Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. ágúst 2026 07:27 Zhuravlev var handtekinn í Póllandi í fyrra en dómstólar neituðu umleitunum um framsal hans til Þýskalands. epa/Getty Maður sem var handtekinn í Króatíu á miðvikudag í tengslum við skemmdarverkin á Nord Stream 1 gasleiðslunni, starfaði sem ráðgjafi við gerð Hollywood-myndar um málið.
Tökur á myndinni standa yfir í Króatíu. Þýskir miðlar greindu í gær frá aðkomu Volodymyr Zhuravlev að myndinni Snake Island en með aðalhlutverk fara meðal annars Óskarsverðlaunahafarnir Sean Penn og Adrian Brody. Málið þykir með nokkrum ólíkindum, þar sem lögregluyfirvöld í Þýskalandi hafa verið á eftir Zhuravlev í nokkurn tíma og honum tekist að komast undan í tvígang. Engar upplýsingar virðast liggja fyrir um aðdraganda handtökunnar í Króatíu. Vísir hefur fjallað nokkuð ítarlega um skemmdarverkin, sem áttu sér stað árið 2022 en Zhuravlev er talinn hafa verið einn í sjö manna teymi sem fór ævintýralegan leiðangur til að sprengja gat á Nord Stream gasleiðslunum í Eystrasalti. Bojan Pancevski, rannsóknarblaðamaður Wall Street Journal, segir í bókinni The Nord Stream Conspiracy: The Inside Story of the Explosions That Shook the World að yfirvöld í Úkraínu hafi vitað af fyrirætlunum hópsins. Lögmenn Zhuravlev eru sagðir munu freista þess að koma í veg fyrir að skjólstæðingur þeirra verði framseldur til Þýskalands, þar sem hann á yfir höfði sér langan fangelsisdóm. Leikstjóri Snake Island er Doug Liman, sem er einna þekktastur fyrir að hafa leikstýrt myndunum um Jason Bourne. Þá má geta þess að Penn hefur náin tengsl við Úkraínu; hann hefur verið ötull stuðningsmaður og þá leikstýrði hann heimildarmyndinni Superpower um Vólódimír Selenskí Úkraínuforseta.
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Nord Stream-leiðslurnar í Eystrasalti Hollywood Þýskaland Króatía Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi Sjá meira