Fréttamaður

Árni Sæberg

Árni er viðskiptafréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Öllu banka­ráði Lands­bankans skipt út

Bankasýsla ríkisins ákvað á fundi sínum í fyrradag, að fengnum tilnefningum valnefndar, að velja nýja einstaklinga sem verða tilnefndir í bankaráð Landsbankans á aðalfundi hans þann 19. apríl næstkomandi. Til stóð að fimm bankaráðsmenn yrðu tilnefndir til áframhaldandi setu en í ljósi kaupa Landsbankans á TM var hætt við það.

Flúðu dónalegan farar­stjóra og fá ekki krónu

Par sem krafðist þess að ferðaskrifstofa endurgreiddi því á fjórða hundrað þúsund króna vegna ferðar og skaðabóta vegna útlags kostnaðar fær ekki krónu úr hendi ferðaskrifstofunnar. Parið fór heim úr ferðinni þar sem það gat ekki hugsað sér að rekast á dónalegan fararstjórann.

Stefna Eim­skip: Tjón Sam­skipa gæti hlaupið á milljörðum króna

Lögmaður Samskipa segir að tjón félagsins af meintum ólögmætum aðgerðum Eimskips í tengslum við sátt við Samkeppniseftirlitið gæti hlaupið á milljörðum króna. Samkeppniseftirlitið vísaði fimm hundruð sinnum í yfirlýsingar Eimskips í ákvörðun sinni um sekt Samskipa, þeirrar hæstu í sögu samkeppnismála.

Á­varpaði þjóðina vegna „breyttrar stöðu“

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi og bílainnflytjandi, birti ávarp á samfélagsmiðlum í kvöld þar sem hann sagði styrjöld hafna milli Íslands og Rússlands. Hann segist hafa í aðdraganda forsetakosninganna 2016 varað við að slíkt væri yfirvofandi.

Vinnuskólabörnin fá loksins launa­hækkun

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að hækka laun nemenda í Vinnuskóla Reykjavíkur sumarið 2024. Vinnuskólabörnin fá því sína fyrstu launahækkun í tvö ár.

Fyrr­verandi þing­maður ráðinn yfir­læknir

Ólafur Þór Gunnarsson hefur verið ráðinn yfirlæknir endurhæfingarhluta öldrunarlækninga á Landspítala frá 1. maí 2024. Hann sat á þingi fyrir Vinstri græn á árunum 2013 og 2017 til 2021.

Kennari sem sló barn fær milljónir

Hæstiréttur hefur dæmt Dalvíkurbyggð til þess að greiða konu tæpar ellefu milljónir króna í skaða- og miskabætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Konan var rekin úr starfi grunnskólakennara fyrir veita þrettán ára stúlku kinnhest.

Katrín miklu fljótari en Baldur og Jón

Katrín Jakobsdóttir, forsetaframbjóðandi, opnaði fyrir meðmælasöfnun á Íslandi.is klukkan 13. Klukkan 13:54 hafði hún náð tilskildum fjölda meðmæla. Hún var því tæpum klukkutíma fljótari að ná lágmarkinu en þeir Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr.

Sam­skip í hart við Eim­skip

Samskip hafa stefnt Eimskip til viðurkenningar skaðabótaskyldu án fjárhæðar vegna meintra ólögmætra og saknæmra athafna í tengslum við sátt sem Eimskip gerði við Samkeppniseftirlitið árið 2021.

Sjá meira