Saka Samgöngustofu um matarsóun og vanvirðingu við hænur Formaður Samtaka grænkera á Íslandi segir nýja markaðsherferð Samgöngustofu vanhugsaða. Hún stuðli að matarsóun og sé vanvirðing við hænur. Stofnunin sendi völdum samfélagsmiðlastjörnum eggjabakka og hvatti þær til þess að brjóta eggin. 13.10.2023 14:26
Boða formlega til ríkisráðsfundar Forseti Íslands hefur boðað formlega til ríkisráðsfundar, sem haldinn verður á Bessastöðum klukkan 14 á morgun. 13.10.2023 10:54
Þurfa að borga Slayer eftir allt saman Landsréttur hefur dæmt þrjú félög, sem tóku við rekstri tónlistarhátíðarinnar Secret solstice, og einn stjórnarmann þeirra til að greiða kröfu bandarísku þungarokkssveitarinnar Slayer óskipt. 12.10.2023 16:29
Tíu í gæsluvarðhaldi vegna smygls að jafnaði Í fyrra sátu áttatíu menn í gæsluvarðhaldi að kröfu lögreglunnar á Suðurnesjum í samtals 2.903 daga, eða að jafnaði 8 menn á dag, alla daga ársins, í tengslum við innflutning á fíkniefnum, peningaþvætti eða flutning á reiðufé úr landi. Í ár eru þeir þegar 96 talsins. 12.10.2023 14:01
Engu nær um það hverjir réðust á ráðstefnugestinn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er engu nær um það hvaða tveir menn voru að verki þegar ráðist var á gest ráðstefnu á vegum Samtakanna '78. Yfirlögregluþjónn segir það óvenjulegt. 12.10.2023 11:13
Hellisheiði opnuð á ný Veginum yfir Hellisheiði var lokað um tíma í morgun en hefur verið opnaður á ný. Snjóþekja og skafrenningur er þar og mælt er með því að fólk sé á bílum búnum vetrardekkjum. 12.10.2023 09:49
Grunaður um að reyna að drepa fyrrverandi: „Ég skal bara klára þetta núna“ Karlmaður er grunaður um tilraun til þess að verða fyrrverandi kærustu sinni að bana með því að hafa ráðist á hana og meðal annars lamið og sparkað í höfuð hennar, reynt að kyrkja hana og hent henni í læk. 12.10.2023 09:00
Skildu að borði og sæng fyrir sjö árum Stórstjörnurnar Will Smith og Jada Pinkett Smith skildu að borði og sæng fyrir sjö árum. Hjónin stefna þó ekki að lögskilnaði. 11.10.2023 14:49
Kærendur hafi átt frumkvæði að því að ljúka málinu með greiðslu Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun héraðssaksóknara um að fella niður rannsókn á meintri fjárkúgun þeirra Vítalíu Lazarevu og Arnars Grant gegn þremur mönnum sem Vítalía hafði kært fyrir meint kynferðisbrot. Ákvörðunin var tekin á þeim grundvelli að mennirnir hafi átt frumkvæði að því að ljúka málinu með peningagreiðslu. 11.10.2023 14:06
Íslendingur lúbarði lögreglumenn í Póllandi Íslenskur karlmaður er sagður hafa lumbrað á lögreglumönnum á lögreglustöð í Varsjá í Póllandi á dögunum. Hann var vistaður í fangaklefa fyrir skemmdarverk í borginni. 11.10.2023 11:42