Veður

Veður


Fréttamynd

Kindur að­stoðuðu björgunarfólk að finna af­kvæmi sín

Vonskuveður var víðast hvar um land í dag og bitnaði einna helst á sauðfjárbændum og ferðamönnum á tjaldsvæðum sem ráku upp stór augu þegar að fannhvít jörð blasti við í morgun. Kindur aðstoðuðu sauðfjárbændur við að finna afkvæmi sín sem hafði fennt yfir.

Innlent
Fréttamynd

Vaktin: Ekta sumar­hret leikur landann grátt

Veðurviðvaranir eru í gildi um allt land vegna norðan óveðurs. Björgunarsveitir standa í ströngu við að bjarga fé frá því að sökkva í fönn, Veðurstofan varar við skriðuhættu þvert yfir norðurströnd landsins og þetta allt í júní eftir hlýjasta og veðursælasta maí í manna minnum.

Veður
Fréttamynd

Reyna að bjarga 100 kindum og lömbum á kafi í snjó

Óveðrið í nótt og í morgun hefur bitnað hvað verst á bændum og gestum tjaldsvæða sem reiknuðu ekki endilega með snjókomu og byl í byrjun júní. Tjaldgestir á Norðurlandi og Austurlandi vöknuðu við fannhvíta jörð á meðan bændur standa í ströngu við að koma kindum og lömbum sem eru á kafi í snjó inn í hús.

Innlent
Fréttamynd

Skriðuhætta geti skapast á ó­lík­legum stöðum

Skriðuhætta er á öllu norðanverðu landinu frá Ströndum að norðanverðum Austfjörðum. Mikil rigning er á landinu norðanverðu samfara leysingum og því má búast við vatnavöxtum. Mesta úrkoman mun falla á Tröllaskaga og Flateyjarskaga.

Veður
Fréttamynd

„Norðan ó­veður á landinu í dag“

Útlit er fyrir óveður á landinu í dag og snjókomu eða slyddu á Norður- og Austurlandi. Hlýna mun þó þegar líður á daginn með talsverðri rigningu á láglendi. Viðvaranir verða í gildi á öllu landinu í dag.

Innlent
Fréttamynd

Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna frá og með klukkan 18 í kvöld, vegna norðanáhlaups sem spáð er næsta sólarhringinn.

Veður
Fréttamynd

Höfuð­borgar­svæðið bætist í hópinn

Veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir alla landshluta. Fyrstu gulu viðvaranirnar tóku gildi fyrr í dag, á Norðurlandi og Austurlandi að Glettingi, og hinar munu jafnt og þétt taka gildi á næstu klukkutímum.

Veður
Fréttamynd

Gæti komið til lokana á vegum

Heilmikið viðbragð er hjá Vegagerðinni vegna veðurviðvarana á morgun þar sem von er á vetrarverði þó júní sé runninn upp. Komið gæti til vegalokana á Suðausturlandi.

Innlent
Fréttamynd

Slæmt að fá hret á varp­tíma

Vegir gætu lokast og samgöngur raskast þegar vonskuveður gengur yfir landið í dag og á morgun. Fuglafræðingur segir hretið sem spáð er geta haft veruleg áhrif á fuglalífið þar sem ungar séu nú margir nýskriðnir úr hreiðrum.

Innlent
Fréttamynd

Lægð nálgast sem dýpkar ört

Lægð er nú sunnan við landið sem dýpkar ört og fer til austurs. Spár gera ráð fyrir að lægðarmiðjan verði nærri Færeyjum fyrir hádegi á morgun og þrýstingur í miðjunni þá 966 millibör sem er óvenjulega lág tala á þessum árstíma.

Veður
Fréttamynd

Rigning í dag og svo von á júníhreti

Í dag færist regnsvæði yfir landið úr vestri og búast má við rigningu af og til í flestum landshlutum. Hvergi er þó búist við mikilli úrkomu. Vindur verður áfram fremur hægur og áttin vestlæg eða breytileg. Hiti verður á bilinu sex til 13 stig. Síðar í vikunni stefnir í júníhret og er búið að gefa út gular viðvaranir vegna þess.

Veður
Fréttamynd

Breyti­leg átt og skúrir á víð og dreif

Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hægri breytilegri átt í dag og skúrum á víð og dreif, einkum seinnipartinn. Veðrið hefur því lítið breyst frá því sem var í gær og fyrradag.

Veður
Fréttamynd

Skin og skúrir í dag

Í dag, uppstigningardag, er spáð svipuðu veðri og var í gær. Fremur hægri breytilegri átt með skúrum nokkuð víða, sérstaklega síðdegis en þá geta orðið nokkuð öflugar dembur sums staðar inn til landsins.

Veður
Fréttamynd

Rigning í kortunum

Yfir landinu er grunn lægð sem hreyfist lítið. Í dag má búast við fremur hægri og breytilegri átt og skýjað verður á flestöllu landinu. 

Veður
Fréttamynd

Hitabylgjan sú mesta í maí­mánuði svo vitað sé

Hitabylgjan sem reið yfir landið dagana 13. til 22. maí er sú mesta sem vitað er um í maímánuði hér á landi. Tíu daga í röð mældist hiti 20 stig eða hærri einhvers staðar á landinu og fjöldi hitameta í maímánuði var sleginn. 

Veður
Fréttamynd

Skýjað og sums staðar blautt

Lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu á landinu í dag og önnur smálægð er við suðausturströndina. Veðurfræðingur spáir hægri og breytilegri átt. 

Veður
Fréttamynd

Varað við snörpum hviðum

Veðurfræðingur Vegagerðarinnar hefur varað við snörpum hviðum undir Hafnarfjalli og á norðanverðu Snæfellsnesi síðar í dag.

Veður
Fréttamynd

Fæstir bera nægi­lega mikið af sólar­vörn á sig

Íslendingar nota fæstir nægilega mikla sólarvörn að mati lækna sem vara við því að það geti tekið óvarið fólk skamman tíma að brenna þessa dagana. Slíkt getur haft alvarleg áhrif síðar. Þeir hvetja fólk til að bera á sig sólarvörn og velja hana vel.

Innlent