Heilbrigðismál

Fréttamynd

Endósamtökin lýsa yfir þungum á­hyggjum

Endósamtökin lýsa yfir þungum áhyggjum í ljósi þess að Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að fækka niðurgreiddum aðgerðum einkarekinnar stofu vegna sjúkdómsins. Samtökin skora á Heilbrigðisráðuneytið að endurskoða ákvörðunina og óska eftir auknu samráði í mótun á þjónustu.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er aftur­för í þjónustu við konur með endómetríósu“

Heilbrigðisráðuneytið hefur gert Sjúkratryggingum Íslands að semja við Klíníkina í Ármúla um að framkvæma hundrað aðgerðir á árinu vegna endómetríósu. Það eru um helmingi færri en árið áður. Skurðlæknir hjá Klíníkinni sem framkvæmir slíkar aðgerðir segir ákvörðunina lengja biðlista til muna.

Innlent
Fréttamynd

Karlar, piltar og strákar

Eftir að hafa lesið góðan pistil Þrá­ins Farest­veit, af­brota­fræðing­s og fram­kvæmda­stjóra Vernd­ar, í Morgunblaðinu langar mig að stinga niður penna og taka saman nokkrar tölfræðiupplýsingar sem byggja á opinberum tölum og rannsóknum frá Hagstofu Íslands, Fangelsismálastofnun, Landlæknisembættinu og Vinnueftirlitinu (sjá að neðan).

Skoðun
Fréttamynd

Hvað er þetta MG?

MG stendur fyrir Myasthenia Gravis sem er sjaldgæfur sjálfsofnæmis taugasjúkdómur. Hjá fólki með MG ræðst líkaminn á viðtaka í vöðvum sem eiga að taka við taugaboðumefnum sem segja vöðvanum að hreyfast. En boðin komast ekki til skila, vöðvarnir hreyfast lítið sem ekkert, hægist á þeim og þeir lamast í raun.

Skoðun
Fréttamynd

Púslið sem passar ekki

Sú upplifun er veruleiki margra einhverfra einstaklinga, einkum þeirra sem hafa náð fullorðinsaldri. Þeir finna sig ekki innan þess kerfis sem samfélagið hefur byggt – ekki af því að þeir passi ekki, heldur af því að kerfið hefur ekki verið hannað með þá í huga.

Skoðun
Fréttamynd

Nikótínpúðar vinsælastir

Dagleg notkun nikótínpúða eykst meðal Íslendinga og eru þeir algengasta neysluform nikótíns. Hins vegar dregst jafnt og þétt úr reykingum sígaretta en eru þær vinsælastar meðal fólks eldra en 55 ára.

Innlent
Fréttamynd

„Ozempic tennur“ meðal auka­verkana þyngdarstjórnunarlyfja

Ozempic tennur og Ozempic tunga er meðal mögulegra aukaverkana af notkun þyngdarstjórnunarlyfja sem tannlæknar víða um heim velta fyrir sér núna. Íslenskur tannlæknir segir ekki búið að sanna orsakasamhengi milli notkunar lyfjanna og versnandi tannheilsu en þau geti vissulega valdið verulegum munnþurrki sem geti haft slæmar afleiðingar.

Innlent
Fréttamynd

NordAN: Vegið að nor­rænni forvarnarstefnu

Um síðustu aldamót, nánar tiltekið í september árið 2000, leit NordAN dagsins ljós. Það eru samtök sem beita sér fyrir rannsóknum á sviði áfengismála, vilja vita hvað er rétt og hvað er rangt svo styðjast megi við staðreyndir þegar stefna í áfengismálum er mótuð. Markmiðið er að draga eftir því sem kostur er úr skaðlegri neyslu áfengis og annarra vímuefna.

Skoðun
Fréttamynd

Gigt, vinnu­markaðurinn, fjölgun hlutastarfa og við­eig­andi að­lögun

Í maí hefur Gigtarfélagið verið með vitundarvakningarmánuð til að vekja athygli á gigt og gigtarsjúkdómum og þeim víðtæku áhrifum sem hún hefur á sjúklinginn og þá sem næst honum standa. Gigt hefur ekki aðeins áhrif á líkamlega líðan og lífsgæði heldur hefur hún áhrif á alla þætti lífsins, þar með talið getuna til atvinnuþátttöku.

Skoðun
Fréttamynd

Mikill munur á að­gengi að líknar­með­ferð í Evrópu

Ný skýrsla yfir líknarmeðferð í Evrópu var gefin af Evrópsku líknarsamtökunum, European Association for Palliative Care (EAPC) 29. maí á Evrópudegi líknarmeðferðar sem í ár er tileinkaður aðgengilegri líknarmeðferð fyrir alla sem á þurfa að halda.

Skoðun
Fréttamynd

Lagði Livio sem þarf að punga út 25 milljónum króna

Frjósemismiðstöðin Livio hefur verið dæmd til að greiða fyrrverandi starfsmanni á þriðja tug milljóna króna. Ekki þótti sannað að Ingunn Jónsdóttir hefði brotið skilyrði um að stofna ekki eigin frjósemisstofu sem voru að finna í samningi Ingunnar við Livio.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Að eldast á Ís­landi

„Að eldast á Íslandi“ er yfirskrift fjórða fundarins í fundaröð Heilbrigðisvísindasviðs HÍ, Heilsan okkar. Fundurinn stendur milli klukkan 11:30 og 13 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan. 

Innlent
Fréttamynd

Ber fyrir sig minnis­leysi á verknaðarstundu

Sigurður Fannar Þórsson, karlmaður á fimmtugsaldri sem sætir ákæru um að hafa ráðið tíu ára dóttur sinni bana í september í fyrra, ber fyrir sig minnisleysi á verknaðarstundu. Hann er metinn sakhæfur samkvæmt yfirmati geðlæknis. Aðalmeðferð fer fram í júní og verður þinghald lokað.

Innlent
Fréttamynd

Hefja á­tak í HPV-bólu­setningu í vetur

Bólusetningar á drengjum gegn HPV-veirunni upp í átján ára aldur hefjast næsta vetur eftir að heilbrigðisráðherra ákvað að veita auknu fjármagni til þess að útvíkka bólusetningarnar. Bóluefni gegn veirunni eykur vörn gegn krabbameinum.

Innlent