Minnsta fylgi Framsóknar í 33 ára sögu þjóðarpúlsins Samfylkingin bætir við sig einu prósentustigi milli mánaða í þjóðarpúlsi Gallup, úr 29,4 prósentum í 30,7 prósent. Framsóknarflokkurinn hefur aldrei mælst með minna fylgi en flokkurinn stendur samkvæmt könnuninni í 5,5 prósentum. 2.6.2025 20:05
Vilja ný og öruggari bílastæði á samningslausu landi gróðrarstöðvar Stjórn Knattspyrnufélagsins Víkings krefst þess að borgin afhendi félaginu svæði við Stjörnugróf svo hægt sé að hefja viðræður um uppbyggingu félagsins á svæðinu. Gróðrarstöðin Mörk hefur staðið samningslaus á svæðinu í níu ár. Framkvæmdastjóri Víkings segir ný og öruggari bílastæði fyrsta mál á dagskrá verði svæðið afhent félaginu. 2.6.2025 19:05
Klúðursleg rannsókn lögreglu leiddi til sýknu skipstjóra Héraðsdómur Vestfjarða hefur sýknað karlmann af ákæru fyrir brot á siglingalögum með því að hafa sýnt af sér gáleysi í starfi sínu sem skipstjóri þegar hann sigldi bát upp í grjótgarð nærri höfninni í Hólmavík. Dómari taldi mikla ágalla á rannsókn lögreglu á málinu. 30.5.2025 11:24
Heilt þorp varð undir aurskriðu í Sviss Þorp í svissnesku Ölpunum er nærri alfarið í rúst eftir að aurskriða féll á þorpið í gær. Eins er enn saknað. 29.5.2025 13:50
Svæðið sem Veitur vilja girða „óþarflega stórt“ Jarðfræðingur segir svæði sem Veitur áforma um að girða af í Heiðmörk í þágu vatnsverndar óþarflega stórt. Hann leggur endurskilgreiningu vatnsverndarsvæðisins og bindur vonir við að Veitur, sem standa fyrir breytingunum, hinkri með framkvæmdir í Heiðmörk. Sjálfbærnistjóri segir forgangsröðunina einfalda; vatnið fyrst og aðrir hagsmunir síðan. 29.5.2025 13:33
ESB skammar Shein: Falskir afslættir og villandi upplýsingar Neytendayfirvöld í Evrópu og Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafa hafa tilkynnt kínverska netverslunarrisanum Shein að hann brjóti í bága við fjölmörg neytendaverndarlög sambandsins. Stofnunin beinir því til Shein að aðlaga viðskiptahætti sína að löggjöf ESB. 29.5.2025 10:13
Dómur yfir Bergvini óbreyttur en þarf að greiða hærri miskabætur Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Suðurlands yfir Bergvini Oddssyni, fyrrverandi formanni Blindrafélags Íslands, fyrir kynferðislega áreitni gegn þremur konum á veitingastað og hosteli í Vestmannaeyjum. 29.5.2025 09:32
Dómstóll ógilti tollahækkanir Trump Dómstóll í Bandaríkjunum hefur komist að þeirri niðurstöðu að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi farið út fyrir valdheimildir sínar þegar hann fyrirskipaði tollahækkanir á fjölmörg ríki fyrr á árinu í skjóli laga um neyðarvald. 29.5.2025 08:49
Skin og skúrir í dag Í dag, uppstigningardag, er spáð svipuðu veðri og var í gær. Fremur hægri breytilegri átt með skúrum nokkuð víða, sérstaklega síðdegis en þá geta orðið nokkuð öflugar dembur sums staðar inn til landsins. 29.5.2025 07:50
Fjórtán ára á rúntinum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði fjórtán ára barn sem ók um í Reykjavík í nótt, eðli málsins samkvæmt án ökuréttinda. 29.5.2025 07:33
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf