Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Búið er að telja öll atkvæði í Norðvesturkjördæmi. Alls sögðu 37,13 prósent kjósenda já en 62,87 prósent nei. 30.8.2026 06:10
Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Búið er að telja öll atkvæði í Suðurkjördæmi. Alls sögðu 39,5 prósent kjósenda já en 60,5 prósent nei. 30.8.2026 05:46
Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Verði já-ið ofan á í kvöld er margra ára vegferð í farvatninu að sögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Kjörsókn endurspegli áhuga fólks á málinu en erfitt sé þegar mjótt er á munum. 30.8.2026 01:53
„Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Framsóknarkonurnar Lilja Alfreðsdóttir og Magnea Gná Jóhannsdóttir sammælast um það að kosningabaráttan hafi farið vel fram og allt bendi til þess að ungt fólk hafi sagt nei í dag. 30.8.2026 00:57
Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Bjarki Sigurðsson var staddur í bæði Ráðhúsinu í Reykjavík og fyrir utan Hagaskóla í Vesturbæ rétt upp úr klukkan níu og ræddi við kjósendur á lokasprettinum en síðustu kjörstöðum var lokað klukkan tíu í kvöld. Sumir gleymdu sér en aðrir nutu veðurblíðu dagsins. Flestir kjósendur voru sammála um að það hefði ekki tekið þá langan tíma að gera upp hug sinn. 29.8.2026 23:03
„Verkinu er haldið í gíslingu“ Hrafnhildur Arnardóttir, þekkt sem listamaðurinn Shoplifter, segir að verk hennar Chromo Sapiens sé nú til sýningar í Höfuðstöðinni í hennar óþökk. Hún hafi ekki lengur aðgang að sýningarrýminu auk vinnustofu sinnar á svæðinu en búið sé að skipta um lása á byggingunni. Hrafnhildur segir málið hreinan listaverkastuld, enda sé hún réttmætur eigandi verksins. 28.8.2026 10:35
Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Útvarps- og tónlistarmaðurinn Þorgeir Ástvaldsson var heiðraður í vikunni fyrir framlag sitt til íslensks útvarps og einstakan þátt í sögu Bylgjunnar. Útvarpsstöðin fagnar fjörutíu ára afmæli sínu á morgun. 27.8.2026 23:19
Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mikill fjöldi fólks safnaðist saman fyrir utan Konungshöllina í Ósló í dag og beið fregna af Haraldi Noregskonungi en heilsufarsástand hans hrakar enn og er sagt „mjög alvarlegt.“ Íslendingur sem staddur er í Ósló segir að blómvendir þar í borg hafi klárast í búðum og lýsir ástandinu fyrir framan höllina eins og á þjóðhátíðardegi. 27.8.2026 20:44
Samræmdar reglur um símafrí settar Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og á frístundaheimilum. Markmið reglugerðarinnar er að skapa aukinn námsfrið, efla vellíðan og félagsleg tengsl barna og stuðla að jákvæðum skólabrag en samkvæmt reglugerðinni mega börn og unglingar ekki nota síma á skólatíma. 27.8.2026 19:03
„Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra ávarpaði gesti útifundar samtakanna Áfram Ísland á Austurvelli. Samtökin hvetja landsmenn til þess að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn. Reynslan hafi sýnt Katrínu að betra væri að Ísland stæði áfram utan Evrópusambandsins. 27.8.2026 18:10
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent