Mun fleiri létust á Spáni en opinberar tölur benda til Dánartíðni á Spáni margfaldaðist í samanburði við venjulegt ár þegar kórónuveirufaraldurinn var í hámarki í apríl samkvæmt nýjum opinberum gögnum. Þau benda til þess að enn fleiri hafi látið lífið af völdum veirunnar en opinberar tölur segja til um. 3.6.2020 14:02
Efast um forsendur rannsóknar á malaríulyfi gegn Covid-19 Breska læknaritið Lancet lýsti í gær áhyggjum af því að gögn sem notuð voru í rannsókn sem komst að þeirri niðurstöðu að malaríulyf tengdist auknum dánarlíkum hjá sjúklingum með Covid-19 væru ekki áreiðanleg. Lyfið og notkun þess hefur orðið hápólitísk eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti mærði það sem töfralausn við kórónuveiruheimsfaraldrinum. 3.6.2020 13:11
Ekkert smit en fólki í sóttkví fjölgar Enn greinist ekkert nýtt kórónuveirusmit á Íslandi, fjórða daginn í röð. Fólki í sóttkví fjölgaði hins vegar um 67 á milli daga. 3.6.2020 13:07
Viðurkennir að Svíar hefðu átt að gera betur Sænsk stjórnvöld hefðu átt að taka kórónuveirufaraldurinn fastari tökum en þau gerðu eftir á að hyggja. Þetta viðurkennir Anders Tegnell, sóttvarnalæknir Svíþjóðar. Að ráðleggingum hans gengu Svíar mun skemur í aðgerðum til að hefta útbreiðslu veirunnar en flestar aðrar þjóðir og er dánartíðnin í Svíþjóð með þeirri hæstu í heiminum. 3.6.2020 11:47
Umdeildum þingmanni hafnað og Biden við það að sigra Kjósendur Repúblikanaflokksins í Iowa höfnuðu umdeildum þingmanni sínum sem sóttist eftir tíunda kjörtímabili sínu í forvali í gær. Joe Biden, fyrrverandi varaforseti, er við það að tryggja sér útnefningu demókrata sem forsetaframbjóðandi eftir kosningarnar sem fóru fram í skugga kórónuveirufaraldurs og mótmælaöldu vegna dráps á blökkumanni í haldi lögreglu. 3.6.2020 11:04
Þjóðverjar afnema ferðatakmarkanir til Íslands Ferðatakmörkunum sem hafa verið í gildi í Þýskalandi vegna kórónuveirufaraldursins gagnvart Evrópusambandslöndum, Bretlandi auk Íslands, Noregs, Liechtenstein og Sviss verður aflétt með fyrirvörum frá og með 15. júní. 3.6.2020 09:36
Biden segir Bandaríkin þurfa að taka á kerfisbundnum rasisma Bandaríkin skortir forystu á tíma þegar þau þurfa að taka á kerfisbundinni kynþáttahyggju í kjölfar dauða blökkumanns í haldi lögreglu í síðustu viku, að sögn Joe Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna. Í fyrstu í Fíladelfíu deildi Biden hart á Donald Trump forseta fyrir viðbrögð hans við mótmælum undanfarinna daga. 2.6.2020 16:39
Skimun á landamærunum lágmarkar áhættu en eyðir henni ekki Sóttvarnalæknir mælir með því að stefnt verði að því að hefja skimun ferðamanna fyrir kórónuveiru á Keflavíkurflugvelli sem fyrst til að reynsla fáist af henni á meðan ferðamannastraumur er enn ekki mikill. Í minnisblaði til heilbrigðisráðherra segir sóttvarnalæknir skimunina draga úr áhættu á að smitaðir ferðamenn komi til landsins en komi ekki algerlega í veg fyrir það. 2.6.2020 15:36
Fimm lögreglumenn skotnir í mótmælum vestanhafs Að minnsta kosti fimm lögreglumenn eru sagðir hafa orðið fyrir byssukúlum í mótmælum vegna dauða blökkumanns í haldi lögreglu í gærkvöldi. Lögreglumennirnir eru ekki taldir lífshættulega særðir. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að beita hernum til að stöðva mótmæli og óeirðir. 2.6.2020 13:39
Engin breyting á fjölda smitaðra Ekkert nýtt tilfelli kórónuveiru greindist á Íslandi síðasta sólarhringinn samkvæmt nýjum tölum landlæknis og almannavarna. Þetta var þriðji dagurinn í röð sem ekkert nýtt smit greindist en aðeins einstaka smit hafa greinst undanfarnar vikur. 2.6.2020 13:13