Denas og Kristófer stinga af í ELKO-Deildinni Fjórða umferð ELKO-Deildarinnar í Fortnite fór fram mánudagskvöldið 30. september og segja má að tveir efstu keppendurnir í deildinni hafi boðið upp á endurtekið efni úr síðustu umferð þegar þeir festu sig enn betur í sessi á toppnum. Rafíþróttir 2. október 2024 09:44
TÍK horfir fram á veginn frá Bessastöðum „TÍK hafa starfað opinberlega sem félagasamtök núna í tvær vikur og hafa nú þegar fengið boð frá forsetanum á Bessastaði,“ skrifar Melína Kolka, stofnandi Tölvuleikjasamfélags íslenzkra kvenna, á Facebook þegar hún segir frá heimsókn grænlenskra grunnskólabarna til Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, þar sem „TÍK-in“ Eva Margrét Guðnadóttir var með í för. Rafíþróttir 1. október 2024 14:16
Félagslegi þátturinn vegur þungt á rafíþróttaæfingum Fjölnis Ungmennafélagið Fjölnir varð 26. aðildarfélagið að Rafíþróttasambandi Íslands í liðinni viku þegar stjórn sambandsins samþykkti aðildarumsókn nýstofnaðrar rafíþróttadeildar Fjölnis. Rafíþróttir 1. október 2024 11:41
TDE hirtu Leifarnar og tvö stig í leiðinni Viðureign liðanna TDE jr og Leifarnar í 4. umferð Litlu Kraftvéladeildarinnar í Dota 2 lauk með kærkomnum og góðum 2-0 sigri sem skilaði TDE sínum fyrstu tveimur stigum. Rafíþróttir 30. september 2024 14:53
Jötunn og Böðlar berjast í bökkum á botninum Þrír leikir fóru fram í 4. umferð Tölvulistadeildarinnar í Overwatch á laugardaginn og að henni lokinni er lið Þórs enn í efsta sæti eftir 3-0 sigur á Jötni í „svakalegum leik“ eins og Óskar og Guðný Stefanía orðuðu það í beinni útsendingu frá umferðinni. Rafíþróttir 30. september 2024 11:10
Baráttan harðnar í Valorant Fjórða umferð Míludeiladarinnar í Valorant fór fram á föstudagskvöld og ljóst var á leikjum kvöldsins að farið er að hitna í kolunum og baráttan á toppi deildarinnar að harðna, bæði um toppsætið að tryggja sig áfram í fjögurra liða úrslit. Rafíþróttir 30. september 2024 10:09
Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Esports Insider tók Ólaf Hrafn Steinarsson, stofnanda Rafíþróttasambands Íslands, inn í Esports Hall of Fame, frægðarhöll rafíþróttanna, við hátíðlega athöfn í Lissabon í Portúgal á miðvikudaginn. Rafíþróttir 27. september 2024 10:20
Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Fjórðu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike lauk í gærkvöld með þremur leikjum þar sem Dusty sigraði Rafík 2-0, Saga lagði Kano 2-1 og Þór hafði betur gegn ÍA 2-0. Rafíþróttir 27. september 2024 09:44
Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Ólafur Hrafn Steinarsson, stofnandi Rafíþróttasambands Íslands, var í gærkvöld tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna, Esports Hall of Fame, þegar hann hlaut svokölluð Youth Champion Award í gær. Þau fékk hann fyrir að bæði valdefla og veita næstu kynslóð afreksfólks í rafíþróttum innblástur. Lífið 26. september 2024 15:01
Fortnite er aðalleikurinn „Þetta var frekar tæpt sko,“ segir Filip Kosta um 1. sætið sem þeir Tómas Hrafn Gunnarsson, félagi hans úr Breiðabliki, náðu í tvíliðaleik í Fortnite í flokki 8-12 ára á ungmennamótinu sem haldið var í Arena um helgina. Rafíþróttir 26. september 2024 14:38
Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Önnur umferð GR Verk Deildarinnar í Rocket League fór fram í gærkvöld og skemmst frá því að segja að úrslitin í leikjunum þremur höfðu lítil áhrif á stöðu liðanna í deildinni þar sem ríkjandi meistarar Þórs tróna enn á toppnum. Rafíþróttir 26. september 2024 11:09
„Ég er í sjokki eftir þennan leik“ Þriðja umferð ELKO-Deildarinnar í Fortnite fór fram á mánudagskvöld og lauk þannig að iKristoo er kominn með 141 stig sem duga honum til að ná toppsætinu af denas 13 sem er í 2. sæti með 135 stig. Rafíþróttir 25. september 2024 12:32
Ármenningar taplausir á toppnum Fjórða umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike hófst í gærkvöld með tveimur leikjum þar sem Höttur sigraði Venus 0-2 og Veca tapaði fyrir Ármanni 0-2. Rafíþróttir 25. september 2024 10:17
Mikið fjör á fjölmennu ungmennamóti „Þetta var mikið fjör og rosalega skemmtilegt,“ segir Atli Már Guðfinnsson, verkefnastjóri hjá Rafíþróttasambandi Íslands, um KIA Ungmennamótið sem fór fram í Arena, þjóðarleikvangi rafíþrótta á Íslandi, um helgina. Rafíþróttir 25. september 2024 09:20
Bara tvær fljótari en Sveindís Sveindís Jane Jónsdóttir er þriðja fljótasta knattspyrnukona heims, ef miðað er við tölurnar í nýjustu útgáfu FC fótboltatölvuleiksins. Fótbolti 23. september 2024 16:32
Öruggir sigrar í tveimur einvígum á netskákmótinu „Þetta hafðist en var ansi tæpt á köflum,“ segir Björn Þorfinnsson en hann og Hannes Hlífar Stefánsson stóðu uppi sem sigurvegarar eftir tvö spennandi einvígi á Íslandsmeistaramóti Símans í netskák á sunnudagskvöld. Rafíþróttir 23. september 2024 12:54
Valkyrjur og Venus ósigraðar á toppnum Þriðja umferð Míludeiladarinnar í Valorant fór fram á föstudagskvöld og að henni lokinni eru liðin Jötunn Valkyrjur og Venus, enn ósigruð, í tveimur efstu sætum deildarinnar. Rafíþróttir 23. september 2024 10:49
Dusty aftur á toppnum eftir sigur á Kano Þriðju umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike lauk í gærkvöld með þremur leikjum þar sem Saga sigraði ÍA 0-2, Dusty lagði Kano 2-1 og Venus tapaði fyrir Þór 0-2. Rafíþróttir 20. september 2024 10:12
Dusty og 354 keyrðu sig í gang með geggjaðri viðureign GR Verk Deildin í Rocket League byrjaði með þremur fjörugum leikjum í fyrstu umferð sem hófst með bursti ríkjandi meistarar Þórs á Rafik en spennan náði síðan hámarki í tvísýnni viðureign Dusty og 354. Rafíþróttir 19. september 2024 10:48
Frábær endasprettur hjá Veca gerði út af við Hött Þriðja umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike hófst í gærkvöld með tveimur leikjum þar sem Veca sigraði Hött 2-1 og Ármann lagði lið RAFÍK 2-0. Með sigrinum í gær komst Veca í annað sæti deildarinnar en þegar þrír leikir eru eftir í umferðinni er Ármann í fyrsta sæti og Dusty í því þriðja. Rafíþróttir 18. september 2024 12:22
Óvenju mörg ný andlit í Rocket League Mótastjórinn Stefán Máni Unnarsson segir spennuna í Rocket League-samfélaginu mikla nú þegar keppni hefst loks á ný í GR Verk Deildinni annað kvöld. Fjöldi liða sé svipaður og síðast en óvenju miklar innbyrðis breytingar á liðunum auki enn frekar á eftirvæntinguna. Rafíþróttir 17. september 2024 14:01
Grimm barátta og sviptingar í Fortnite Önnur umferð ELKO-Deildarinnar í Fortnite fór fram á mánudagskvöld og nokkrar sviptingar voru á stigatöflunni á meðan um 55 spilarar tókust á í tveimur leikjum sem höfðu talsverð áhrif á stöðuna á topp 10 listanum. Rafíþróttir 17. september 2024 11:26
Samstilltir Þórsarar afgreiddu ryðgaða Böðla Þrír leikir fóru fram í 2. umferð Tölvulistadeildarinnar í Overwatch á laugardaginn og að henni lokinni er lið Þórs í efsta sæti eftir 3-0 sigur á Böðlunum sem máttu sín ekki mikils gegn þéttum andstæðingum sem hafa lengi spilað saman. Rafíþróttir 17. september 2024 11:00
Klutz réði ekkert við GoldDiggers Baráttan var hörð og ýmislegt gekk á í 2. umferð Míludeildarinnar í Valorant á föstudagskvöld þar sem sannfærandi sigur GoldDiggers á Klutz kom lýsendunum Mist Reykdal Magnúsdóttur og Daníel Mána Óskarssyni einna helst á óvart. Rafíþróttir 16. september 2024 10:53
Dusty enn á toppnum eftir tvær umferðir Annarri umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike lauk með tveimur leikjum á fimmtudagskvöld þar sem Ármann sigraði Kano 2-0 og SAGA hafði betur en Venus, einnig 2-0. Rafíþróttir 13. september 2024 14:35
Metþátttaka í kvennadeildinni í Valorant „Þetta er stærsta Valorant-mót sem við höfum haldið hingað til og náttúrlega eina kvenna- og kynseginmótið,“ segir Daníel Máni Óskarsson, mótastjóri í Míludeildarinnar í Valorant. Verðlaunaféð nemur einni og hálfri milljón en hann bendir á að hingað til hafi engin rafíþróttadeild, önnur en Counter Strike, verið með yfir milljón í verðlaunafé. Rafíþróttir 12. september 2024 14:39
Bestu hakkavélarnar byrja mótið sem þjálfarar Litla-Kraftvéladeildin hófst á ný með liðakeppni í Dota2 sunnudaginn 8. september og rétt eins og í öðrum deildum Rafíþróttasambandsins er hugur í mannskapnum við upphaf keppnistímabilsins. Rafíþróttir 10. september 2024 12:08
Þór byrjar Ljósleiðaradeildina með látum „Þetta var nú bara tiltölulega auðvelt,“ segir Ásmundur Viggósson, sem var í miklu stuði þegar Þór lagði Sögu í fyrstu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike í gærkvöld. Rafíþróttir 4. september 2024 14:38
Spennan magnast í Fortnite-samfélaginu „Stemningin er mjög mikil og góð enda er Fortnite er einn af stærstu keppnisleikjunum í heiminum í dag, allaveganna á topp 5 listanum, og samfélagið hérna á Íslandi mjög stórt“ segir Atli Már Guðfinnsson, verkefnastjóri hjá Rafíþróttasambandi Íslands og mótastjóri ELKO-Deildarinnar í Fortnite sem hefst föstudaginn 6. september. Rafíþróttir 2. september 2024 18:36
Tölvuleikir auðvelda krökkum að kynnast og upplifa sögur Mun fleiri strákar (98%) en stelpur (71%) í grunnskóla spila tölvuleiki og munurinn eykst eftir aldri en í framhaldsskóla er hlutfall stráka 91% og stelpna 55%. Stelpum sem spila tölvuleiki fækkar verulega með hækkandi aldri en hlutfall strákanna er stöðugra þegar í framhaldsskóla er komið. Rafíþróttir 2. september 2024 10:34