„Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ Tugir íslenskra rithöfunda hafa orðið fyrir barðinu á svindlurum sem reyna að svíkja fé af þeim með því að selja þeim falska kynningu á ritverkum þeirra á erlendri grundu. 26.7.2026 15:34
„Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ „Það kom enginn að tala við okkur. Það voru engar upplýsingar. Við stóðum og sátum eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja, allar geðveikt pirraðar og búnar á því. Klukkan var svo seint um nóttina. Síðan horfum við í kringum okkur og sjáum bara einhverjar fjölskyldur og krakka sofandi í ferðatösku. Það var líka einhver eldgömul kona að rífa kjaft við alla.“ 26.7.2026 13:43
Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrr í dag til að sinna sjúkraflutningum vegna bráðra veikinda manns rétt vestan við Hellu. Hann var fluttur á Landspítalann í snatri. 25.7.2026 16:42
Komst undan ásamt fjölskyldunni „Þetta er auðvitað ógnvænlegt en maður óskar fólkinu sem býr hérna velfarnaðar og að þetta gangi hratt yfir. Maður sendir hlýhug til þeirra sem þetta snertir með beinni hætti en okkur sem erum nú bara túristar hér í sumarfríi.“ 25.7.2026 16:01
Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ „Í þorpinu hjá henni var alveg dimmt og það rigndi niður ösku frá himninum. Það var svolítið súrrealískt. Það má segja að þetta hafi verið dálítið óhugnanlegt.“ 25.7.2026 14:04
Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um hádegisleytið í dag vegna elds sem kom upp í sumarbústað við Suðurlandsveg, rétt fyrir ofan Gunnarshólma. 25.7.2026 12:27
Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum 270 þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín í Suðurhluta Evrópu. Gróðureldar geisa enn víð í Frakklandi og á Spáni og hafa langar bílaraðir myndast víða. Við ræðum við Íslending sem býr tuttugu mínútum frá Madríd en hún aðstoðaði tengdasystur sína við að flýja heimili sitt í gær. 25.7.2026 11:54
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Það kom til átaka þegar hópur ungmenna, sem eru sextán, sautján og átján ára gömul, voru saman komin við Rafstöðvarveg í Elliðaárdal í Reykjavík í gærkvöldi. 25.7.2026 11:42
Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Manni sem var kastað fram af svölum blokkar í túnunum í Reykjavík um fjögurleytið í gær hlaut líklega beinbrot en er, samkvæmt upplýsingum lögreglu, útskrifaður af sjúkrahúsi. Málið er rannsakað sem stórfelld líkamsárás. 25.7.2026 11:37
„Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Dóttir konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja segir frávísun málsins í héraðsdómi mikil vonbrigði. Hún bindur vonir við að málinu verði snúið við í Landsrétti og segir það þurfa að hafa afleiðingar að bana einhverjum. 22.7.2026 19:31