Bylgjan

Fréttamynd

Hommar komi verst út þegar kemur að mis­munun launa

Samkynhneigðir karlar koma langverst út á vinnumarkaði þegar kemur að mismunun launa segir sviðsstjóri Fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ. Samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir ASÍ, BHM og BSRB árið 2023 um málefni hinsegin fólks á vinnumarkaði eru tekjur hinsegin karla þrjátíu prósentum lægri en tekjur gagnkynhneigðra karla á ársgrundvelli. Munur á tekjum hinsegin og gagnkynhneigðra kvenna er hins vegar hverfandi.

Innlent
Fréttamynd

51 prósent sé nóg

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist ekkert geta fullyrt um hvort að Ísland fái undanþágur í mögulegum aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Ísland yrði stærsta fiskveiðiþjóð sambandsins og fara þurfi inn í viðræðurnar, sem eigi að kosta um tvo milljarða, með stolti. Segi 51 prósent kjósenda nei verði niðurstaðan virt.

Innlent
Fréttamynd

Krist­rún sat fyrir svörum og ræddi við hlust­endur

Kristrún Frostadóttir var gestur Bítisins á Bylgjunni í morgun. Þar sat hún fyrir svörum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, stöðuna í efnahagsmálunum og margt fleira. Þá var opnað fyrir símann og hlustendur fengu tækifæri til að ræða við forsætisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Spurningin kom Guð­laugi Þór í opna skjöldu

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, segir það þvælukenningu að Ísland hefði komið betur út úr Icesave hefði Ísland verið þá hluti af Evrópusambandinu. Hann átti erfitt með svör þegar hann var spurður út í sína aðild að innleiðingu laga Evrópusambandsins.

Innlent
Fréttamynd

Breytir ekki veður­spám til að þóknast hátíðahöldurum

Siggi stormur veðurfræðingur segist ekki vera að hugsa út í tekjur útihátíða þegar hann spáir fyrir um veðrið fyrir stærstu ferðahelgar ársins. Veðurspá hans fyrir verslunarhelgina féll í grýttan jarðveg hjá skipuleggjendum útihátíða á Norðurlandi en Siggi segir spána sína hafa staðist í öllum meginatriðum.

Innlent
Fréttamynd

Bylgjulestin brunar á Flúðir

Bylgjulestin stoppar á Flúðum á morgun og verður í beinni  milli klukkan 12 og 16. Þetta verður síðasta stopp sumarsins eftir hressilegt ferðalag Bylgjulestarinnar um landið.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu

Formaður Sjálfstæðisflokksins segist mjög sátt með þróun fylgis flokksins sem mældist með mesta fylgið í nýrri skoðanakönnun. Aukið fylgi stafi bæði af óvinsældum ríkisstjórnarinnar og samtakamætti Sjálfstæðisflokksins. Flokksmenn sem hurfu annað séu að snúa aftur.

Innlent
Fréttamynd

„Vald flug­stjórans er náttúru­lega al­veg klárt“

Flugmenn hafa skyldu til þess að grípa inn í ef öryggi er í hættu en ákvörðunarvaldið er í höndum flugstjóra að sögn ábyrgðarmanns þjálfunar hjá Icelandair. Vald flugstjóra innan flugklefans sækir fyrirmynd úr siglingalögum en hefur tekið þó nokkrum breytingum á síðustu áratugum.

Innlent
Fréttamynd

Myndaveisla: Götubitinn í Hljóm­skála­garðinum

Svali og Svansí tóku púlsinn á Götubitahátíðinni í Hljómskálagarðinum um liðna helgi þar sem Bylgjulestin var í beinni. Fölmenni var í garðinum og lét ekki rigninguna trufla sig. Yfir 40 söluaðilar, matarvagnar, sölubásar og bjórvagninn voru á staðnum.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Aukið að­gengi að á­fengi auki neyslu

Kári Stefánsson segir netsölu áfengis auka aðgengi að áfengi og því án nokkurs vafa auka neyslu þess en búi einnig til veikleika fyrir þá sem eiga við áfengisvanda að stríða. Kostnaður í heilbrigðiskerfinu sem rekja megi beint til áfengisneyslu nemi hundrað milljörðum ár hvert en áfengi sé eitt versta fíkniefni samfélagsins. Hann segir vel þess virði að fórna svolitlu frelsi þegar kemur að áfengissölu til að vernda fólk sem eigi undir högg að sækja. 

Innlent
Fréttamynd

„Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loft­kælingu í Evrópu“

Engin heimsálfa hitnar hraðar en Evrópa og enginn vafi er á því að hitabylgjum sé að fjölga í álfunni segir fagstjóri hjá Veðurstofu Íslands. Hitabylgjan sem geisaði um álfuna nú í sumar hafi náð yfir mun stærra svæði en þær sem mælst hafa á árum áður. Erfitt hefur verið að halda úti markmiði Parísarsamningsins um að halda hlýnuninni innan tveggja gráða. 

Innlent
Fréttamynd

„Af og frá“ að Ís­land fram­selji lög­gjafar­valdið með inn­göngu

Prófessor við lagadeild Háskólans á Akureyri telur að ef verði af inngöngu Íslands í Evrópusambandið sé þjóðin ekki sömuleiðis að framselja löggjafarvaldið. Hins vegar felist í því að framselja dómsvaldið að hluta. Lagalega séð séu undanþágur frá samningnum mögulegar en á sama tíma séu þær háðar pólitískum vilja.

Innlent
Fréttamynd

Hita­bylgjur, full­veldi og Megas

Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni.

Innlent
Fréttamynd

„Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“

Spáð er allt að tuttugu og sex gráðum og bjartviðri á Austurlandi um helgina og landinn virðist streyma þangað í von um nokkra sólardaga. Fáir flugmiðar eru óseldir frá Reykjavíkurflugvelli til Egilsstaða um helgina og tjaldsvæðin fyrir austan eru að fyllast. 

Innlent
Fréttamynd

Lands­lið ís­lenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar

Bylgjan fór í loftið 28. ágúst 1986 og fagnar því fjörutíu ára afmæli í ár. Af því tilefni kom landslið íslenskra söngvara saman og tók upp slagarann „Lífið er lag“ eftir súpergrúppuna Módel í sérstakri fjörutíu ára afmælisútgáfu sem var frumflutt á Bylgjunni í dag.

Tónlist
Fréttamynd

Bylgju­lestin mætir á Hjarta Hafnar­fjarðar á laugar­dag

Bylgjulestin verður á opnunarhelgi bæjar- og tónlistarhátíðarinnar Hjarta Hafnarfjarðar á morgun laugardag en hátíðin hófst formlega í gær fimmtudag. Bylgjulestin verður í beinni útsendingu á laugardag milli kl. 12 og 16 og að þessu sinni eru lestarstjórarnir engir aðrir en tvíeykið góðkunna Gulli Helga og Jón Axel sem fá góða gesti í heimsókn.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Bein út­sending frá Berg­máli á Þing­völlum

Bergmál á Þingvöllum nær alla leið heim í stofu þar sem tónlistarhátíðinni verður útvarpað á Bylgjunni í dag. Hlusta má á útsendinguna í spilaranum hér að neðan en útsendingu lýkur klukkan 16:00 á Bylgjunni.

Tónlist