Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast vel með veðurspám og útgefnum viðvörunum en hvassri sunnanátt með hviðum sem gætu náð 35 metrum á sekúndu er spáð í nótt og á morgun. 14.7.2026 23:15
Sex létust í eldsvoða í Brussel Sex manns létust í eldi sem kviknaði í morgun á byggingarsvæði í miðborg Brussel. Slökkvistarf stóð yfir í nokkrar klukkustundir. 14.7.2026 22:50
Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Fyrrverandi íþróttafréttamaður sendir opna fyrirspurn til útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins varðandi áfengisauglýsingar og segist ekki geta orða bundist vegna málsins. 14.7.2026 22:33
„Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Brotist var inn í Hreppslaug á Hvanneyri í dag en Ungmennafélagið Íslendingur rekur laugina. Formaður þess segir innbrotið vera „súrt“ enda hafi mikil uppbygging átt sér á svæðinu og sundlaugin sé rekin með sjálfboðaliðastarfi. 14.7.2026 21:48
Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Stórstjarnan Ariana Grande og Ricky Alvarez eru byrjuð aftur saman eftir að hafa stungið saman nefjum í nokkrar vikur. Þau voru áður par á árunum 2015 og 2016 en Alvarez var dansari (e. backup-dancer) Grande. 14.7.2026 20:59
Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Karlmaður á fertugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald í dag vegna tengsla sinna við hluta innbrota sem séu í rannsókn hjá lögreglu. Yfir sextíu innbrot hafa verið tilkynnt á höfuðborgarsvæðinu frá mánaðarmótum og lögregla segir greinilegan topp vera í innbrotum. 14.7.2026 19:46
Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hættur við innheimtu tuttugu prósenta tolls af varningi sem siglir um Hormússundi sem hann boðaði í gær. 14.7.2026 18:38
Bílvelta austan við Hvalnes Bíll með ferðavagn valt út af vegi rétt austan við Hvalnes á Suðausturlandi. Þrír voru um borð í bílnum en ekki er talið að um alvarlegt slys sé að ræða. 14.7.2026 18:08
„Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ Engin heimsálfa hitnar hraðar en Evrópa og enginn vafi er á því að hitabylgjum sé að fjölga í álfunni segir fagstjóri hjá Veðurstofu Íslands. Hitabylgjan sem geisaði um álfuna nú í sumar hafi náð yfir mun stærra svæði en þær sem mælst hafa á árum áður. Erfitt hefur verið að halda úti markmiði Parísarsamningsins um að halda hlýnuninni innan tveggja gráða. 13.7.2026 13:11
Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Brotist var inn í Hvítasunnukirkjuna Fíladelfíu við Hátún í Reykjavík í gær. Smámunum var stolið, þar á meðal gítar. 13.7.2026 10:10