Burðardýr með þrettán kíló í farangrinum hlaut þungan dóm Ungur karlmaður sem er erlendur ríkisborgari hefur verið dæmdur til sex og hálfs árs fangelsisvistar fyrir innflutning á rúmum þrettán kílóum af kókaíni. Ekkert bendir þó til þess að hann hafi komið að skipulagningu innflutningsins. 13.6.2025 14:15
„Kanntu ekki að skammast þín?“ Dómsmálaráðherra spurði Ingibjörgu Isaksen, þingflokksformann Framsóknar, í tvígang hvort hún kynni ekki að skammast sín í pontu Alþingis. Forseti Alþingis sló á puttana á henni fyrir vikið. Það gerði hún í svari við fyrirspurn Ingibjargar um það hvort fjármálaráðherra væri hugsanlega að brjóta gegn stjórnarskrá með frumvarpi sínu um breytingar á lögum um lífeyrissjóði. 13.6.2025 12:35
Lögðu hald á töluvert magn fíkniefna og milljónir í reiðufé Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á töluvert magn af ætluðum fíkniefnum og nokkrar milljónir í reiðufé við húsleit í íbúð í miðborginni fyrr í vikunni. 13.6.2025 11:29
Kínverskur dómur um banaslys skipti engu máli og TM slapp Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að kínversk ferðaskrifstofa eigi ekki rétt á bótum úr hendi TM vegna banaslyss sem varð árið 2017. Ferðaskrifstofan hefur þegar greitt aðstandendum þeirra tveggja sem létust bætur og taldi sig því hafa eignast kröfu þeirra á hendur TM. Landsréttur hélt nú ekki. 13.6.2025 10:50
Stórfyrirtæki flýi borgina vegna skatta Sjálfstæðismenn í Reykjavík munu leggja til að borgarstjórn samþykki að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði og íbúðarhúsnæði við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026, þannig að tekjur borgarsjóðs af álögðum fasteignagjöldum hækki ekki milli áranna 2025 og 2026. Oddviti þeirra segir að mörg stærstu fyrirtæki landsins hafi flúið borgina undanfarin ár vegna hæstu fasteignaskatta á höfuðborgarsvæðinu. 12.6.2025 17:06
Sakhæfi og refsing móður sem myrti eigið barn staðfest Landsréttur hefur staðfest átján ára fangelsisrefsingu móður, sem sakfelld var fyrir að ráða syni sínum bana og að reyna að ráða öðrum syni sínum bana. Landsréttur féllst á það með héraðsdómi að konan væri sakhæf en lögmaður hennar taldi að meta ætti andleg veikindi konunnar henni til refsilækkunar eða refsileysis. 12.6.2025 16:46
Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Skúli Mogensen og aðrir stjórnarmenn Wow air hafa verið sýknaðir af öllum kröfum þátttakenda í skuldafjárútboði Wow air rétt fyrir fall félagsins. Þátttakendurnir kröfust ríflega 2,6 milljarða króna í skaðabætur. 12.6.2025 16:05
Magnús Þór leggur Samtökum iðnaðarins ráð Magnús Þór Gylfason hefur verið ráðinn til Samtaka iðnaðarins sem ráðgjafi og hefur þegar hafið störf. 12.6.2025 13:22
Fann sér ekki stað hjá forsetanum eftir breytingar Una Sighvatsdóttir, sem gegnt hefur stöðu sérfræðings á skrifstofu forseta Íslands undanfarin ár, segir að það hafi verið mikill heiður og ánægja að gegna trúnaðarstörfum fyrir tvo forseta lýðveldisins. Hún hafi ákveðið að róa á ný mið vegna þess að hún hafi ekki fundið sér stað í breytingum sem hafa verið boðaðar á skrifstofunni. 12.6.2025 11:38
Stórauka þjónustu Strætó í lok sumars Strætó mun stórauka þjónustu sína en frá og með 17. ágúst 2025 verður umfangsmikil þjónustuaukning í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Þessi aukning er hluti af Samgöngusáttmálanum og rekstraráætlun Strætó og skref í átt að nýju leiðaneti, sem á að taka gildi árið 2031. 11.6.2025 12:36