Kröftug einkaneysla dreif áfram hagvöxt sem fór langt fram úr væntingum Fyrsta mat Hagstofunnar um að landsframleiðslan hafi aukist um 2,6 prósent á fyrsta ársfjórðungi, einkum drifin áfram af mikilli innlendri eftirspurn og atvinnuvegafjárfestingu, fór langt fram úr væntingum bæði greinenda og Seðlabankans. Að mati hagfræðinga Arion banka munu hagvaxtartölurnar styðja við vegferð peningastefnunefndar að halda þétt um taumana og velta þeir jafnframt fyrir sér af hverju hátt raunvaxtastig sé ekki að bíta sem skyldi á íslensk heimili. 31.5.2025 12:03
Sjóðirnir horfi til erlendra fjárfestinga og innviða til að forðast bólumyndun Vegna stærðar sinnar geta umsvif lífeyrissjóðanna leitt til þess að „of mikið fjármagn er að elta of fáa fjárfestingarkosti“, sem kann að valda bólumyndun á tilteknum eignamörkuðum, og því þurfa sjóðirnir að fara í meiri fjárfestingar erlendis og eins að horfa til innviðaverkefna hér heima, að sögn fyrrverandi seðlabankastjóra. Fjármála-og efnahagsráðherra telur mikilvægt að fjárfestingar lífeyrissjóða í innviðum séu sjálfbærar og tekið verði tillit til vilja sjóðanna til að taka áhættu. 30.5.2025 11:56
Samruni Arion og Kviku gæti skilað hluthöfum um sextíu milljarða virðisauka Verulega mikilli samlegð ætti að vera hægt að ná fram með mögulegum samruna Kviku og Arion, sérstaklega á kostnaðarhliðinni með fækkun nærri tvö hundruð stöðugilda, og þá ætti sameinaður banki að geta sparað sér talsverðan vaxtakostnað með bættu lánakjörum á erlendum mörkuðum, að mati hlutabréfagreinanda. Líklegt er að Samkeppniseftirlitið myndi helst horfa til þess að setja samrunanum skilyrði varðandi umsvif á eignastýringarmarkaði en nái hann fram að ganga gæti virðisaukningin fyrir hluthafa, einkum lífeyrissjóðir og að uppistöðu til þeir sömu í báðum félögum, numið um sextíu milljörðum. 28.5.2025 14:24
Vísitölusjóðir Vanguard keyptu fyrir marga milljarða eftir útboð Íslandsbanka Hlutabréfasjóðir í stýringu alþjóðlega vísitölurisans Vanguard stækkuðu verulega stöðu sína í Íslandsbanka á nokkrum dögum í liðinni viku fyrir samanlagt um fjóra milljarða króna að markaðsvirði. Eftir sölu ríkissjóðs á öllum hlutum sínum í bankanum þurftu sjóðirnir að bæta við sig bréfum á eftirmarkaði þannig að eignarhaldið væri í samræmi við þær vísitölur sem þeir fylgja. 28.5.2025 10:44
Kerecis varar við að hækkun veiðigjalda ógni trausti erlendra fjárfesta Líftæknifyrirtækið Kerecis segir frumvarp ríkisstjórnarinnar um hækkun veiðigjalda geta grafið undan trausti erlendra fjárfesta á Íslandi og haft alvarleg áhrif á nýsköpun og fjárfestingar í sjávarútvegi. Félagið, sem var yfirtekið af alþjóðlegum heilbrigðisrisa fyrir tveimur árum, segir að slíkir hagsmunir geri þá „sjálfsögðu kröfu til ríkisstjórnar og þings“ að vandað sé til verka áður en málið er afgreitt, að öðrum kosti sé meginforsenda íslenskrar velferðar í uppnámi með tilheyrandi áhættu fyrir íslenskt samfélag. 27.5.2025 14:19
Einar Pálmi verður yfirmaður fyrirtækjaráðgjafar Arion banka Einar Pálmi Sigmundsson, sem hefur starfað á fjármálamarkaði í meira en þrjá áratugi, hefur verið ráðinn yfirmaður fyrirtækjaráðgjafar Arion banka. Hann tekur þar við starfinu af Hreiðari Má Hermannssyni sem hætti hjá bankanum fyrr á árinu og tók við forstjórastöðu Eikar. 26.5.2025 17:10
Kaup á tugþúsunda fermetra eignasafni mun hækka verðmatið á Eik Lítillega meiri rekstrarhagnaður og lægra kaupverð en áður var áætlað í nýafstöðnum kaupum Eikar á tugþúsunda fermetra fasteignasafni sem hýsir starfsemi Samskipa á Íslandi mun hafa nokkuð jákvæð áhrif á verðmatsgengi félagsins, að sögn hlutabréfagreinanda, en síðast var það metið um 25 prósent yfir markaðsgengi. 26.5.2025 12:41
Stefán ráðinn sjóðstjóri hlutabréfa hjá Kviku eignastýringu Kvika eignastýring hefur gengið frá ráðningu á Stefáni Birgissyni, sem hefur undanfarið starfað í markaðsviðskiptum hjá ACRO, en hann mun þar koma inn í teymi sjóðstjóra hlutabréfa. 26.5.2025 12:40
Breskir vogunarsjóðir umsvifamestir í kaupum á fyrstu evruútgáfu Kviku Tæplega tvöföld umframeftirspurn var á meðal fjárfesta þegar Kvika kláraði sína fyrstu skuldabréfaútgáfu í evrum fyrir helgi en kaupendahópurinn samanstóð einkum af vogunarsjóðum frá Bretlandi. Kjörin bötnuðu nokkuð frá upphaflegu viðmiði þegar útboðið hófst snemma á föstudagsmorgun en vaxtaálagið á útgáfuna er um hundrað punktum hærra borið saman við sambærileg evrubréf stóru íslensku viðskiptabankanna. 25.5.2025 13:17
Stjórnin stækkuð og Orri verður stjórnarformaður First Water Orri Hauksson, fyrrverandi forstjóri Símans um árabil, hefur tekið við sem formaður stjórnar First Water en félagið stendur að stórfelldri uppbyggingu á landeldisstöð við Þorlákshöfn og kláraði fyrr á árinu nærri sex milljarða fjármögnun frá núverandi hluthöfum. Á nýlegum hluthafafundi First Water var ákveðið að stækka stjórnina með innkomu fjögurra nýrra stjórnarmanna en jafnframt hefur forstjóri Stoða, stærsti hluthafi landeldisfyrirtækisins, farið úr stjórninni. 24.5.2025 12:59