Hafnar tillögu um að verja fimm prósentum í varnamál Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, hefur hafnað tillögu NATO um að framlög aðildarríkja til varnarmála verði hækkuð í fimm prósent af vergri landsframleiðslu. Hann segist vilja sveigjanlegri formúlu og að slík markmið séu ekki aðeins ósanngjörn heldur hafi þau einnig þveröfug áhrif. 20.6.2025 08:15
Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Íþróttabandalag Akraness (ÍA) og Terra hafa hafið formlegt samstarf um markvissari úrgangsflokkun á íþróttaviðburðum. Byrjað verður á Norðurálsmótinu sem fer fram á Akranesi í vikunni og um helgina. 20.6.2025 06:54
Utanríkisráðherrar funda um Íran í Genf Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, fundar í dag í Genf með utanríkisráðherrum Bretlands, Frakklands og Þýskalands. Markmið fundarinst er að reyna að finna diplómatíska lausn við stríði Ísrael og Íran. Donald Trump hefur tilkynnt að hann ætli að gefa sér tvær vikur til að ákveða hvort hann blandi sér í stríðið. 20.6.2025 06:44
Fangar fluttir á spítala nokkrum sinnum á ári vegna ofneyslu vímuefna Fangar eru fluttir nokkrum sinnum á ári á spítala vegna gruns um ofnotkun vímuefna. Í nánast hverri viku koma upp mál þar sem fangaverðir leggja hald á lyf eða fíkniefni. Þetta kemur fram í svari frá Fangelsismálastofnun um umfang vímuefnanotkunar í fangelsum. 20.6.2025 06:30
Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Ragga Gísla og Hipsumhapps snúa bökum saman og koma fram í sameiningu í fyrsta sinn á tónlistarhátíðinni Innipúkanum í Reykjavík um verslunarmannahelgina, 1. til 3. ágúst. Hátíðin flytur sig nú um set og verður haldinn í Austurbæjarbíó í stað Ingólfsstrætis þar sem hátíðin hefur verið haldin síðustu ár. 19.6.2025 11:59
Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Tæpur helmingur sérbýla sem eru til sölu á höfuðborgarsvæðinu kostar meira en 150 milljónir. Verð á sérbýlum hefur hækkað um átta prósent á milli ára á sama tíma og fjölbýli hefur hækkað um fimm prósent. Aldrei hefur verið jafn lítið byggt af sérbýlum. 19.6.2025 07:34
Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala Fjöldi er særður á spítala í suðurhluta Ísrael eftir að íranskri eldflaug var skotið á spítalann snemma í morgun. Í erlendum miðlum segir að haft sé eftir stjórnendum að miklar skemmdir séu á spítalanum og að myndefni frá Ísrael sýni glugga springa og svartan reyk leggja frá húsinu við sprenginguna. 19.6.2025 06:50
Konur geta tryggt sig á meðgöngu í fyrsta sinn Sjóvá kynnir í dag, á kvenréttindadeginum, nýja tegund tryggingarverndar sem sérstaklega er hönnuð fyrir barnshafandi konur. Meðgöngutrygging er fyrsta sinnar tegundar hér á landi en er að norrænni fyrirmynd. Tryggingin kostar 30 þúsund krónur. Bætur eru eingreiðslur og geta numið allt að einni og hálfri milljón. 19.6.2025 06:45
Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Rétt eftir klukkan tvö í nótt var slökkvilið kallað til vegna bruna í Efnalauginni á Háaleitisbraut. Í dagbók lögreglunnar segir að lögregla og slökkvilið hafi verið send með forgangi vegna mikils elds. Slökkviliði hafi gengið greiðlega að ráða niðurlögum eldsins. 19.6.2025 06:06
Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Aðstandendur Kvennaárs blása til Kvennavöku að kvöldi dags í Hljómskálagarðinum þann 19. júní, á morgun. Tilefnið er meðal annars 110 ára afmæli kosningarréttar kvenna, en árið í ár hefur verið skilgreint sem sérstakt Kvennaár, þar sem ýmissa sögulegra tímamóta er minnst og kröfur um fullnaðarjafnrétti settar fram. 18.6.2025 12:12