Þau sóttu um stöðu forstöðumanns Stafrænnar heilsu Tuttugu og þrír sóttu um embætti forstöðumanns Stafrænnar heilsu- þróunar- og þjónustumiðstöðvar, sem heilbrigðisráðuneytið auglýsti laust til umsóknar fyrr í mánuðinum. 31.10.2025 14:39
Ljóst að D66 varð stærri en flokkur Wilders Frjálslyndi miðjuflokkurinn D66 hlaut flest atkvæði í hollensku þingkosningunum sem fram fóru á miðvikudaginn. Hollenskir fjölmiðlar greindu frá nýjustu tölum upp úr hádegi og er ljóst, þegar búið er að telja nær öll atkvæði, að Frelsisflokkurinn, undir stjórn Geert Wilders, getur ekki fengið fleiri atkvæði en D66. 31.10.2025 12:56
Ekkert rapplag á topp 40 í fyrsta sinn í 35 ár Í fyrsta sinn í 35 ár hefur það gerst að ekkert rapplag er að finna í einu af fjörutíu efstu sætum bandaríska Billboard-vinsældalistans. 31.10.2025 11:39
Bein útsending: Langvinn einkenni Covid „Langvinn einkenni Covid“ er yfirskrift annars fundar í fundaröðinni Heilsan okkar sem fram fer í Veröld, húsi Vigdísar, milli klukkan 11:30 og 13 í dag. 31.10.2025 11:02
Orðin hæsta kirkja í heimi Kirkjan Sagrada Familia í Barcelona á Spáni varð í gær hæsta kirkja heims þegar byrjað var að koma fyrir neðri hluta kross á miðturni kirkjunnar. Framkvæmdir við kirkjuna Sagrada Familia hófust árið 1882 og standa enn yfir. 31.10.2025 07:45
Hvasst, hlýtt og von á asahláku eða glerhálku Víðáttumikil lægð er nú undan suðurströnd landsins sem veldur hvassri norðaustanátt víða um land, en stormi á Suðausturlandi og á Vestfjörðum og Norðvesturlandi síðdegis og fram á kvöld. 31.10.2025 07:11
Leigjendum muni fjölga um fimm þúsund fram til 2030 Gera má ráð fyrir að um 50 þúsund heimili séu á leigumarkaði hér á landi og má ætla að þeim gæti fjölgað um fjögur til sex þúsund á næstu fimm árum. 30.10.2025 14:47
Bein útsending: Nýsköpunarþing 2025 - Ísland í stóru myndinni Ísland í stóru myndinni er yfirskrift Nýsköpunarþings sem fram fer í Grósku milli klukkan 14 og 15:30 í dag. 30.10.2025 13:33
Bjarni Geir Alfreðsson matreiðslumaður látinn Bjarni Geir Alfreðsson matreiðslumaður er látinn, 74 ára að aldri. Bjarni, sem gekk undir nafninu Bjarni Snæðingur, var frumkvöðull á sviði veitingarekstrar og starfaði meðal annars á Naustinu, Aski, Fljótt og Gott á BSÍ þar sem hann bauð meðal annars upp á „kjamma og kók“, auk þess að hann var viðloðandi Kaffistofu Samhjálpar. 30.10.2025 13:03
Séra Flosi Magnússon fallinn frá Séra Flosi Magnússon, fyrrverandi prófastur og sveitarstjóri á Bíldudal, lést á sjúkrahúsi í Lundi í Svíþjóð þann 11. október síðastliðinn. 30.10.2025 11:14