Stimpingar milli mótmælenda á Austurvelli Stimpingar brutust út á milli einstakra mótmælenda sem saman eru komnir í miðbæ Reykjavíkur í dag og tilheyra sitt hvorum hópnum. Tvenn mótmæli, önnur gegn stefnu sjórnvalda í útlendingamálum og hin gegn rasisma, voru boðuð í dag. Á samfélagsmiðlum var því hótað að mótmælin yrðu ekki friðsamleg. 31.5.2025 15:06
Tíundi hver með ágætiseinkunn í MR Menntaskólanum í Reykjavík var slitið í 179. sinn við hátíðlega athöfn í Háskólabíó í gær þar sem 194 stúdentar brautskráðust. Matthildur Bjarnadóttir dúxaði með einkunnina 9,65 og var tíundi hver nemandi með ágætiseinkunn. 31.5.2025 13:49
Segir Viðskiptablaðið og Samstöðina fara rangt með mál um Ásthildi Lóu Framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins segir fullyrðingar Viðskiptablaðsins og Samstöðvarinnar um að Ásthildur Lóa Þórsdóttir, fyrrverandi barnamálaráðherra, ætli aldrei framar að ræða við fréttastofu Rúv vera rangar. Hún hafi neitað Rúv um viðtal þegar hún sneri aftur á Alþingi. 31.5.2025 12:47
Zion sakaður um tvær nauðganir, heimilisofbeldi og líflátshótanir Körfuboltamaðurinn Zion Williamson, sem spilar fyrir New Orleans Pelicans, hefur verið sakaður um tvær nauðganir, heimilisofbeldi og áralanga ofbeldisfulla hegðun í málsókn sem höfðuð var fyrir dómstólum í Los Angeles á fimmtudag. 31.5.2025 11:02
Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Fjölskyldumeðferðarfræðingur segir mótlæti, þakklæti og samanburð við önnur pör vera það helsta sem einkennir hamingjusöm pör. Ástin hafi óþolandi mikil áhrif á hamingju fólks bæði til góðs og ills. Hamingjusöm pör séu fimmfalt afkastameiri en aðrir. 30.5.2025 12:13
Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Súperstjarnan Sydney Sweeney hefur bráðlega sölu á sápunni Baðvatnssæla Sydneyar sem er framleidd úr baðvatni leikkonunnar. Sweeney segir sápuna tilkomna vegna reglulegra beiðna aðdáenda um að fá sýni af baðvatni hennar. 30.5.2025 09:51
Kærir Costner fyrir „ofbeldisfulla óundirbúna“ nauðgunarsenu Áhættuleikari hefur kært leikstjórann Kevin Costner og framleiðendur Horizon 2 fyrir að hafa þvingað hana til þátttöku í nauðgunarsenu sem var hvorki í handriti né á tökudagskrá og var skotin með stuttum fyrirvara án nándarþjálfa (e. intimacy coordinator). 30.5.2025 08:25
Sofandi á byggingarsvæðinu og „í vandræðum með vin sinn“ Lögregla var kölluð til vegna tveggja mann sem höfðu brotist inn á byggingarsvæði í vesturbæ Reykjavíkur. Þegar lögregla kom á vettvang reyndust mennirnir sofandi innandyra og voru þeir handteknir og vistaðir í fangaklefa vegna húsbrots. 30.5.2025 06:36
Fólk flytur á landsbyggðina fyrir ódýrara húsnæði og rólegra umhverfi Búsetuóskir um sérbýli, einkagarð og fjölskylduvænt umhverfi er meginástæður flutnings fólks af höfuðborgarsvæðinu út á land. Fólk sættir sig við lengri ferðatíma til vinnu á höfuðborgarsvæðinu til að uppfylla þessar óskir og einfalda daglegt líf. 28.5.2025 11:15
Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Stjórn Íslandsbanka hefur óskað eftir því við stjórn Kviku banka að hafnar verði samrunaviðræður milli félaganna tveggja. Stjórn Arion banka óskaði eftir því í gær við stjórn Kviku að hafnar yrðu samrunaviðræður milli Arion og Kviku. 28.5.2025 09:25