Verulegur munur í ávöxtun innlendra sjóða með virka stýringu síðustu þrjú ár Verulegur munur er á gengi yfir tuttugu innlendra fjárfestingarsjóða sem beita virkri stýringu á undanförnum þremur árum, sem hafa einkennst af krefjandi markaðsaðstæðum hér á landi, en uppsöfnuð ávöxtun þess sjóðs sem hefur skarað fram úr er um 150 prósent á meðan þeir sjóðir sem reka lestina eru niður um ríflega 70 prósent. Stjórnendur rafmyntasjóðsins Visku telja að ný heimsmynd, sem muni meðal annars mótast af tollastríði og aukinni geópólitískri spennu, kalli á róttæka endurskoðun á eignasafni fjárfesta. 10.6.2025 07:50
Telur Nova verulega undirverðlagt og segir félagið „augljóst“ yfirtökuskotmark Núna þegar Nova er byrjað á vaxtarvegferð, eftir kaupin á minnihluta í Dineout, ásamt því að ráða yfir meiri innviðum en hin fjarskiptafyrirtækin þá er félagið meðal annars „augljóst“ yfirtökuskotmark, að mati hlutabréfagreinanda. Í frumskýrslu um Nova er félagið verðmetið langt yfir núverandi markaðsgengi, nokkuð hærra en hjá öðrum greinendum, en hlutabréfaverðið tók mikið stökk á markaði sama dag og hún birtist. 9.6.2025 07:49
Mæla með sölu í SVN og hækka áhættuálag vegna pólitískrar óvissu Þrátt fyrir traustan rekstur og sterka framlegð í síðasta uppgjöri hafa greinendur IFS lækkað virðismat sitt á Síldarvinnslunni, verðmætasta sjávarútvegsfélagið í Kauphöllinni, og mæla nú með því að fjárfestar minnki við stöðu sína í fyrirtækinu. Í nýrri umfjöllun greiningarfyrirtækisins er meðal annars nefnt að greinendur þess hafi ákveðið að hækka áhættuálag á félög í sjávarútvegi um heila 150 punkta vegna „sérstakrar óvissu“ sem umlykur greinina, meðal annars vegna boðaðrar hækkunar á veiðigjöldum. 7.6.2025 10:54
Íris Björk ráðin nýr yfirlögfræðingur SFF Íris Björk Hreinsdóttir, sem hefur meðal annars starfað um árabil sem lögmaður hjá Arion banka, hefur verið ráðin yfirlögfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF). Tekur Íris við starfinu af Jónu Björk, sem hefur unnið hjá SFF samfellt frá árinu 2008, en hún er að fara yfir til Landsbankans. 6.6.2025 11:20
Hækka verðmatið um ríflega tvöfalt og telja vanmetin tækifæri í lyfjapípu Oculis Eftir viðræður við lækna og aðra sérfræðinga um þær niðurstöður sem Oculis kynnti fyrr á árinu úr klínískum rannsóknum á OCS-05, lyf sem gæti veitt taugaverndandi meðferð við sjaldgæfum augnsjúkdómum, hefur bandarískur fjárfestingarbanki hækkað verðmatsgengi sitt á félaginu um meira en tvöfalt. Greinendur hans telja að lyfið, eitt af þremur sem eru í þróun hjá Oculis, sé „verulega vanmetið tækifæri“ og geti eitt og sér mögulega skilað milljörðum dala í tekjum fyrir félagið. 6.6.2025 09:22
Forstjóri Alvotech er „í skýjunum“ með að fá inn fjörutíu nýja erlenda sjóði Erlendir fjárfestar, einkum sænskir og norskir, voru með samanlagt um níutíu prósenta hlutdeild þegar Alvotech kláraði seint í gærkvöldi jafnvirði um tíu milljarða króna hlutafjárútboð. „Markmiðið var að fá inn erlenda fjárfestingarsjóði, ekki sem mestan pening,“ segir forstjóri Alvotech, en talsverð umframeftirspurn var í útboðinu. 5.6.2025 11:08
„Af hverju vilja stjórnvöld ekki fá innvið afhentan á silfurfati eftir tuttugu ár?“ Framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs furðar sig á því „af hverju í ósköpunum“ stjórnvöld hafi ekki farið meira þá leið við uppbyggingu mannvirkja hér á landi, eins og var gert í tilfelli Hvalfjarðarganga, að efna til samstarfs við fjárfesta og geta þannig fengið afhentan innvið á silfurfati til sín eftir kannski tuttugu ár þegar einkaaðilar séu búnir að reka hann í samræmi við reglur. Hann situr núna í starfshópi um mögulega stórfellda íbúðauppbyggingu í Úlfársdal en segir að það eigi eftir að koma í ljóst hvort lífeyrissjóðum verði treyst til að hafa aðkomu að því verkefni. 5.6.2025 06:32
Alvotech efnir til um tíu milljarða útboðs til að „breikka“ hluthafahópinn Nokkrum vikum eftir að Alvotech var skráð á markað í Stokkhólmi hefur það ákveðið að fara í útboð á um 7,5 milljónum sænskra heimildarskírteina og hlutabréfa í félaginu, jafnvirði nærri ellefu milljarða íslenskra króna miðað við núverandi hlutabréfaverð, sem verður einkum beint að sænskum fjárfestum í því skyni að „breikka og styrkja“ hlutahafahópinn. Gengi bréfa félagsins á markaði í Bandaríkjunum lækkaði nokkuð skarpt eftir að tilkynnt var um útboðið. 4.6.2025 17:50
Sveiflur á erlendum fjármálamörkuðum gætu haft áhrif á efnahagshorfur Mikilvægt er að standa vörð um viðnámsþrótt fjármálakerfisins vegna þeirrar miklu óvissu sem er á alþjóðlegum fjármálamörkuðum sem kann að hafa áhrif á efnahagshorfur hér á landi, segir fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans. Þótt fasteignaverð sé „enn hátt á alla mælikvarða“ þá fer spenna á fasteignamarkaði minnkandi. 4.6.2025 08:44
Fjárfestar minnka skortstöður sínar í Alvotech í fyrsta sinn á árinu Eftir að fjárfestar höfðu stækkað nánast stöðugt skortstöður sínar í bréfum Alvotech á markaði vestanhafs minnkaði umfang þeirra nokkuð á fyrstu vikum maímánaðar í fyrsta sinn á þessu ári. Hlutabréfaverð Alvotech er upp um nærri fimmtíu prósent á fáeinum vikum og er nú komið á sama stað og það var áður en gengið tók mikla dýfu í lok marsmánaðar. 2.6.2025 08:42