr gildi Forseti Alþingis hefur tekið starfsáætlun Alþings úr sambandi og fellur áætlunin því úr gildi. Óvíst er hvenær þinglok fara fram. Innlent 6.6.2025 18:34
Ein á móti rýmkuðu sorgarleyfi Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, greiddi ein atkvæði gegn frumvarpi um sorgarleyfi foreldra sem missa maka sína. Fyrir atkvæðagreiðslu sagði hún ekkert hafa komið fram sem benti til þess að rýmka þyrfti lög um sorgarleyfi með þeim hætti og að það myndi kosta hálfan milljarð króna á ári. Því gæti hún ekki greitt atkvæði með frumvarpinu. Innlent 6.6.2025 16:57
Frumvarp um farþegalista samþykkt Frumvarp dómsmálaráðherra sem gerir flugfélögum skylt að afhenda íslenskum yfirvöldum farþegalista við komu til landsins hefur verið samþykkt á Alþingi. Innlent 6.6.2025 14:12
Kolbrún segir gesti nefndarinnar handbendi minnihlutans Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, var meðal þeirra sem tók til máls í atkvæðagreiðslu um grunnskólanámsmat. Tillagan var samþykkt. En Kolbrún bauð hins vegar upp á ásakanir í tengslum við vinnu í allsherjar- og menntamálanefnd sem hleypti öllu í bál og brand. Innlent 6.6.2025 14:03
Launahækkunin mun fara í gegn en kerfið endurskoðað í haust Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að launahækkun æðstu ráðamanna muni ganga í gegn um næstu mánaðamót. Hún kveðst skilja gremju fólks vegna mikilla launahækkana en vill frekar ráðast í gagngera endurskoðun á kerfinu, frekar en að leita í tímabundna lausn rétt fyrir lok þings. Innlent 6.6.2025 12:07
Ásthildur Lóa skammar þingheim Ásthildur Lóa Þórsdóttir Flokki fólksins skammaði stjórnarandstöðuna í sinni fyrstu ræðu eftir hlé frá þingstörfum. Innlent 6.6.2025 11:44
Strandveiðisjómenn vilji aftur fá kvóta sem þeir hafi selt frá sér Dæmi eru um að strandveiðisjómenn séu aftur komnir með kvóta í hendurnar sem þeir höfðu selt dýrum dómum til útgerða. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins óttast að hlutirnir þróist þannig að strandveiðipotturinn stækki enn frekar. Innlent 5.6.2025 23:15
Fimmtíu vilja nýja stöðu verkefnastjóra samskipta Fimmtíu sóttu um nýja stöðu verkefnastjóra samskipta hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Stór verkefni eru sögð fram undan, sem kalli á mikla upplýsingagjöf, en upplýsingafulltrúi er þegar starfandi í ráðuneytinu. Innlent 5.6.2025 13:36
Þaggaði niður í þingmönnum sem sögðu Kristrúnu snúa út úr Forsætisráðherra segist hafa áhyggjur af framleiðni og vinnu þingsins og í hvað það eyðir tíma. Þetta sagði hún í svari við fyrirspurn þingmanns Miðflokksins í óundirbúnum fyrirspurnum um samheldni ríkisstjórnarinnar. Uppúr sauð og þurfti forseti Alþingis að þagga niður í þingmönnum. Innlent 5.6.2025 12:59
Gera fjölmargar breytingar á kílómetragjaldinu Frumvarp um kílómetragjald hefur tekið fjölmörgum breytingum í efnahags- og viðskiptanefnd. Formaður nefndarinnar vonast til þess að meiri sátt muni ríkja um frumvarpið, en lagt er til að gildistökunni, sem átti að gerast 1. júlí næstkomandi, verði frestað. Neytendur 5.6.2025 12:18
Hoppað yfir girðingarnar Strandveiðar hafa skipað mikilvægan sess í íslenskum sjávarútvegi undanfarin ár, bæði sem vettvangur fyrir nýliðun og sem leið til að halda uppi lífi í smærri byggðum landsins. Það er því ekkert nýtt að strandveiðarnar njóta stuðnings í samfélaginu – og með réttu. Hins vegar eru nýlegar breytingar á framkvæmd strandveiðikerfisins og fyrirhugaðar lagabreytingar alvarlegt áhyggjuefni. Skoðun 5.6.2025 07:31
„Af hverju vilja stjórnvöld ekki fá innvið afhentan á silfurfati eftir tuttugu ár?“ Framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs furðar sig á því „af hverju í ósköpunum“ stjórnvöld hafi ekki farið meira þá leið við uppbyggingu mannvirkja hér á landi, eins og var gert í tilfelli Hvalfjarðarganga, að efna til samstarfs við fjárfesta og geta þannig fengið afhentan innvið á silfurfati til sín eftir kannski tuttugu ár þegar einkaaðilar séu búnir að reka hann í samræmi við reglur. Hann situr núna í starfshópi um mögulega stórfellda íbúðauppbyggingu í Úlfársdal en segir að það eigi eftir að koma í ljóst hvort lífeyrissjóðum verði treyst til að hafa aðkomu að því verkefni. Innherji 5.6.2025 06:32
Segir ljóst að Víðir hafi brotið stjórnsýslureglur: „Það er verið að kaupa sér vinsældir“ Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir að Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður allsherjarnefndar, hafi brotið stjórnsýslureglur með afskiptum sínum af máli Oscars. Hann segir að málið sé enn eitt dæmið um að þingmenn kaupi sér vinsældir með lögbrotum. Innlent 5.6.2025 00:03