Krakkar

Fréttamynd

Fúlir for­eldrar fá svarta spjaldið

Foreldrar sem fara yfir strikið með hegðun sinni og köllum á fótboltaleikjum yngri flokka í Rúmeníu geta nú átt á hættu að svarta spjaldið fari á loft. Þá er leik einfaldlega hætt og gamanið á enda fyrir alla.

Fótbolti
Fréttamynd

„Við skírðum hana Halla Sykur­vatn Tómatsósu­dóttir“

Erfðaefni og maurar er á meðal þess sem nemendur fræðast um í Vísindaskóla Náttúrusafns Kópavogs og umsjónarmaður segir mikilvægt að kynna náttúruna fyrir börnum. Mauradrottningin er í sérstöku uppáhaldi og óhætt að segja að hún hafi fengið áhugavert nafn.

Innlent
Fréttamynd

Manst þú eftir þessum sí­gildu sumarleikjum?

Nú þegar sumarið er brostið á og flestöll börn komin í sumarfrí eru eflaust margir að velta fyrir sér hvað skal finna sér til dægrastyttingar. Þá eru fjölmörg námskeið í boði og afþreying svo sem leikhús og bíó en Jón Axel Ólafsson, fjölmiðla- og athafnamaður, tók saman lista yfir leiki sem eru margir hverjir landsmönnum ylhýrir en aðrir sem hafa mögulega fallið í gleymskunnar dá.

Lífið
Fréttamynd

Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn á Kársnesi

Krakkarnir á Kársnesi hópast nú í hjólastrætó en þá hjóla börn og foreldrar saman í skólann. Þau læra að hjóla í umferðinni og mættu yfir hundrað hjólagarpar þegar fyrsta ferðin var farin. Mikið fjör var í morgun þegar strætóinn var ræstur af stað.

Innlent
Fréttamynd

Kerfis­villa leið­rétt og spýtu­kofinn fær að standa

Um­hverfis- og skipu­lags­svið Reykja­víkur­borgar hefur leitt deiluna um framtíð spýtu­kofans við Lyng­haga til farsælla lykta og hann fær að standa áfram með ósköp ein­faldri lausn á því sem virðist hafa verið til­búið kerfislægt vanda­mál og sann­kallaður stormur í vatns­glasi.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum bara að mót­mæla“

Reykjavíkurborg vill að kofi sem börn hafa byggt í sameiningu við Lynghaga í Reykjavík verði fjarlægður þar sem hann er ekki öryggisvottaður. Börnin eru ekki ánægð og segja nær alla í hverfinu hafa skrifað nafn sitt við undirskriftalista þar sem áætlunum borgarinnar er mótmælt.

Innlent
Fréttamynd

Sungið, saumað og sprellað á ösku­daginn

Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í dag og venju samkvæmt fóru börnin á stjá í alls kyns flottum búningum og söfnuðu sælgæti í poka. Þá var dagskrá í skólum landsins víða með öðru sniði og spenningurinn áþreifanlegur.

Lífið
Fréttamynd

Skauta­svell á Stokks­eyri slær í gegn

Íbúum á Stokkeyri þykir fátt skemmtilegra en að bregða sér á skauta á stóru svelli í þorpinu en mikil hefð er fyrir skautamenningu á staðnum. Kona, sem býr í Danmörku en er í heimsókn á Íslandi, segir skautasvellið á Stokkseyri algjöra paradís.

Lífið
Fréttamynd

Myndaveisla: Glæsi­leg frum­sýning Zootropolis 2 í Kringlunni

Síðastliðinn sunnudag var stór dagur í Sambíóunum Kringlunni þegar frumsýning á hinni löngu beðnu Zootropolis 2 fór fram við mikla viðhöfn. Gestir streymdu í bíóið og skapaðist skemmtileg og lífleg stemning á meðan beðið var eftir að fá að sjá nýjustu ævintýri hetjanna frá Zootropolis.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Fyrsti ís­lenskumælandi bónda­bærinn slær í gegn

Það eru ekki bara skáldin sem fagna degi íslenskrar tungu á sunnudaginn 16. nóvember heldur líka kindur, kýr og bangsar. Í bóndabæ Chicco tala dýrin nefnilega á hreinni íslensku og kenna börnum orð, tölur og litina í gegnum leik og söng. Óhætt er að segja að Chicco bóndabærinn hafi slegið í gegn hjá litlum málfræðingum.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Fellaskóli vann Skrekk

Fellaskóli vann Skrekk 2025, hæfileikakeppni grunnskóla í Reykjavík. Atriði nemendanna fjallaði um pressu sem fylgir því að upplifa væntingar annarra.

Lífið
Fréttamynd

Láta forræðis­hyggju hinna full­orðnu ekki fipa sig

Í dag fór fram hrekkjavaka og var henni fagnað víða þar sem börn klæða sig í búninga og ganga í hús í leit að sælgæti. Veðurspá setti áætlanir úr skorðum en veðrið truflaði ekki krakkana á hrekkjavökuballi í Fossvogi í Reykjavík.

Lífið