Sjálfstæðisflokkurinn
1 2 3 4 5 6 … 120 ›
Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Meirihlutaviðræður eru hafnar á þó nokkrum stöðum, meðal annars á Akureyri og í Skagafirði, þar sem útlit er fyrir að Framsóknarflokkurinn verði ekki í meirihluta í fyrsta sinn um árabil. Oddviti Framsóknar segir tíðindin koma sér í opna skjöldu. Innlent 18.5.2026 12:02
Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp Oddviti Sjálfstæðisflokksins mun í dag funda með oddvitum allra framboða sem náðu fulltrúa inn í borgarstjórn. Prófessor í stjórnmálafræði segir Hildi Björnsdóttur með öll tromp á hendi og standa frammi fyrir pólitísku vali um meirihluta í íhalds- eða frjálslyndisátt. Innlent 18.5.2026 12:02
Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Byggðalistinn og Sjálfstæðisflokkur hafa hafið óformlegar meirihlutaviðræður í Skagafirði. Verði af því samstarfi lýkur um tuttugu ára samfelldri sögu Framsóknarflokksins í meirihluta í sveitarfélaginu. Innlent 18.5.2026 10:01
Áttu góðan og langan fund í dag Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fundaði í dag með sínu fólki. Hún segir fundinn hafa verið bæði langan og góðan, þar hafi auðvitað verið fagnað en mögulegir meirihlutar einnig ræddir. Innlent 17.5.2026 18:43
Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Meirihlutaviðræður eru hafnar á Akureyri í dag, daginn eftir sveitarstjórnarkosningar, þar sem L-listinn og Sjálfstæðisflokkurinn vilja skipta út Miðflokknum fyrir Framsókn til þess að halda meirihlutasamstarfi sínu áfram. Innlent 17.5.2026 17:55
Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Meirihlutasamstarf flokka hélt í 25 sveitarstjórnum í kjölfar nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga en féll í þrettán. Það var helst Sjálfstæðisflokkurinn sem náði að halda meirihlutasamstarfinu. Innlent 17.5.2026 17:13
Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Formenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins segja niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna áfellisdóm yfir ríkisstjórninni og vísbendingu um hvernig fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla fer. Innlent 17.5.2026 12:43
„Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Borgarlínan gæti verið skipt öllu máli þegar næsti borgarstjórnarmeirihluti verður skrúfaður saman. Það segja þau Björg Magnúsdóttir hjá Viðreisn, Einar Þorsteinsson hjá Framsókn og Sanna Magdalena Mörtudóttur hjá Vinstrinu, sem mættu á Sprengisand og fóru yfir niðurstöður í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Innlent 17.5.2026 11:24
Meirihlutaviðræður í vikunni Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hyggst funda með oddvitum hinna flokkanna í vikunni með meirihlutaviðræður í huga eftir að flokkurinn vann stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum. Oddviti Samfylkingarinnar er „drullusvekktur“ á meðan oddviti Miðflokksins hampar honum fyrir varnarsigur. Innlent 17.5.2026 10:52
Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta D-listinn í Húnabyggð bætti við sig manni í sveitarstjórnarkosningunum í gær og á nú fimm sveitarstjórnarmenn af níu. Hann ræður þannig meirihluta. Innlent 17.5.2026 09:40
Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Stefán Pálsson, sem er þriðji maður á lista Vinstrisins í Reykjavík, sér fram á annað kjörtímabil á bekknum – sér til nokkurrar hrellingar. Framboðið náði tveimur mönnum inn í Reykjavík sem eru þá Sanna Magdalena Mörtudóttir og Líf Magneudóttir. Stefán sleikir sárin. Gauti B. Eggertsson hagfræðiprófessor telur að afskipti Kristrúnar Frostadóttur hafi verið mistök. Innlent 17.5.2026 08:59
Hildur með pálmann í höndunum Sjálfstæðisflokkurinn situr í bílstjórasætinu eftir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík í gær og getur ýmist myndað hægri meirihluta með Miðflokknum eða miðju hægri meirihluta með Framsókn og Viðreisn. Samfylkingin hefur aldrei fengið eins dræma kosningu í höfuðborginni og vinstri meirihluti er útilokaður. Innlent 17.5.2026 06:34
Lokatölur í Garðabæ: Sjálfstæðismenn bæta við sig fulltrúa Sjálfstæðisflokkurinn bar yfirburðasigur úr býtum í Garðabæ og bætti þar við sig einum bæjarfulltrúa frá síðustu kosningum. Hann hefur enn hreinan meirihluta. Innlent 16.5.2026 05:04
Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Samkvæmt lokatölum í Reykjavík fær Sjálfstæðisflokkurinn níu borgarfulltrúa og getur enn myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokki eða þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Framsókn. Innlent 17.5.2026 04:07
Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir að oddvitar annarra flokka séu farnir að hvísla ástarorðum eftir að Sjálfstæðisflokkurinn bar sigur úr býtum í sveitarstjórnarkosningum í nótt, samkvæmt nýjustu tölum. Innlent 17.5.2026 03:48
Lokatölur úr Fjarðabyggð: Meirihlutinn heldur þrátt fyrir missi Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur í Fjarðabyggð, en missir einn fulltrúa milli kosninga. Framsókn missir einn sömuleiðis en flokkarnir halda þó meirihluta sínum. Samfylkingin og Miðflokkurinn eru með sitthvora tvo. Innlent 16.5.2026 05:04
Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylking tapar fulltrúum og meirihluti heldur Samfylkingin missti tvo menn sem Framsókn og Viðreisn hirtu í Hafnarfirði. Miðflokkurinn fékk einnig mann inn. Innlent 16.5.2026 05:04
Getur ekki lengur myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum Samkvæmt nýjustu tölum fær Sjálfstæðisflokkurinn átta fulltrúa í Reykjavík sem slær möguleikann á tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum úr myndinni. Aftur á móti fær Framsókn tvo og Viðreisn tvo sem gerir þeim kleift að mynda saman meirihluta með Sjálfstæðisflokknum. Innlent 17.5.2026 03:20
Lokatölur í Mosfellsbæ: Meirihlutinn kolfallinn Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig einum manni í Mosfellsbæ og er stærstur flokka með fimm menn. Meirihlutinn er kolfallinn með aðeins fjóra menn. Innlent 16.5.2026 05:04
Lokatölur úr Fjallabyggð: Meirihlutinn heldur velli Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einum fulltrúa frá síðustu kosningum og er með þrjá. Nýr listi, Listi fyrir heildina fær tvo. Listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar fær einnig tvo. Jafnaðarmannafélagið og Sjálfstæðisflokkur mynda í dag meirihluta og heldur hann velli samkvæmt þessu. Innlent 16.5.2026 05:03
Lokatölur á Akureyri: Sjálfstæðismenn rétt mörðu Bæjarlistann Bæjarlistinn á Akureyri tapar manni og því er meirihluti hans, Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins fallinn. Samfylkingin græddi fulltrúa á kostnað Bæjarlistans og Akureyrarlistinn náði manni inn. Innlent 16.5.2026 05:04
Lokatölur í Árborg: Sjálfstæðisflokkur hélt hreinum meirihluta Á kjörskrá í Sveitarfélaginu Árborg eru 9.567 manns. Ellefu bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn. Innlent 16.5.2026 05:04
Lokatölur í Borgarbyggð og Skorradalshreppi: Meirihlutinn fallinn Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps samkvæmt lokatölum í sveitarstjórnarkosningum. Meirihluti Framsóknarflokksins er fallinn. Innlent 16.5.2026 05:04
Lokatölur í Múlaþingi: Meirihlutinn bætir við sig Meirihlutinn heldur í Múlaþingi og Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig manni á kostnað Austurlistans. Innlent 16.5.2026 05:04
Lokatölur úr Hrunamannahreppi: Meirihluti D-listans heldur velli Meirihluti D-listans heldur velli í Hrunamannahreppi þar sem hann fær aftur þrjá kjörna fulltrúa í sveitarstjórn. Innlent 17.5.2026 02:19
Lokatölur í Reykjanesbæ: Sjálfstæðismenn fara með stórsigur af hólmi Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig tveimur mönnum og Samfylkingin tapar einum í Reykjanesbæ. Framsóknarmenn halda sínum þremur en Viðreisn fær engan mann kjörinn. Innlent 16.5.2026 05:04
Lokatölur í Hveragerði: Meirihlutinn fallinn Meirihluti O-lista Okkar Hveragerðis og Framsóknar er fallinn eftir sveitarkosningarnar sem fram fóru í dag. Baðir flokkar misstu sitt hvorn manninn, en Sjálfstæðisflokkur og Samfylking bættu við sig manni. Innlent 16.5.2026 05:04
Hildur segir nýjan meirihluta þurfa breiða skírskotun Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segist líta til Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks hvað varði meirihluta, þá sitthvoran kostinn. Báðir séu einfaldasta leiðin að myndun meirihluta en Hildur segist vilja mynda meirihluta með breiða skírskotun sem geti endurreist traust til borgarstjórnar. Innlent 17.5.2026 02:09
Lokatölur í Skagafirði: Byggðalistinn vinnur stórt en meirihlutinn heldur Byggðalistinn bætti við sig fulltrúa í sveitarstjórn Skagafjarðar en meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks heldur velli. Þessir síðarnefndu skiptast þó á einum fulltrúa. Innlent 16.5.2026 05:04
Lokatölur á Akranesi: Meirihlutinn missti mann en heldur Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingar á Akranesi hélt velli en missti en fækkaði þó í liðinu um einn. Þetta varð ljóst eftir að yfirkjörstjórn birti lokatölur sínar á öðrum tímanum í nótt. Innlent 16.5.2026 05:04