Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur innkallað Love to Dream-svefntæki fyrir ungbörn vegna framleiðslugalla. Notkun vörunnar með tilteknum hleðslutækjum getur valdið því að rafhlaðan ofhitni sem getur leitt til bruna og hættu á alvarlegum brunasárum og eignatjóni. 15.9.2026 10:43
Vara við hvössum vindum í nótt Ökumenn eru varaðir við hvössum vindum á Kjalarnesi, við Hafnarfjall, á norðanverðu Snæfellsnesi og við Eyjafjöll í nótt. Von er á 35 m/s vindhviðum fram til hádegis á morgun. 15.9.2026 10:23
Ed Sheeran sparkar Macklemore Bandaríski rapparinn Macklemore fær ekki að hita upp fyrir fleiri tónleika hjá breska söngvaranum Ed Sheeran eftir ummæli um frjálsa Palestínu á tónleikum fyrr í þessum mánuði. Ummælin fóru fyrir brjóstið á eigendum leikvanga sem vildu ekki leyfa rapparanum að stíga á svið. 14.9.2026 16:51
Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) munu ekki skrifa undir samninga í dag líkt og stefnt var á með verkstýrðri verkáætlun ríkissáttasemjara. Nefndirnar eru þó enn í virku samtali. 14.9.2026 16:38
Gengið aldrei verið lægra Við lokun markaða í dag stendur hlutabréfaverð Icelandair í 0,64 krónum. Virðið hefur aldrei verið lægra og lækkaði um 5,87 prósent í dag eftir að flugvirkjar tilkynntu að þeir ætluðu að hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september. 14.9.2026 15:48
Hafa samband við farþega Icelandair segir að komi til verkfallsaðgerða flugvirkja muni það hafa veruleg áhrif á flugáætlun félagsins þó að ekki sé hægt að meta umfang mögulegra fjárhagslegra áhrifa verkfallsins á félagið. Komi til breytinga á flugáætlun muni starfsmenn félagsins hafa samband við farþega. Ítrekað hafi það verið lagt til að leggja málið fyrir gerðardóm. 14.9.2026 15:36
Flugvirkjar fara í verkfall Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) hefur tilkynnt Icelandair að flugvirkjar félagsins sem starfa hjá fyrirtækinu muni hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september næstkomandi. 14.9.2026 14:35
Greip um eistu lögreglumanns Kona á sextugsaldri hefur verið dæmd til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir brot gegn valdstjórninni og kynferðislega áreitni. Konan greip um kynfæri lögreglumanns þegar hann var að færa hana í fangaklefa. 14.9.2026 14:16
Ein pilla dró Panettiere til dauða Hayden Panettiere leikkona er sögð hafa tekið eina töflu af oxycodone-pillu sem búið var að menga með fentanýl áður en hún lést. Lögregla vinnur nú að því að hafa uppi á manninum sem grunaður er um að hafa selt henni pilluna. 14.9.2026 12:55
Haustið mætir á miðvikudaginn Landsmenn ættu að nýta daginn í dag og morgundaginn í að spóka sig úti og hoppa á trampólínum áður en haustveðrið mætir í ótímabærri innkomu á miðvikudag. Veðurfræðingur segir von á talsverðri rigningu og hvössum vindum. 14.9.2026 11:01