IKEA

Fréttamynd

Hvað veistu um… IKEA?

IKEA er fyrirtæki sem stofnað var í Svíþjóð árið 1943 og sérhæfir sig í hönnun og sölu á húsgögnum og heimilisvörum. Áhersla hefur verið lögð á sjálfsafgreiðslu, flatpakkningar og að viðskiptavinir setji húsgögnin saman sjálfir í þeim tilgangi að halda verðinu niðri.

Lífið
Fréttamynd

Apinn að vaxa upp úr apabangsanum

Munaðarlausi makakíapinn Punch, sem öðlaðist nýverið heimsfrægð vegna sambands við órangútanbangsa úr Ikea, er sagður byrjaður að vaxa upp úr notkun bangsans og tekinn að aðlagast betur samfélagi apa í Ichikawa-dýragarði.

Lífið
Fréttamynd

Boð­beri jólanna risinn á ný

Ár hvert spyrja landsmenn sig hvenær það sé ásættanlegt að skreyta fyrirtæki og heimili fyrir jólin. Nú má gera ráð fyrir að fólk keppist við að klára að útbúa jólaauglýsingar og skreytingar því boðberinn sjálfur er mættur. IKEA-geitin hefur risið á ný.

Lífið
Fréttamynd

Aug­lýsinga­skilti lýsti upp allan Garða­bæ

Bilun í búnaði olli því að nýtt auglýsingaskilti við Ikea skein á hæsta styrk um helgina og lýsti upp allan Garðabæ svo um munaði. Íbúi á Flötunum segist elska Ikea en honum hafi þótt ofurskært auglýsingaskiltið fullmikið, þótt hann hafi sloppið við að kveikja á útiljósunum heima hjá sér um helgina.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri hluta­störf: „Viltu vera memm?“

„Við erum sem dæmi með 48 þjóðerni í starfi hjá okkur og höfum því sannarlega reynslu af því að starfa með fólki með ólíkan bakgrunn og menningu,“ segir Vaka Ágústsdóttir mannauðsstjóri IKEA.

Atvinnulíf
Fréttamynd

Ikea sakað um grænþvott: „Slökkvið á mynda­vélunum“

Á hverri sekúndu er fellt tré í þeim tilgangi gera timbrið að ódýru Ikea-húsgagni. Fyrirtækið heldur því fram að húsgangaframleiðsla þess sé með öllu sjálfbær. „En er það svo?“ spyrja þáttargerðamenn Danska ríkisútvarpsins, DR, í nýrri heimildarmynd þar sem skógar í eigu Ikea í Rúmeníu eru heimsóttir. Svæðið hefur að geyma einhverja elstu skóga á meginlandi Evrópu sem óháðir sérfræðingar, að sögn framleiðanda þáttarins, segja að Ikea gangi of nærri.

Erlent
Fréttamynd

Geitin er risin fyrr en nokkru sinni

IKEA-geitin er risin í Kauptúni og er sérstaklega snemma á ferðinni. Hún hefur undanfarin ár verið tendruð um miðjan október en er nú komin á sinn stað nokkrum dögum fyrr.

Lífið
Fréttamynd

Fyrsta fatalínan í sögu Ikea mætt til landsins

Forsvarsmenn Ikea á Íslandi hafa sett fyrstu fatalínuna í sögu húsgagnarisans í sölu hér á landi. Þannig er í fyrsta skipti hægt að versla sér Ikea peysur, Ikea hatt og Ikea regnhlíf svo eitthvað sé nefnt en þó einungis á meðan birgðir endast.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lækka og festa vöru­verð til árs­loka

IKEA á Íslandi hefur ákveðið að lækka vöruverð á rúmlega sex þúsund vörum frá og með deginum í dag og festir sömuleiðis vöruverð til ársloka 2024. Er þetta meðal annars gert til að greiða fyrir því að SA og verkalýðshreyfingin landi „skynsamlegum“ kjarasamningum sem fyrst.

Neytendur
Fréttamynd

Styttri leið úr IKEA einungis tíma­bundin

Glöggir viðskiptavinir IKEA hafa tekið eftir að leiðin að afgreiðslukassa verslunarinnar og út er talsvert styttri en vanalega. Þó er ekki um að ræða langtímabreytingu heldur einungis tímabundna lausn til þess að standast reglur um eldvarnir meðan á framkvæmdum stendur. 

Neytendur
Fréttamynd

Ikea hættir við­skiptum við Rapyd

Húsgagnaverslunin IKEA er ekki lengur í viðskiptum við ísraelska sprotafyrirtækið Rapyd. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar hefur IKEA nú fært viðskipti sín yfir til íslenska fjártæknifyrirtækisins Teya, áður SaltPay.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Áttunda áratugnum gefið nýtt líf

Sænski húsgagnaframleiðandinn IKEA fagnar áttatíu árum og í tilefni stórafmælisins hefur nokkrum vinsælum og þekktum vörum verið gefið nýtt líf. 

Lífið