Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Alls hefur fimm brottförum á vegum Icelandair frá Keflavíkurflugvelli verið aflýst í dag. Um er að ræða þrjá áfangastaði í Evrópu og tvo í Bandaríkjunum. 23.5.2026 11:24
Almennur borgari veitti bílnum eftirför Það vakti áhyggjur ónefndra, ábyrgra borgara þegar þeir sáu bíl sem rásaði miðsvæðis í Reykjavík í nótt. Eftir að hafa tilkynnt um ökumanninn til lögreglu veittu þeir bílnum eftirför uns lögregla kom á staðinn. 23.5.2026 10:12
Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Skarphéðinn Berg Steinarsson hefur verið ráðinn til tveggja ára sem verkefnisstjóri forsætisráðuneytisins í málefnum Grindavíkur. Skarphéðinn hefur setið í Grindavíkurnefnd frá vorinu 2025. Hann mun stýra samhæfingu af hálfu ríkisins varðandi Reykjaneselda og uppbyggingu Grindavíkurbæjar. Verkefnisstjóri í málefnum Grindavíkur mun eiga náið samstarf við Grindavíkurbæ, lögreglu og almannavarnir, svo eitthvað sé nefnt. 21.5.2026 15:54
Kristinn verður áfram bæjarstjóri Í Snæfellsbæ var Sjálfstæðisflokkurinn einn í framboði og var því sjálfkjörið í sveitarstjórn. Til að fagna kjördeginum og gera fólki dagamun hélt framboðið kosningakaffi á kjördag. 21.5.2026 14:17
Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Ástu Laufeyju Aðalsteinsdóttur í embætti skólameistara Borgarholtsskóla til fimm ára frá 1. júlí næstkomandi. Umsækjendur um starfið voru tveir. 21.5.2026 13:27
Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna verða afhent verða í Osló í dag, fimmtudaginn 21. maí kl. 13:30. Nýsköpunarfyrirtækið Hefring Marine er tilnefnt til verðlaunanna fyrir Íslands hönd. Fyrirtækið hefur þróað snjallsiglingarkerfi sem nýtir gervigreind til að birta skipsstjórnendum leiðsögn í rauntíma. Fylgjast má með afhendingu verðlaunanna í beinu streymi hér að neðan. 21.5.2026 13:11
Skatturinn birtir álagningu í dag Niðurstöður álagningar einstaklinga 2026, vegna tekna 2025, verða birtar á þjónustuvef Skattsins í dag, 21. maí. Fyrir þau heppnu verða inneignir greiddar út 1. júní. Fyrir þau sem nýta upphaf sumars til að gefa til baka verður upplýsingum um skuldir komið til launagreiðanda. 21.5.2026 11:35
Skipuð rektor MH fyrst kvenna Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Helgu Jóhannsdóttur í embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð. Helga er fyrsta konan til að vera skipuð rektor MH. Helga hefur starfað við skólann í yfir 30 ár sem kennari, konrektor og nú síðast sem settur rektor. 21.5.2026 10:47
Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Útlit er fyrir að rúmlega eitt þúsund íslenskir framhaldsskólanemar verði á grísku eynni Krít í byrjun júní. Stórt verkefni er að koma öllum til og frá eynni og þarf að nýta leiguflug til að ferja mannskapinn. 21.5.2026 06:47
Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Vörður hefur bætt frjósemisvernd við hefðbundnar sjúkdómatryggingar. Er það í fyrsta sinn á Íslandi sem tryggingavernd tekur á þessum vanda. Frjósemisverndin hefur það að markmiði að vera stuðningur við fólk ef það greinist með ófrjósemi og þarf að gangast undir frjósemismeðferð. Umræða um frjósemisvanda hefur aukist mjög á síðustu árum og er talið að einn af hverjum sex glími við ófrjósemi. 20.5.2026 16:19