SÁÁ
1 2 3 4 5 6 … 6 ›
Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku SÁÁ stefnir á að taka inn nýja skjólstæðinga tvo daga í næstu viku en lokað hefur verið fyrir innlagnar þar ótímabundið vegna mönnunarvanda. Forstjóri stofnunarinnar segir unnið að því að leysa vandann í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld. Innlent 25.9.2026 11:50
Endurskoða samning SÁÁ Sjúkratryggingar og SÁÁ hafa náð saman um að endurskoða samning sinn til að styrkja stjórnarhætti og skapa skýrari umgjörð um heilbrigðisþjónustu SÁÁ. Tryggja þurfi fagleg gæði og góða stjórnarhætti. Innlent 25.9.2026 08:08
Áskorun til heilbrigðisráðherra „Deilurnar innan SÁÁ hafa verið hatrammar og að mörgu leyti illskiljanlegar.“ Svo segir í frétt á vef RÚV um viðtal við heilbrigðisráðherra um þær áskoranir sem heilbrigðisþjónusta SÁÁ hefur staðið frammi fyrir undanfarnar vikur. Skoðun 24.9.2026 23:00
„Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Ekki verður tekið við nýjum sjúklingum inn á Sjúkrahúsið Vog um óákveðinn tíma vegna mönnunarvanda. Nýr framkvæmdastjóri lækninga er eini sérfræðilæknirinn að störfum og aðrir mæta ekki til vinnu. Biðlisti er eftir fíknimeðferð á Vogi og hinn umdeildi Þórarinn Tyrfingsson mættur aftur á spítalann. Innlent 24.9.2026 18:44
SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Mér þykir mjög vænt um SÁÁ og þá starfsemi sem samtökin hafa byggt upp og leitt í gegnum áratugina, íslensku samfélagi til mikilla heilla. Ég ber mikla virðingu fyrir öllu því fólki sem hefur lagt þar hönd á plóg starfsfólki, stjórnendum, félagsmönnum, sjálfboðaliðum og almenningi sem hefur stutt starfsemina. Skoðun 24.9.2026 09:00
Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Fagráð Félagsráðgjafafélags Íslands um áfengis- og annan vímuefnavanda sendi Önnu Hildi Guðmundsdóttur formanni SÁÁ og Baldvinu Ýr Hafsteinsdóttur forstjóra SÁÁ bréf í dag og lýsti yfir alvarlegum áhyggjum af stöðu meðferðarþjónustu SÁÁ og þeim afleiðingum sem röskun á starfseminni getur haft fyrir fólk með vímuefnaröskun og aðstandendur þess. Fagráðið vil undirstrika að það er á ábyrgð bæði stjórnar og fagfólks SÁÁ og stjórnvalda að koma í veg fyrir þjónusturof í þjónustunni. Skoðun 22.9.2026 23:30
Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Það er kominn tími til að spyrja spurninga sem mér finnst hafa týnst í umræðunni um SÁÁ: Skoðun 22.9.2026 19:32
Verður Vogi lokað? Áfengis- og fíknimeðferðir á vegum SÁÁ eru í uppnámi eftir að sviptingar urðu nýlega í stjórnendahópi fagfólks samtakanna í kjölfar uppsagnar forstjóra SÁÁ. Skoðun 22.9.2026 14:01
Rætin Rót í þrettán ár Í þrettán ár hefur Kristín Pálsdóttir talskona Rótarinnar nýtt hvert tækifæri sem gefst til að hnýta í SÁÁ. Engan skyldi undra að hún hafi stokkið á vandlætingarvagninn í tilefni af nýjustu sviptivindunum hjá SÁÁ. Skoðun 22.9.2026 07:32
Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Pétur Maack Þorsteinsson, formaður Sálfræðingafélags Íslands, hefur mjög miklar áhyggjur af stöðu mála innan SÁÁ og telur að stjórn samtakanna hafi gengið of langt í afskiptum sínum af faglegu starfi. Það sé ekki hlutverk félagaskipaðrar stjórnar að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustunni sem veitt er undir samningi við Sjúkratryggingar. Innlent 21.9.2026 22:00
SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Eitt er það sem blasir við varðandi núverandi stöðu og það er hvernig stjórn félagsins umgengst gagnsæi. Skoðun 20.9.2026 18:00
Hótuðu að loka Vogi Embætti landlæknis setti SÁÁ úrslitakosti í síðustu viku og tilkynnti að ef ekkert yrði að gert á næstu tveimur virkum dögum þyrfti að loka sjúkrahúsinu Vogi. Til að forðast þetta þyrfti sérfræðilæknir að gangast við faglegri ábyrgð á heilbrigðisstarfseminni fyrir klukkan 16 síðasta mánudag. Innlent 20.9.2026 10:01
Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Deilan sem hefur skekið SÁÁ er ekki fyrsta dæmið um að Valgerður Rúnarsdóttir bregðist við ákvörðunum stjórnar samtakanna með uppsögn, opinberri gagnrýni og þrýstingi á að ákvarðanir verði dregnar til baka. Skoðun 20.9.2026 07:30
Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Fyrrverandi framkvæmdastjóri SÁÁ líkir átökum innan samtakanna við „klassíska valdabaráttu“ og sakar fráfarandi forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga hafa ætlað að sölsa undir sig völd. Hann óttast samt að brotthvarf reynslumikils framkvæmdastjóra muni draga úr gæðum heilbrigðisþjónustu SÁÁ og vonast til að fundin verði leið fyrir hana aftur til starfa, þó með skýrari verkaskiptingu. „En tvo þarf til.“ Innlent 19.9.2026 16:02
Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Forstjóri SÁÁ sagði upp störfum þann 6. ágúst. Hún sætti sig ekki við áherslur stjórnar SÁÁ um forgangsröðun og nýjar áherslur í þjónustu samtakanna. Né heldur sætti hún sig við afskipti stjórnar SÁÁ af innleiðingu samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Skoðun 19.9.2026 08:32
Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Valgerður Rúnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, segir að mikilvæg þekking glatist á sérhæfðri fíknimeðferð með brotthvarfi yfirstjórnarinnar. Búið er að ráða í stöðuna hennar. Innlent 18.9.2026 12:44
„Ég er hreinlega mjög hrædd“ „Það sem er mér kannski efst í huga er hversu margir þurfa að víkja fyrir eina manneskju,“ segir fráfarandi fagstjóri á Vík um formann SÁÁ. „Hún er tilbúin að sitja sem fastast þrátt fyrir að spilaborgin sé að hrynja í kringum hana og hún ætlar samt ekki að fara neitt. Það er í rauninni magnað að sjá hvernig hún telur sér trú um að hún geti endurvakið traust starfsmanna.“ Innlent 17.9.2026 08:00
Ráða nýjan forstjóra þvert á ósk framkvæmdastjóra Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin nýr forstjóri SÁÁ. Ráðningin kemur í kjölfar þess að starfslokasamningur var gerður við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, fráfarandi forstjóra. Óánægja er með þá ákvörðun meðal starfsfólks á meðferðarsviði SÁÁ og sögðu framkvæmdastjóri lækninga og fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík upp störfum í kjölfarið. Báðar hafa farið fram á að Ragnheiður verði fengin aftur í forstjórastöðuna. Innlent 16.9.2026 16:07
48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Sem aðstandandi hef ég fylgst með þeirri ókyrrð sem ríkt hefur innan SÁÁ að undanförnu af miklum þunga. Fólkið okkar, dætur, synir, foreldrar og systkini, má síst af öllu við því að óvissa, átök og trúnaðarbrestur ríki í því kerfi sem á að taka á móti því þegar það er hvað viðkvæmast. Skoðun 16.9.2026 12:02
Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Aðalstjórn SÁÁ segir í forgangi að funda með starfsfólki og tryggja „vinnufrið, öryggi og traust“ innan samtakanna. Aðalstjórn lýsir í ályktun yfir stuðningi við framkvæmdastjórn SÁÁ í þeirri vinnu framkvæmdastjórnar sem miðar að því að tryggja að heilbrigðisþjónusta samtakanna haldi áfram. Stjórn ætlar ekki að ræða við fjölmiðla um málið samkvæmt tilkynningu. Innlent 15.9.2026 10:01
Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ segir að vantrautsyfirlýsing starfsmanna sé litin alvarlegum augum. Hún vill ekki tjá sig um hvort afsögn komi til greina og segist trúa að hægt sé að byggja upp traust þó staðan sé erfið. Innlent 12.9.2026 12:57
Enn þykknar upp hjá SÁÁ Stór hluti starfsfólks á meðferðarsviði SÁÁ hefur lýst yfir vantrausti á formann samtakanna og framkvæmdastjórn þeirra. Alvarleg staða sé komin upp og kallað eftir því að tryggt verði með skýrum hætti að stjórn félagsins virði faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfs SÁÁ. Innlent 11.9.2026 16:21
„Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Landlæknir lítur átök innan SÁÁ mjög alvarlegum augum en starfsemi samtakanna er nú til skoðunar hjá embættinu. Mikilvægast sé að tryggja öryggi og gæði þjónustu að mati landlæknis sem telur uppsagnir áhyggjuefni. Innlent 10.9.2026 12:03
Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar Rótin, félag um konur, áföll og vímugjafa, segir átök innan SÁÁ vera enn eina birtingarmynd langvarandi veikleika í skipulagi þeirrar þjónustu sem samtökin reka. Ríkið eigi að tryggja að skýr mörk séu á milli framkvæmdastjórnar SÁÁ og faglegrar yfirstjórnar sjúkrahússins Vogs og annarrar þjónustu. Innlent 9.9.2026 16:44
Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Sá ágreiningur sem nú hefur komið upp innan SÁÁ er að mínu mati orðinn bæði óheppilegur og óþarflega persónulegur. Þegar rætt er um jafn mikilvæga starfsemi og þjónustu við fólk sem glímir við fíknivanda verður umræðan að byggjast á yfirvegun, fagmennsku og gagnkvæmri virðingu. Skoðun 5.9.2026 23:56
„Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Formaður SÁÁ gefur lítið fyrir þá gagnrýni sem hún og stjórn samtakanna hafa mætt síðustu daga og segir ekkert til í því að hún hafi logið að starfsmönnum. Innlent 5.9.2026 12:33
Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Fráfarandi fagstjóri á Vík, meðferðarstöð SÁÁ, fordæmir vinnubrögð stjórnar SÁÁ og segir fullreynt að heilbrigðisþjónusta sem þessi sé á forræði félagasamtaka. Hún kallar eftir því að stjórnvöld grípi inn í og hefur miklar áhyggjur af framtíð meðferðarstarfsins. Þá segir hún að formaður SÁÁ hafi logið því opinberlega þegar hún sagðist ekki hafa frétt af uppsögn annars stjórnanda. Innlent 4.9.2026 21:54
SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ ætlar að hætta störfum en bæði forstjóri samtakanna og fagstjóri hættu í síðasta mánuði. Lækningastjórinn tilkynnti starfsfólki um þetta í morgun. Innlent 1.9.2026 12:34
Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér „Oft er þetta fólk sem er í vinnu og hefur kannski fyrirtæki og er í miklum umsvifum og er bara um það bil að missa allt frá sér vegna neyslunnar. Hún er dýr og krefst þess líka að fá meira og aftur og þetta verður mikil áþján fyrir einstaklinginn og fjölskyldu hans að sjálfsögðu.“ Þetta segir Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, um þann fjölbreytta hóp sem sæki sér aðstoðar vegna kókaínfíknar. Innlent 1.7.2026 21:47
„Ég sé að hann er löngu farinn“ Arnhildur Reynisdóttir átti yndislegan son, Leó Ásgeirsson, en hann lét lífið fyrir tveimur árum á meðan hann beið vongóður eftir að komast í lífsnauðsynlega meðferð í Krýsuvík. En þar er nú 120 manna biðlisti eftir meðferð. Lífið 11.2.2026 11:02