Tryggvi Hrafn klárar tímabilið með Val Tryggvi Hrafn Haraldsson virðist ætla að klára tímabilið hjá Val. Hann hefur þó skrifað undir samning við ÍA en hann tekur ekki gildi fyrr en samningur hans við Val klárast. Fótbolti 10.8.2026 15:30
Gefur lítið fyrir orð kollega síns: „Ég skil ekki svona“ Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gat leyft sér að brosa í leikslok eftir 2-0 sigur liðsins gegn Þór í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 9.8.2026 21:13
„Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ „Þetta var bara þvæla og ég trúi ekki að við séum að taka þátt í viðburði sem þessum árið 2026,“ sagði Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir 2-0 tap liðsins gegn ÍA í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Íslenski boltinn 9.8.2026 20:49
Sara Björk leitar enn fyrsta sigursins Haukar og ÍA gerðu markalaust jafntefli að Ásvöllum í Lengjudeild kvenna í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 28. júlí 2026 21:26
Sjáðu mörkin þegar ÍA kjöldró Stjörnuna Eftir fimm töp í röð vann ÍA stórsigur á Stjörnunni, 5-1, á Akranesi í Bestu deild karla í gær. Skagamenn eru nú aðeins einu stigi frá efri hlutanum en Stjörnumenn einungis tveimur stigum frá fallsæti. Íslenski boltinn 27. júlí 2026 10:02
Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, átti erfitt með að finna orðin til að lýsa frammistöðu sinna manna eftir 5-1 tap gegn ÍA uppi á Skaga í kvöld. Íslenski boltinn 26. júlí 2026 22:10
Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Skagamenn skoruðu þrjú mörk á fyrstu 26 mínútunum og unnu sannfærandi 5-1 sigur á Stjörnumönnum í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld þegar Jón Þór Hauksson, fyrrverandi þjálfari Skagamanna, mætti með Garðabæjarliðið á sinn gamla heimavöll. Íslenski boltinn 26. júlí 2026 21:13
Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Eftir fjóra sigra í röð gerði Grótta 3-3 jafntefli við FHL í Lengjudeild kvenna í kvöld. KR hefði getað minnkað forskot Gróttu á toppnum en tapaði fyrir ÍA, 3-2. Völsungur vann langþráðan sigur og gott gengi Keflavíkur hélt áfram. Íslenski boltinn 23. júlí 2026 22:27
„Þetta lítur bara illa út“ Skagamenn eru á slæmum stað í Bestu deild karla í fótbolta, búnir að tapa fimm deildarleikjum í röð og hafa fengið á sig sautján mörk í þessum fimm leikjum. Stúkan ræddi stöðuna á Skagaliðinu sem er á leið í harða fallbaráttu en ekki í toppbaráttuna eins og margir bjuggust við. Íslenski boltinn 21. júlí 2026 11:30
Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Keflvíkingar unnu stóran sigur á Skagamönnum í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi og nú má sjá mörkin úr leiknum hér inni á Vísi. Íslenski boltinn 21. júlí 2026 08:45
„Við erum að skila ágætum frammistöðum en þær gefa okkur ekki neitt“ Lárus Orri Sigurðsson var svekktur eftir 5-2 tap ÍA gegn Keflavík í Bestu deild karla. Hann taldi leikinn hafa verið í ágætu jafnvægi framan af en sagði tvö mörk á tveggja mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks hafa slegið Skagamenn út af laginu. Fótbolti 20. júlí 2026 22:20
Uppgjörið: Keflavík – ÍA 5-1 | Slátrun á Suðurnesjunum Keflavík vann sannfærandi 5–2 sigur á ÍA þegar liðin mættust í Bestu deild karla á HS Orku vellinum í kvöld. Íslenski boltinn 20. júlí 2026 18:32
Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Félagaskiptaglugginn á Íslandi verður opnaður á ný í dag, 16. júlí. Þá gefst liðum tækifæri til að styrkja sig fyrir seinni hluta tímabilsins. En hvað eru liðin í Bestu deild karla búin að gera og hvað þurfa þau að gera í glugganum? Vísir leitaði til Baldurs Sigurðssonar, sérfræðings Stúkunnar, um hvað liðin tólf þyrftu að gera áður en glugganum verður lokað 12. ágúst. Íslenski boltinn 16. júlí 2026 09:02
Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Alls var 21 mark skorað í fjórum leikjum í Bestu deild karla í gær. KA og FH unnu kærkomna sigra á meðan Fram og KR röðuðu inn mörkum. Íslenski boltinn 13. júlí 2026 10:32
Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, segir erfitt að kyngja tapi liðsins gegn KA í Bestu deildinni í kvöld, eftir að hafa verið 2-0 yfir eftir rúmlega klukkutíma leik. Hann segir sömu sögu endurtaka sig aftur og aftur og eitthvað þurfi að breytast. Íslenski boltinn 12. júlí 2026 22:07
Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik KA vann dramatískan 3-2 sigur á ÍA á Greifavellinum á Akureyri í þrettándu umferð Bestu deildar karla. Skagamann leiddu 2-0 eftir rúman klukkutíma en þá hófst endurkoma norðanmanna sem var fullkomnuð í blálok leiksins. Íslenski boltinn 12. júlí 2026 21:05
Sjáðu mörk og atvik helgarinnar í Bestu deildinni Tveir leikir fóru fram í Bestu deild karla í gær og einn fór fram á föstudaginn. Í þeim var skorað nóg af mörkum og fengum við jafnvel að sjá rautt spjald. Fótbolti 5. júlí 2026 10:02
„Með ólíkindum að við höfum tapað þessum leik“ Lárus Orri Sigurðsson þjálfari ÍA var undrandi á því að lið hans hafi tapað 1-2 fyrir Breiðabliki í 13. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á ELKEM vellinum á Akranesi í gær. Fótbolti 5. júlí 2026 08:57
Uppgjörið: ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Breiðablik vann sterkan endurkomusigur á ÍA, 2-1, í 13. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á ELKEM vellinum á Akranesi í dag. Írskir dagar fara nú fram í bænum og spilltu Blikar því gleði Skagamanna. Íslenski boltinn 4. júlí 2026 13:17
Sjáðu Atla afgreiða Skagamenn og færa Framara nær KR Atli Þór Jónasson var maður kvöldsins þegar Framarar sóttu þrjú stig upp á Akranes og nálguðust KR-inga við topp Bestu deildar karla í fótbolta. Nú má sjá mörkin úr leiknum hér inni á Vísi. Íslenski boltinn 30. júní 2026 07:45
Lárus Orri Sigurðsson: ,,Erum ekki í Evrópubaráttu” Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var ósáttur með frammistöðu sinna manna eftir 2-0 tap gegn Fram á ELKEM-vellinum á Akranesi í kvöld. Að hans mati voru Framarar betri frá upphafi til enda og Skagamenn áttu fá svör við leik gestanna. Fótbolti 29. júní 2026 22:44
Uppgjörið: ÍA - Fram 0-2 | Öruggur sigur Fram á Skaganum Fram vann öruggan 2-0 sigur á ÍA þegar liðin mættust á ELKEM-vellinum á Akranesi í kvöld. Atli Þór Jónasson skoraði bæði mörk Framara í fyrri hálfleik, annað þeirra af vítapunktinum. Með sigrinum styrkti Fram stöðu sína í þriðja sæti Bestu deildarinnar og er nú komið með 26 stig, tveimur stigum á eftir KR í öðru sæti. ÍA situr hins vegar í sjöunda sæti með 15 stig eftir annað tap sitt í röð. Íslenski boltinn 29. júní 2026 18:31
Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum KR-ingar halda áfram að bjóða upp á miklar markaveislur í sínum leikjum og það var enginn breyting á því þegar Skagamenn komu í heimsókn í Vesturbæinn í lokaleik ellefu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í gærkvöldi. Íslenski boltinn 23. júní 2026 08:20
„Hefðum við nýtt okkar færi væri ég ekki að fara heim með núll stig“ Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var svekktur, en þó stoltur af sínum mönnum, eftir 5-3 tap gegn KR í Bestu-deildinni í kvöld. Fótbolti 22. júní 2026 22:34