Nú mega yngri en 25 ára ekki leigja golfbíl Vegna tíðra óhappa á golfbílum í leigu ungra kylfinga hefur aldurstakmark hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar verið hækkað í tuttugu og fimm, en það er átta ára hækkun frá fyrra aldurstakmarki hjá klúbbnum. 24.6.2026 19:47
Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest Í Frakklandi hefur fyrsta tilfelli ebólu verið staðfest en læknir sem var nýkominn aftur heim úr hjálparstarfi í Austur-Kongó er smitaður. Er þetta fyrsta staðfesta ebólutilfelli inna Evrópu. Ebólufaraldur hefur geisað í Mið-Afríku ríkinu síðustu vikur en einnig eru staðfest smit í nágrannaríkinu Úganda. 24.6.2026 16:49
Quarashi hyggst „Do it again“ Hljómsveitin Quarashi hefur sent frá sér nýtt lag en í fyrra, árið 2025, tróð sveitin upp á Lopapeysunni á Akranesi eftir ríflega tíu ára hlé frá sviðsljósinu. Hún lagði upp laupana árið 2005 eftir mikla alþjóðlega velgengni en meðal þeirra meðlima sem hafa tjáð sig um álagið sem fylgdi eru Sölvi Blöndal, einn forsprakki Quarashi. 24.6.2026 15:56
Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík um að gefa Samhjálp leyfi til að endurinnrétta húsnæðið við Grensásveg 46 fyrir nýja kaffistofu Samhjálpar. Framkvæmdastýra Samhjálpar segir óljóst hvað niðurstaðan þýði fyrir gesti Samhjálpar en ljóst að hún hafi áhrif á fyrirhugaða opnun kaffistofunnar sem áætluð var seinna í þessum mánuði. Hún segir þó nokkuð ljóst að borgin þurfi að leggjast betur yfir málið. 24.6.2026 00:04
Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Nýjum íþróttamannvirkjum er jafnan vel fagnað meðal þeirra sem munu njóta þeirra en við Hrollaugsstaði í Suðursveit er verið er að taka í notkun nýjan fjölnota íþróttavöll. Sveitin er mjög fámenn og eru þar innan við tuttugu heimili og því vekur nýi völlurinn mikla athygli. 23.6.2026 23:33
Rafmagn komið aftur á í miðbæ Reykjavíkur Vegna bilunar á háspennustreng hefur rafmagnið farið af í miðbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið í póstnúmerinu 101. 23.6.2026 22:57
Facebook og Instagram liggi niðri vegna bilunar Samfélagsmiðlarnir Instagram og Facebook virðast liggja niðri en erlendir miðlar hafa greint frá því að um bilun sé að ræða og að villutilkynningar hafi og séu að berast notendum um allan heim. 23.6.2026 21:59
Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Forsvarsmenn Smáralindar hafa ákveðið að taka upp gjaldskyldu á bílastæðum við verslunarmiðstöðina en uppbygging á svæðinu og aðsókn í húsið eru meðal þess sem spilaði inn í ákvarðanatökuna að sögn markaðsstjóra Smáralindar. 23.6.2026 20:36
Allir umsækjendurnir metnir jafn hæfir Þeir fjórir umsækjendur sem sóttu um embætti dómara við Hæstarétt hafa verið metnir jafn hæfir af dómnefnd. Umsækjendurnir eru öll dómarar við Landsrétt en í kjölfar þess að nefndin afhendir ráðherra umsögn sína um umsækjendur er stefnt að því að ákvörðun um skipun liggi fyrir hið fyrsta. 23.6.2026 20:31