Brautarmet féllu hvert á fætur öðru í Dyrafjallahlaupinu Þorsteinn Roy Jóhansson stórbætti brautarmet Dyrfjallahlaupsins sem haldið var á Borgarfirði eystra í dag. Hann var tæpum átta mínútum á undan Tove Alexanderson sem flestir voru að búast við að myndi vinna hlaupið. 4.7.2026 13:42
Antonelli skákaði Hamilton í sprettkeppninni Kimi Antonelli náði að vinna sprettkeppnina í breska kappakstrinum í Formúlu 1. Keyrðir voru sautján hringir og náði Antonelli að taka fram úr Lewis Hamilton sem byrjaði á ráspól. 4.7.2026 12:30
Baulað á enska landsliðið Baulað var á enska landsliðið þegar það mætti til Mexíkó í nótt þar sem liðið keppir í 16-liða úrslitum HM í fótbolta. Mexíkó er mótherji þeirra og er mikil eftirvænting fyrir leiknum í landinu. 4.7.2026 12:03
Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Áhugavert atvik gerðist á golfvellinum í Þorlákshöfn þegar kylfingur synti út í vatn til að bjarga fugli sem var fastur í vír. Þetta var fyrsti golfhringur hennar og verður sennilega eftirminnilegur. 4.7.2026 11:33
Maður dagsins á HM: Fékk viðurnefnið „slátrarinn“ Lisandro Martinez skoraði mark og gaf frábæra stoðsendingu gegn Grænhöfðaeyjum í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Mark hans í lok framlengingarinnar bjargaði Argentínu frá þeim skell að detta út gegn Grænhöfðaeyjum. 4.7.2026 11:02
Fékk yfir tuttugu milljónir fylgjenda á mótinu Vozinha, markmaður Grænhöfðaeyja, datt út í 32-liða úrslitum gegn Argentínu í dramatískum leik. Markmaðurinn vakti mikla athygli og er kominn með yfir tuttugu milljónir fylgjenda. 4.7.2026 10:31
Glæsimark Sveindísar innsiglaði sigurinn Sveindís Jane Jónsdóttir var á skotskónum í nótt þegar lið hennar, Angel City, tók á móti Orlando Pride í bandarísku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. 4.7.2026 10:01
Kólumbía áfram með eins marks sigri Kólumbía mætti Gana í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta í nótt. Þar sigraði Kólumbía 1-0 en mörkin hefðu getað verið fleiri. 4.7.2026 09:30
Dagskráin í dag: Tveir leikir í Bestu deild karla Það er nóg um að vera þennan sólríka laugardag. Sprettkeppni og tímatökur í Formúlu 1. Svo er þriðji hringur BMW International Open á DP World mótarröðinni og tveir hörkuleikir í Bestu deild karla. 4.7.2026 06:01
Átti Yamal skilið að vera maður leiksins? Lamine Yamal var valinn maður leiksins þegar Spánn mætti Austurríki í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Hann hvorki skoraði né lagði upp í leiknum. 3.7.2026 23:15