Færð á vegum

Fréttamynd

Barn­laus leik­skóli

Sigrún Grétarsdóttir, leikskólastjóri í Hólaborg í Breiðholti í Reykjavík, var mætt til vinnu snemma í morgun en lágmarksopnun var í öllum leikskólum borgarinnar og mælst var til þess að fólk kæmi ekki með börnin nema nauðsyn væri.

Innlent
Fréttamynd

Strætó hættir akstri í dag

Strætó hefur stöðvað allan akstur strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu vegna erfiðrar færðar og veðurskilyrða. Vagnar voru fastir víða og einhverjar leiðir hættar áður vegna erfiðrar færðar. 

Innlent
Fréttamynd

Vetrarþjónusta í gangi og fer á fullt um há­degi

Hjalti J. Guðmundsson, skrifstofustjóri reksturs og umhirðu hjá Reykjavíkurborg, segir vel ganga að halda helstu stofnleiðum auðum. Vetrarþjónusta fari á fullt um hádegisbil svo helstu stofnæðar, fyrir bíla, gangandi og hjól, verði greiðar þegar umferð hefst að nýju þegar viðvörun rennur úr gildi um 13.

Innlent
Fréttamynd

Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður

Sorphirða fór fram í Reykjavík í morgun í ákveðnum hverfum og í Kópavogi samkvæmt ábendingum. Fréttastofa hefur fengið nokkrar ábendingar frá lesendum sem furða sig á því að sorphirðufólk hafi verið sent af stað þegar aðrir voru beðnir að vera heima.

Innlent
Fréttamynd

Vaktin: Þjóðin býr sig undir ill­viðri

Appelsínugul veðurviðvörun tekur gildi á suðvesturhluta landsins í fyrramálið og síðar tekur gul viðvörun gildi í öðrum landshlutum. Búist er við raski á samgöngum, skólastarfi og í atvinnulífinu vegna veðursins. 

Veður
Fréttamynd

Auka við­búnað í Grinda­vík vegna veðurs

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, í samráði með Almannavörnum, varar við vondu veðri á morgun. Appelsínugular veðurviðvaranir verða í gildi fyrripart dags. Viðbúnaður verður aukinn sérstaklega í Grindavík.

Innlent
Fréttamynd

Taka á­kvörðun um skóla­hald síð­degis

Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins fundar klukkan 17 með sviðsstjórum fræðslusviða höfuðborgarsvæðisins og tekur ákvörðun um skólahald á morgun. Þegar börn eiga að mæta til skóla á morgun verður appelsínugul viðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu. 

Innlent
Fréttamynd

„Um­ferðin kemur til með að hægja veru­lega á sér“

Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu í fyrramálið vegna suðaustan storms og stórhríðar. Skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg býst við að verulega hægist á umferð og segir að viðbragðsáætlun vegna veðursins hafi verið virkjuð.

Innlent
Fréttamynd

Ein lægð fjar­lægist en önnur djúp nálgast

Lægðin sem olli illviðrinu í gær er nú fyrir austan land og fjarlægist smám saman. Veðurspáin gerir ráð fyrir norðan- og norðaustanátt í dag, víða átta til fimmtán metrar á sekúndu og él, en heldur hvassara og snjókoma austanlands fram eftir morgni.

Veður
Fréttamynd

Mikið að gera á mörgum víg­stöðvum

Björgunarsveitarmenn hafa haft í nógu að snúast á mörgum vígstöðvum í dag. Vegum hefur verið lokað víða um land og hefur þurft að koma fólki sem setið hefur fast til aðstoðar.

Innlent
Fréttamynd

Fjórðungur Hringvegarins lokaður

Lokað hefur verið fyrir fjölda vega víða um land vegna illviðris og slæms skyggnis, þar á meðal um Þrengslin, Hellisheiði og Öxnadalsheiði. Þá hefur 320 kílómetra vegkafla Hringvegarins verið lokað á Suðausturlandi.

Innlent
Fréttamynd

Vegalokanir, snjó­flóða­hætta og óvissustig

Fjöldi vega víða um land hefur verið lokað vegna veðurs, þar á meðal Hringvegurinn og Hellisheiðin. Óvissustig er í gildi víða og má búast við að fleiri vegum verði lokað. Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir og er óvissustig á Austurlandi vegna snjóflóðahættu.

Innlent
Fréttamynd

Boða lokanir á hring­veginum vegna veðurs

Lokað verður fyrir umferð um þjóðveg 1 milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs klukkan ellefu í kvöld vegna veðurs. Sömuleiðis verður Fjarðarheiði lokað klukkan tíu af sömu ástæðu.

Innlent
Fréttamynd

Gular við­varanir um allt vestan­vert landið til morguns

Gular veðurviðvaranir eru nú í gildi um allt vestanvert landið og einu svæðin sem eru undanskilin eru Norðurland eystra, Austurland og Austfirðir. Á höfuðborgarsvæðinu verður viðvörun í gangi í allan dag og fram á morgundaginn en spáð er suðvestan hvassviðri og dimmum éljum. Annars staðar er einnig spáð hvassviðri eða jafnvel stormi og er varasamt að vera á ferðinni.

Veður
Fréttamynd

„Mjög vont veður sem mun ef­laust skapa vanda­mál“

Gular viðvaranir verða í gildi á öllu sunnan- og vestanverðu landinu á morgun og búast má við truflunum á samgöngum. Öllu innanlandsflugi Icelandair hefur verið aflýst í dag og farþegum sem eiga flug eiga til og frá Evrópu í fyrramálið verið boðið að færa sig í önnur flug.

Innlent
Fréttamynd

Enn við­varanir og óvissustig vegna snjó­flóða­hættu

Gular viðvaranir eru nú í gildi vegna veðurs á Faxaflóa, Vestfjörðum og á Ströndum og Norðurlandi vestra. Þær eru annars vegar til 14 og 17. Þar er norðvestan stormur og hríð og á Faxaflóa er vindhraðinn allt að 25 metrum á sekúndu.

Veður
Fréttamynd

Holtavörðuheiðin opin á ný

Búið er að opna Holtavörðuheiðina eftir lokun í nótt. Enn er ófært um Fróðaárheiði.  Hálka og snjóþekja er á flestum leiðum.

Veður
Fréttamynd

Önnur rúta fór út af og Hring­vegi lokað að hluta

Þrenging er á Hringvegi um Holtavörðuheiði þar sem rúta fór út af vegi í dag, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Þá hefur Hringveginum verið lokað milli Hvammstanga og Víðigerðis þar sem bílar sitja fastir. Ríflega hundrað björgunarmenn hafa verið ræstir út síðasta sólarhring, að sögn Landsbjargar.

Veður
Fréttamynd

Rúta út af og Þingvallavegi lokað

Lokað hefur verið fyrir umferð um Þingvallaveg vegna umferðarslyss á Mosfellsheiði en þar hafnaði rúta fyrir utan veginn eftir að ökumaður missti stjórn á ökutækinu.

Innlent