Fréttamaður

Lovísa Arnardóttir

Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Tala látinna hækkar og gremja í­búa eykst

Tala látinna í Venesúela í kjölfar tveggja stórra jarðskjálfta í síðustu viku hefur hækkað og er nú 1.430. Tilkynnt hefur verið um að að minnsta kosti 68.900 séu týnd nú þegar fjórir dagar eru liðnir frá því að eftir að tveir jarðskjálftar, 7,2 og 7,5 að stærð, lögðu Suður-Ameríkuþjóðina í rúst.

Réðst að hópi drengja í sund­laug

Karlmaður réðst að hópi drengja í sundlaug í vesturhluta borgarinnar eftir að þeir renndu sér á eftir honum í rennibraut og lentu á manninum og ungum syni hans. Greint er frá málinu í dagbók lögreglu en ekki er tekið fram hvar atvikið átti sér stað.

Væta með stífri norð­austan­átt

Í dag er spáð norðaustan átta til 15 metrum á sekúndu og víða rigningu. Samkvæmt spá verður hvassast norðvestantil og með suðausturströndinni. Síðdegis á að draga úr vindi og væta af og til í flestum landshlutum. Hiti verður á bilinu sjö til 15 stig, hlýjast fyrir norðan.

„Málið er í öllu til­liti afar ó­heppi­legt“

Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, segir mál Margrétar Friðriksdóttur og ítrekaðar áminningar lögmanns til úrskurðarnefndar lögmanna til þess fallið að grafa undan trausti á dómstólum og til lögmanna, sem saman séu tveir hornsteinar réttarríkisins. Hann segir vægi réttarríkisins hafa orðið æ meira á liðnum áratugum og segir mikilvægt að gæta þess að borgarar geti treyst á dómstóla og lögmenn.

Stór skjálfti í Afgan­istan

Jarðskjálfti að stærð 6,2 reið yfir Afganistan í dag. Í erlendum miðlum kemur fram að skjálftinn hafi einnig fundist í norðurhluta Indlands og í Pakistan.

Hitamet slegið í Dan­mörku: Börnin að bráðna inni á sófanum

Nýtt hitamet hefur verið slegið í Ødum á Austur-Jótlandi þar sem hiti mældist 37 gráður í dag. Elinóra Guðmundsdóttir býr í Kaupmannahöfn þar sem hiti hefur einnig verið verulegur. Hún segir nánast óbærilegt úti og hún hafi þurft að halda börnunum inni.

Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst

Rétt rúmlega helmingur landsmanna, 52 prósent, telur líklegast að ef atkvæðagreiðslan færi fram núna myndi hann greiða atkvæði með því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný en rétt tæplega helmingur, 48 prósent, telur líklegast að hann greiddi atkvæði gegn því.

Nú­verandi hita­bylgja „sú al­var­legasta sem mælst hefur“

Útlit er fyrir að hitamet verði slegin víðs vegar um Evrópu í dag. Búist er við því að hiti verði allt að 34 stig í Danmörku. Gefin hefur verið út rauð viðvörun víða um álfuna og búist við því að hiti nái allt að 40 stigum í Þýskalandi og Hollandi. Á Balkanskaga á einnig hiti að vera verulegur. Tugir hafa látist í Frakklandi og Spáni síðustu daga og þar á meðal fjögur ung börn.

For­eldrar standi eftir „einir, ör­magna og án stuðnings“

Ingibjörg Einarsdóttir, móðir eins drengsins sem fór til Suður-Afríku í meðferð, segist ekki hafa þurft að lesa nýja skýrslu Ríkisendurskoðunar um innleiðingu farsældarlaganna til að vita að barnaverndarkerfið sé að bregðast þeim börnum sem þurfa á mestri aðstoð að halda. Hún segir tíma til að framkvæma frekar en að „skrifa falleg lög“.

Sjá meira