Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, heldur því fram að Íranir geti ekki lengur auðgað úran, sem þarf til þess að búa til kjarnorkuvopn, eða framleitt frekari skotflaugar. Hann neitar því að Ísraelsmenn hafi dregið Bandaríkjamenn í stríðið og segir Ísraelsmenn ætla að hætta að ráðast á olíuinnviði Írans. 19.3.2026 21:51
Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Vegna veðurs hefur Icelandair aflýst öllum brottförum sínum fyrir hádegi á morgun og öllum komuflugum nema tveimur. Fleiri flugfélög hafa þurft að aflýsa flugferðum en gul viðvörun tekur gildi víða um land. 19.3.2026 21:01
Chuck Norris lagður inn á spítala Hinn gallharði Chuck Norris var lagður inn á spítala eftir bráðartilvik í Havaí á dögunum. Þrátt fyrir það er bandaríski kvikmyndaleikstjórinn sagður vera í góðu skapi. 19.3.2026 19:25
Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Á annað þúsund farþega eru strandaglópar í Ameríku þar sem Icelandair hefur aflýst tólf flugferðum í fyrramálið vegna veðurs. Gular viðvaranir taka gildi í kvöld. 19.3.2026 18:27
Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Landsréttur hefur staðfest skilorðsbundinn dóm yfir konu á þrítugsaldri sem hafði verið sakfelld fyrir stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu gegn starfsmanni á vistheimilinu Vinakoti árið 2022. Varanleg örorka brotaþolans eftir árásina var metin 50 stig af hundraði og varanleg örorka metin 50 prósent. 19.3.2026 18:05
Hundruð manns í fjöldahjálparstöðvum fyrir norðan: „Það var bara snælduvitlaust veður“ Hundruð manns hafa leitað í fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins á Norðvesturlandi í kvöld. Veðurviðvararnir eru fallnar úr gildi en Holtavörðuheiðin stendur enn lokuð. Ekki er ljóst hvenær hún opnar að nýju. 15.3.2026 23:07
Eldur kviknaði í fjölbýli í Úlfarsárdal Slökkviliðsmenn slökktu í kvöld eld sem kom upp í fjölbýli í Úlfarsárdal. Engan sakaði. 15.3.2026 21:45
„Það er bara ólöglegt“ Lögmaður Rammagerðarinnar vísar ásökunum Isavia á bug um að forsvarsmenn verslunarinnar fari með rangfærslur um deilu Rammagerðarinnar við ríkisfyrirtækið. Isavia lokaði þremur verslunum Rammagerðarinnar í fyrrinótt þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól. Lögmaðurinn segist búinn að setja inn lögbannsbeiðni til sýslumanns sem verði vonandi afgreidd á morgun, mánudag. 15.3.2026 20:55
Loka heiðinni og opna fjöldahjálparstöð: Biðja „ALLA“ um að halda sig heima Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur lokað þjóðveginum frá Blöndósi suður yfir Holtavörðuheiði og biðlar til vegfarenda að halda sig heima. Fjöldahjálparstöð verði opnuð í íþróttahúsinu á Blönduósi. Ólíklegt þykir að vegirnir opni aftur í kvöld. 15.3.2026 19:44
Önnur rúta fór út af og Hringvegi lokað að hluta Þrenging er á Hringvegi um Holtavörðuheiði þar sem rúta fór út af vegi í dag, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Þá hefur Hringveginum verið lokað milli Hvammstanga og Víðigerðis þar sem bílar sitja fastir. Ríflega hundrað björgunarmenn hafa verið ræstir út síðasta sólarhring, að sögn Landsbjargar. 15.3.2026 18:53