Sigríður Ingibjörg ráðin nýr framkvæmdastjóri BSRB Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri BSRB, stærstu samtaka opinberra starfsmanna á Íslandi. Hún hefur mikla reynslu af störfum fyrir verkalýðshreyfinguna. 12.3.2026 21:51
Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi „Þegar að heimsmarkaðurinn lækkar, þá virðist verðið svona síga niður eins og það sé verið að sleppa fjöður lausri, en þegar að verð hækkar, þá fer það frekar upp eins og raketta,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifereiðaeigenda. Hann mætti í sett kvöldfrétta Sýnar í kvöld. 12.3.2026 21:15
Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Í samtali við Rob Rausch, nýjasta sigurvegara The Traitors í Bandaríkjunum, afhjúpaði söngkonan og spjallþáttastjórnandinn Kelly Clarkson stórt leyndarmál. Hún fékk aldrei að snerta sigurféð sem henni var lofað við lok fyrstu þáttaraðar American Idol. 12.3.2026 19:04
Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Þátttaka kvenna í skimunum fyrir brjóstakrabbameini og leghálskrabbameini hefur aukist verulega síðustu ár og nálgast sett markmið um þátttöku. Skimanirnar fara fram á heilsugæslustöðvum um land allt. 9.3.2026 22:22
Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Nýjar rannsóknir á aðferðum til að greina endómetríósu eru í þróun. Ef allt gengur að óskum verða þær til þess að hér á landi geti fólk fengið greiningu mun fyrr og með miklu minni fyrirhöfn. Í dag eru flestir greindir með uppskurði eða samtali við lækni. 9.3.2026 21:14
„Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ótti við forsendubrest kjarasamninga er að aukast meðal aðila innan Samtaka atvinnulífsins. Mjög margir mismunandi þættir spila inn í aukna verðbólgu hér á landi, sem nú mælist um 5,2 prósent, en nýleg áform virðast ekki líkleg til að sporna við henni. Þetta segir Bjarni Benediktsson, nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 9.3.2026 20:36
Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Fólksbíll rann í hálku og endaði í Kópavogstjörn á ellefta tímanum. Tvö önnur umferðarslys urðu vegna launhálku á Reykjanesbraut. Enginn er alvarlega slasaður. 8.3.2026 23:03
Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Mojtaba Khamenei er nýr æðstiklerkur Íran. Hann tekur við af föður sínum, Ayatollah Ali Khamenei, sem lést í loftárásum Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna þann 28. febrúar. 8.3.2026 21:27
„Þrjátíu og eitt ár síðan stuðboltinn Bakkus sagði mér upp“ Pálmi Gunnarsson heldur upp á tvo fæðingardaga og sá seinni er í dag, en fyrir sléttu þrjátíu og einu ári sagði „stuðboltinn Bakkus“ honum upp. Hann er þakklátur fyrir hvern einasta dag og trúir því að hann væri ekki að óska sér og sínum til hamingju með daginn ef hann hefði haldið áfram að þjónusta púkann. 8.3.2026 20:28
Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Ökumaður keyrði utan í bíl og flúði svo heim til sín og beint inn í fataskáp. Annar maður tók til þess ráðs að kasta slökkvitæki, sem hann hafði þegar tæmt yfir lögreglumenn, niður stiga í átt að lögreglunni. 8.3.2026 19:15