Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Varað er við hviðum allt að þrjátíu metrum á sekúndu í vindstrengjum frá því seint í kvöld fram á hádegi á morgun á landinu suðaustanverðu. 24.7.2026 11:50
Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Matvælastofnun (MAST) telur nauðsynlegt að bregðast við og koma á framfæri skýringum vegna meintra annmarka á skráningu eftirlitsgagna vegna hvalveiða. Vísir birti fyrr í dag frétt upp úr yfirlýsingu Hvalavina, samtaka sem berjast gegn hvalveiðum. 23.7.2026 17:40
Laun hækka umfram verðbólgu Hagstofan hefur birt tölur fyrir júnímánuð og hækkaði launavísitala um 0,2 prósent frá fyrri mánuði. Greint var frá því fyrr í morgun að verðbólga hækki milli mánaða en hún mælist nú 5,3 prósent á ársgrundvelli. 23.7.2026 14:36
Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Air China hefur hafið sölu á flugferðum frá Keflavík til Peking, höfuðborgar Kína. Jómfrúarflugið verður 26. október næstkomandi en Air China er eitt stærsta flugfélag heims og ríkisflugfélag Kína. 23.7.2026 12:00
Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Neyðarlínan hefur kynnt varanúmerið 599-0112 ef ekki næst í 112. Vakin er athygli á því í tilkynningu að símtöl í þetta númer séu höndluð sem almenn símtöl og njóti ekki sama forgangs og ef hringt sé beint í 112. Því sé mikilvægt að hringja enn fyrst í 112. 23.7.2026 11:19
Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Hvalavinir segja eftirlitsskýrslur Matvælastofnunar (MAST) vegna hvalveiða sýna að langdregin dauðastríð dýranna séu enn algeng. Þá séu annmarkar á skráningu eftirlitsgagna. Opinberar skýrslur séu aðeins tuttugu og ein á meðan veidd dýr séu tuttugu og fjögur. 23.7.2026 10:55
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Fram til þessa hefur 44 kaupsamningum verið þinglýst þar sem notað er svokallað sameignarfyrirkomulag. Fyrirkomulagið hafur nú verið til staðar í tíu mánuði en HMS segir að útbreiðsla þess sé enn takmörkuð. Sjóðir sem buðu upp á slíkt sameignarfyrirkomulag spruttu upp eins og gorkúlur síðasta haust og báru heiti eins og SAFÍR20, REIR20, Kauplykill og ÞG Sjóður. 23.7.2026 08:00
Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Samruni Paramount-Skydance og Warner Bros Discovery hefur verið settur á bið í tvær vikur samkvæmt úrskurði alríkisdómara í Bandaríkjunum. Ástæðan er málsókn tólf ríkissaksóknara sem vilja koma í veg fyrir hann. 21.7.2026 15:35
Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Maður er sakaður um að hafa slegið Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra breska Íhaldsflokksins, alls tuttugu og einu sinni með hamri í höfuðið. Widdecombe hafði síðustu ár verið áberandi meðlimur hins breska Umbótaflokks (e. Reform). 21.7.2026 14:50
Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað stjórn Landspítala til næstu tveggja ára. Formaður nýrrar stjórnar er Regína Ásvaldsdóttir, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Varaformaður verður Birna Einarsdóttir, áður bankastjóri Íslandsbanka árin 2008 til 2023. 21.7.2026 13:41