Þjóðadeild karla í fótbolta

Fréttamynd

Gylfi Þór kemur inn í byrjunar­lið Ís­lands

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari gerir tvær breytingar á byrjunarliði Íslands milli leikja. Gylfi Þór Sigurðsson kemur inn á miðjuna gegn Lúxemborg ytra í Þjóðadeild UEFA í kvöld og Logi Tómasson kemur inn í vörnina.

Fótbolti
Fréttamynd

Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl

Stefán Árni Pálsson er ekki hrifinn af Gerson Rodrigues sóknarmanni Lúxemborgar sem missir af leik kvöldsins við Ísland í Þjóðadeildinni. Farið var yfir málin á leikdag í Lúxemborg.

Fótbolti
Fréttamynd

Pressa á Arnari

Pressa er á Arnari Gunnlaugssyni, landsliðsþjálfara, sem og karlalandsliðinu í fótbolta fyrir útileik við Lúxemborg í dag. U21 árs landsliðið mætir þá Sviss í leik sem þarf að vinnast ef EM vonin á að lifa.

Sport
Fréttamynd

Heimir gaf frí

Eftir þunga og langa daga, auk 3-0 sigurs á Ísrael í Ungverjalandi gaf Heimir Hallgrímsson leikmönnum írska karlalandsliðsins verðskuldað frí í gær. Enn er írska liðið þó í auga stormsins, enda stutt í næstu viðureign við Ísrael sem verður engu minna milli tannana á fólki.

Fótbolti
Fréttamynd

Arnar um pressuna: „Það vilja allir núna vera með hnífana úti“

„Þetta var alveg nett þunglyndið eftir leikinn á laugardaginn. Eins og á að vera eftir vonbrigðaúrslit. Svo horfum við á leikinn aftur og að mörgu leyti var hann nokkuð góður. Það voru móment sem við hefðum getað gert miklu betur,“ segir Arnar Gunnlaugsson á Stade de Luxembourgh í gær fyrir leikinn gegn heimamönnum í Þjóðadeildinni í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Kristall fékk tveggja leikja bann

Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Kristall Máni Ingason leikmaður Brann, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann í norsku úrvalsdeildinni fyrir brot sem hann fékk rautt spjald fyrir í leik gegn Bodo/Glimt á dögunum.

Fótbolti
Fréttamynd

Ítalir völtuðu yfir Tyrki í Tyrk­landi

Ítalir unnu sinn fyrsta leik eftir endurkomu Roberto Mancini sem þjálfari liðsins í kvöld þegar liðið náði í afar sterkan útisigur á móti Tyrkjum í A-deild Þjóðadeildar UEFA. Lokatölur 4-1 sigur Ítalíu.

Fótbolti
Fréttamynd

Olise reyndist hetja Frakka í Belgíu

Michael Olise reyndist hetja Frakka sem höfðu betur gegn Belgíu á útivelli í A-deild Þjóðadeildar UEFA í kvöld. Sigurmarkið kom undir lok leiks. Lokatölur 1-0 sigur Frakka.

Fótbolti
Fréttamynd

Megum ekki detta niður á þeirra plan

Fyrir þremur árum lék íslenska karlalandsliðið við Lúxemborg og tapaði þeim leik 3-1. Hákon Arnar Haraldsson var þá í liðinu og man vel eftir þeim leik.

Sport
Fréttamynd

Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna

Andri Lucas Guðjohnsen, landsliðsmaður í fótbolta, er genginn út. Hann er í sambandi með enska pílateskennaranum Madi Woodruff. Andri hefur byrjað nýtt tímabil gríðarlega vel. 

Lífið
Fréttamynd

„Hluti af vegferðinni“

Jürgen Klopp, landsliðsþjálfari Þýskalands, segir fyrsta tap sitt í starfi fyrir Grikkjum í gær vera hluta af vegferðinni hjá nýju þýsku landsliði.

Fótbolti
Fréttamynd

Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs

Tveir leikir fóru fram í A-deild Þjóðardeildarinnar í kvöld þar sem Noregur tók á móti Portúgal og Þýskaland tók á móti Grikklandi. Portúgal náði að sækja 2-1 sigur í Noregi og Grikkland vann óvænt í Þýskalandi 1-0.

Fótbolti
Fréttamynd

Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“

Kári Árnason, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður Íslands í fótbolta gagnrýndi orkustigið í leik íslenska landsliðsins í jafntefli gegn Eistlandi í gær. Hann spyr sig hvers vegna menn sína ekki jafn mikinn anda og baráttu eins og má sjá í Instagram myndböndum frá æfingu liðsins. 

Fótbolti