Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Sævar Lárusson, öryggistjóri Vegagerðarinnar, segir fótinn þyngjast þegar sólin hækkar á lofti, rannsóknir sýni það. Ökumenn eigi þó að fara gætilega. Sævar ræddi öryggismál í Bítinu á Bylgjunni en Vegagerðin er víða í framkvæmdum og verður áfram í sumar. 16.5.2025 08:37
Óvíst hvar börnin lenda í haust Hluta leikskólans Hagaborgar við Fornhaga verður lokað eftir sumarlokun og börn færð í annað húsnæði sem þó á enn eftir að finna. Mygla og myglugró hafa greinst í leikskólanum. Einni deild hefur verið lokað og tvö rými skermuð af. 16.5.2025 06:31
Nýtt hitamet slegið á Egilsstöðum Nýtt landshitamet í maímánuði var slegið á Egilsstaðaflugvelli í dag þar sem hiti mældist 25,8°C fyrr í dag. Hitametið var áður 25,6°C og var sett á Vopnafirði þann 26.maí 1992. 15.5.2025 13:46
Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Úlfari Lúðvíkssyni var boðið starf lögreglustjórans á Austurlandi á fundi með ráðherra án þess að þurfa að sækja starfið gegn því að hann myndi láta af störfum sem lögreglustjóri á Suðurnesjum. Úlfar afþakkaði það á fundi og lét svo af störfum sem lögreglustjóri. Frá þessu er greint á vef mbl.is og er vísað í fundargerð af fundi ráðherra og lögreglustjórans. 15.5.2025 12:59
Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Alls voru 81.277 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. maí síðastliðinn og fjölgaði þeim um 731 einstaklinga frá 1. desember 2024 eða um 0,9 prósent samkvæmt tilkynningu frá Þjóðskrá. 15.5.2025 11:00
Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Guðrún Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Stefs, segir tónlistarmönnum órótt yfir þeirri þróun sem á sér stað í tónlistargerð með tilkomu gervigreindar. Rannsóknir hafi sýnt að þriðjungur af tekjum tónhöfunda gæti horfið með tilkomu gervigreindar. 15.5.2025 10:17
Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Bjarni Þór Logason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags. Bjarni kemur þaðan frá Heimkaupum þar sem hann var innkaupastjóri. Bjarni kom einnig að opnun verslunar Prís í Kópavogi. Áður starfaði hann sem rekstrarstjóri hjá Ölgerðinni, RJC og Líflandi. 15.5.2025 08:34
Gæti náð 24 stigum þar sem best lætur Í dag verður áfram hæg og breytileg átt og víða bjartviðri, en suðlæg átt átta til fimmtán metrar á sekúndu suðvestan- og vestanlands og skýjað með köflum. Hiti verður á bilinu 13 til 23 stig, hlýjast verður væntanlega áfram á Norður- og Austurlandi, um 23-24 stig þar sem best lætur. 15.5.2025 08:16
Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Pílustaðnum Skor hefur verið meinað að hafa opið lengur á kvöldin samkvæmt úrskurði umhverfis- og auðlindamála. Þar staðfesti nefndin ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 10. janúar 2025 um að synja umsókn um aukinn opnunartíma fyrir veitingastaðinn Skor. 14.5.2025 14:23
Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Faxaflóahafnir hafa nú fjárfest í DPOL fljótandi „ruslsugu“ frá fyrirtækinu EKKOPOL í Frakklandi. DPOL er fljótandi vatnsdæla sem myndar sterkan yfirborðsstraum sem sýgur til sín yfirborðsrusl, olíubrák og fljótandi grút, sem svo safnast í áfesta netapoka og ísogspylsur. 14.5.2025 12:34
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf