Fréttamaður

Rafn Ágúst Ragnarsson

Rafn Ágúst er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Hefja söfnun fyrir geðheilbrigðisúrræði í minningu Bryn­dísar Klöru

Vitundarvakningu og söfnun fyrir Bryndísarhlíð, nýja þjónustumiðstöð og geðheilbrigðisúrræði fyrir börn og ungmenni sem hafa orðið fyrir ofbeldi, var ýtt úr vör í Iðnó í gær. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands flutti ávarp við tilefnið en hún er jafnframt verndari Minningarsjóðs Bryndísar Klöru.

Starbucks frestar opnun fram í lok sumars

Opnun kaffihúsa Starbucks á Íslandi hefur verið frestað fram í ágúst. Framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi segir ástæðu tafanna vera seinagangur við leyfisveitingar. Ný reglugerð borgarinnar um hollustuhætti hafi tafið ferlið enn frekar.

Banda­rískar her­stöðvar verða reistar í Dan­mörku

Stór meirihluti á danska þinginu samþykkti í gær að rýmka rétt Bandaríkjanna til hernaðarlegrar viðveru í Danmörku. Bandaríkjamenn munu fara með lögsögu yfir  hermönnum sínum í Danmörku og hafa aðgang að þremur flugherstöðvum á Jótlandi.

Newsom ætlar að kæra Trump

Gavin Newsom, ríkisstjóri í Kaliforníu, ætlar að höfða mál á hendur ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta, fyrir að senda þjóðvarðliða til Los Angeles án þess að ráðfæra sig við sig. Hann segir forsetann „farinn af hjörunum.“

Sóttu veikan sjó­mann

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna veikinda um borð í fiskipskipi um hundrað sjómílum vestur af Snæfellsnesi. Einn var sóttur og fluttur á sjúkrahús.

Konan er fundin

Konan sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í dag er komin í leitirnar. 

Ekki hægt að nota raf­ræn skil­ríki

Ekki er hægt að nota rafræn skilríki í farsímum vegna bilunar hjá Auðkenni. Auðkennissmáforritið virkar enn. Verið er að greina vandamálið.

Nefndirnar sem smíða orðin: Lýðnetið víkur fyrir inter­netinu og þjarki fyrir bóta

Lýðnetið víkur fyrir internetinu og þjarki og yrki víkja fyrir bóta og botta. Tæplega 500 orðum var á dögunum bætt við tölvuorðasafnið sem er hluti af íðorðabanka Árnastofnunar. Fólkið sem situr í orðanefndum fagorðasafna sinnir vanmetnu starfi í þágu viðnámsþróttar íslenskunnar en sannkölluð breiðfylking tekur þátt í þessu framlínustarfi.

Sjá meira