Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur

Fréttamynd

Stefnt að stjórn­leysi í ríkisfjármálunum

Það þarf ekki hagfræðimenntun til að átta sig á því að það er óskynsamlegt að lögfesta sjálfvirka aukningu ríkisútgjalda algjörlega óháð stöðu efnahagslífsins hverju sinni og getu ríkissjóðs til að standa undir útgjöldunum.

Skoðun
Fréttamynd

Að þegja yfir ó­stjórn en segja að jafn­vægi sé efna­hags­legur dóms­dagur

Við skulum fara aftur til janúar 2023. Sjálfstæðisflokkur, Vinstri græn og Framsókn sitja í ríkisstjórn. Verðbólga á Íslandi var að mælast 9,9 prósent, hækkaði um 0,85 prósent milli mánaða og hafði rúmlega tvöfaldast síðan í kosningunum haustið 2021, en hún hafði mælst 4,4 prósent í aðdraganda þeirra. Aukningin í janúar var langt umfram spár.

Skoðun
Fréttamynd

„Á rangri leið“ með háa raun­vexti sem feli í sér til­færslu fjár­muna milli kyn­slóða

Áframhaldandi áhersla Seðlabankans á að viðhalda yfir þriggja prósenta raunvaxtaaðhaldi samhliða litlum sem engum hagvexti sýnir svo „ekki verður um villst“ að bankinn er á „fullkomlega rangri leið“, að mati forstjóra eins umsvifamesta fjárfestingafélags landsins, sem kallar eftir umræðu um hvað sé meðal annars eðlilegt raunvaxtastig og verðbólgumarkmið fyrir hagkerfið. Hann segir hið háa vaxtastig ekki vera neitt annað en tilfærsla á fjármunum milli kynslóða þar sem þeir sem eldri eru njóta ávinningsins í formi hærri ávöxtunar á innlán og ellilífeyri.

Innherji
Fréttamynd

Ekki sé lög­boðið eftir­lit með fimmtungi fóstur­barna

Formaður Félags fósturforeldra fer hörðum orðum um kerfi sem passa eigi upp á fósturbörn og -foreldra en framkvæmi ekki lögboðið eftirlit. Hann gefur lítið fyrir orð bæði forsætisráðherra og forstjóra Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) um málefni fósturfjölskyldna. Könnun félagsins sýni fram á að ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturforeldra.

Innlent
Fréttamynd

Óttast sam­drátt og at­vinnu­leysi sem ekki sé hægt að mæta með vaxtalækkun

Miðað við dekkri verðbólguspá til skamms tíma þá kallar hún „alls ekki“ á vaxtalækkun í bráð, að sögn seðlabankastjóra, sem varar við því að mögulega sé að teiknast upp sú staða að hagkerfið kunni að sigla í samdrátt og aukið atvinnuleysi sem ekki verði hægt að mæta með því að ráðast í lækkun vaxta. Seðlabankinn hefur ekki fengið neina kynningu á hugmyndum stjórnvalda um skref til afnáms verðtryggingar, meðal annars að gera kröfu um lágmarksafborgun inn á lán, og telur að slíkar aðgerðir ættu fremur að vera á borði fjármálastöðugleikanefndar.

Innherji
Fréttamynd

Mikil mót­staða í­búa á hita­fundi um flutning kaffi­stofunnar

Hitafundur fór fram í Réttarholtsskóla um flutning kaffistofu Samhjálpar í gær. Íbúar segjast styðja starfsemi kaffistofunnar en nær einróma um að finna eigi henni aðra staðsetningu en á Grensásvegi. Framkvæmdastýra segir búið að gera ítarlega leit hjá borg, ríki og fjölda annarra að eign sem henti starfseminni. Hún varar við því að mál kaffistofunnar verði gert að pólitísku bitbeini fyrir kosningar í vor.

Innlent
Fréttamynd

Saka stjórnina um „ósk­hyggju, af­neitun og í­myndaðan veru­leika“

Forystumenn stjórnarandstöðunnar þjörmuðu að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra vegna stöðu efnahagsmála í landinu í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Formenn Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins sögðu stjórnvöld kenna öllu öðru en aðgerðum ríkisstjórnarinnar um aukna verðbólgu. Kristrún segir ríkisstjórnina ætla að „halda sig við planið“ og að ríkisstjórnin ætli ekki að „hlaupa upp til handa og fóta“ vegna einstakra mælinga.

Innlent
Fréttamynd

„Seðla­banka­stjóri gat ekki sagt það skýrar“

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir nýlegt verðbólguskot beina afleiðingu útgjaldaaukningu ríkisstjórnarinnar. Almenningur borgi fyrir misfellur stjórnvalda en Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar segir um hraðahindrun að ræða.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er sárara en tárum taki“

„Ég er bara gjörsamlega harmi slegin og maður getur varla tjáð sig öðruvísi en að fara að gráta. Þetta er að gerast alveg til 2002. Þarna er þetta að eiga sér stað í 27 ár. Hvar var þetta kerfi? Hvar hefur þetta kerfi verið eiginlega?“ 

Innlent
Fréttamynd

Seðla­bankinn ó­sam­mála Daða Má

Í nýju riti Peningamála Seðlabanka Íslands segir að nýlegt verðbólguskot sé fyrst og fremst að rekja til hækkunar á opinberum gjöldum og þjónustu um áramót. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur aftur á móti vísað slíku á bug og sagt verðbólguaukningu tilkomna vegna álagningar annarra en ríkisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Breið sam­staða á Al­þingi og Mið­flokkurinn aftur kominn um borð

Alþingi samþykkti í gær fyrstu formlegu varnar- og öryggisstefnu Íslands með stuðningi þingmanna allra flokka á Alþingi sem viðstaddir voru atkvæðagreiðsluna. Í umræðu um atkvæðagreiðsluna kepptust þingmenn við að koma upp í pontu og fagna þessum áfanga og hrósa hver öðrum fyrir samstarfið og þá vinnu sem lögð var í að ná breiðri sátt um málið.

Innlent
Fréttamynd

„Af öllum vondu málum ríkis­stjórnarinnar finnst mér þetta það versta“

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, geldur varhug við frumvarpi félagsmálaráðherra um tengingu almannatrygginga við launavísitölu, sem nú er rætt í annarri umræðu á Alþingi. Hún telur að það muni leiða til sjálfvirkrar aukningar útgjalda ríkissjóðs og minni hvata til atvinnuþátttöku. „Ég hef mjög miklar áhyggjur af þessu frumvarpi og af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta,“ segir hún.

Innlent
Fréttamynd

Miklar launa­hækkanir stærra vanda­mál en verð­tryggingin

Þórður Gunnarsson hagfræðingur segir verðtrygginguna ekki aðalvandamálið. Þegar fólk pirri sig á verðtryggingu sé það í raun að pirra sig á verðbólgunni. Hann segir miklar launahækkanir stærra vandamál. Hann kallar eftir auknu samráði á vinnumarkaði til að finna raunverulegt svigrúm og segir það líklegra til að hafa áhrif á verðbólgu en afnám verðtryggingar. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Svona rosa­leg van­líðan getur ekki staðið enda­laust“

Aldrei hafa sjálfboðaliðar og starfsfólk hjálparsíma Rauða krossins tekið á móti fleiri símtölum vegna sjálfsvígshugsana. Sjálfboðaliði segir símtölin oft löng og þung en flest endi vel. Stundum sitji hún þó eftir með hugsanir um hvort hún hafi sagt og gert allt rétt. Sjálfboðaliðar og starfsfólk hafði í 229 tilvikum samband við Neyðarlínuna vegna bráðrar hættu þeirra sem hringdu.

Innlent
Fréttamynd

Fækka sýslu­mönnum í einn

Alþingi hefur samþykkt frumvarp þess efnis að fækka embættum sýslumanna úr níu í eitt. Ekki liggur fyrir hvar embættið verður staðsett.

Innlent
Fréttamynd

Ey­gló land­póstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venju­legt fólk á lands­byggðinni?“

Fjármála- og efnahagsráðherra segir að honum finnist ekki sanngjarnt að kalla aukin útgjöld konu á landsbyggðinni upp á 45 þúsund krónur á mánuði, vegna nýs kílómetragjalds, skattahækkun. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins vakti athygli á máli konunnar í óundirbúnum fyrirspurnatíma á fundi Alþingis í dag og spurði ráðherra hvort fólk á landsbyggðinni væri ekki venjulegt fólk, sem ríkisstjórnin hefði lofað að auka ekki álögur gagnvart.

Innlent
Fréttamynd

Skýr skila­boð um að það borgi sig ekki að leita til Ís­lands

Dómsmálaráðherra kynnti í morgun stefnu og aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi hér á landi sem felur meðal annars í sér nýtt samræmt verklag við meðferð brottvísunarmála brotahópa frá EES-ríkjum. Ráðherrann segir að með stefnunni sé brotahópum send skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Sáttamiðlun úr­ræði sem væri alls ekki fyrir alla þol­endur

Dómsmálaráðherra segist opin fyrir því að skoða allar leiðir er miða að því að bæta meðferð kynferðisbrotamála. Kallað hefur verið eftir nokkurs konar sáttamiðlun í málaflokknum. Ráðherra segir það ekki fyrir alla og að það yrði þá úrræði sem væri í boði samhliða réttarkerfinu.

Innlent
Fréttamynd

Líkurnar á lækkun „mjög litlar“

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segist ekki ætla að spá fyrir um ákvörðun peningastefnunefndar um stýrivexti en nefndin kynnir ákvörðun sína á miðvikudag.

Innlent
Fréttamynd

Mót­mæla og biðla til utan­ríkis­ráð­herra

Samfélag Kúrda á Íslandi hefur boðað til mótmæla í dag og krefst tafarlausrar aðgerða vegna alvarlegrar stöðu Kúrda í Sýrlandi og Tyrklandi. Talsmaður hópsins segir kallar eftir því að utanríkisráðherra beiti sér fyrir vopnahléi.

Innlent
Fréttamynd

„Mjög á­huga­verð um­ræða“

Olíufélögin hafa brugðist illa við málflutningi ríkisstjórnarinnar sem hefur sagt þau bera að ábyrgðar vegna aukinnar verðbólgu. Framsetningin sé villandi og standist ekki skoðun. 

Innlent
Fréttamynd

Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum

Samgöngustofa hefur fengið tvö hundruð ábendingar vegna leigubílaaksturs frá því ný lög tóku gildi fyrir tæpum þremur árum. Formaður tveggja félaga bifreiðastjóra segir ófremdarástand hafa ríkt á markaðnum síðan og kvartanirnar margfalt fleiri. Hann fagnar drögum að nýrri reglugerð.

Innlent
Fréttamynd

For­sætis­ráð­herra muni alltaf hafa sam­ráð við for­seta

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að mikilvægt sé að tryggja sjálfstæði forsetaembættisins og segir að tillaga um að forsætisráðherra skipi forsetaritara sé millileið. Tillagan komi frá forsætisráðherra en að viðhöfðu samráði við forsetann. Mikilvægt sé að tillagan verði tekin til umræðu í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.

Innlent