Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Mest nýtta leið Strætó á höfuðborgarsvæðinu er leið 1 en nú hefur þremur aukavögnum verið bætt við hana alla virka morgna og er það gert til þess að auka þjónustu í takt við þyngri umferð í upphafi hausts. Leið eitt liggur frá Skarðshlíð í Hafnarfirði, í gegnum Vellina, norður í gegnum Garðabæ og Kópavog og þaðan áleiðis niður í miðbæ Reykjavíkur með lokastoppistöð við Skúlagötu. Neytendur 17.8.2026 21:23
Ástandið minni á 2007 Hagfræðingurinn Már Wolfgang Mixa segir raunstýrivexti ekki hafa verið hærri síðan rétt fyrir bankahrun. Verktakar gætu neyðst til að gefa verulega afslætti til þess að losa sig við nýjar íbúðir, sem hrannist upp. Már telur „galið“ að eltast við 2,5 prósenta verðbólguviðmið Seðlabankans. Ríkið ætti að taka virkari þátt í að viðhalda efnahagslegum stöðugleika. Neytendur 17.8.2026 20:49
Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Lindabakarí ehf. innkallar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, (HEF) Euro Market brauð en aðskotahlutur úr málmi fannst í einu brauði af umræddri framleiðslu. Neytendur 17.8.2026 12:13
Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent 12.8.2026 20:03
Innkalla te sem innihélt ál Mikið magn af áli mældist í tei og hefur það verið innkallað af Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Varan sem um ræðir heitir SHAN WAI SHAN matcha green tea, og var flutt til landsins af Kina Panda ehf. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja innkallað vöruna. Neytendur 6. ágúst 2026 15:23
Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna segir bílastæðafyrirtæki sum „síbrotafyrirtæki“. Þó svo að hann sé ánægður með nýlega sekt Neytendastofu telur hann þurfa að stíga fastar niður. Það eigi að vera skýrt hver kostnaður er við að leggja á bílastæði áður en fólk leggur. Rætt var við Breka í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Neytendur 6. ágúst 2026 08:43
„Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Hagfræðingar Landsbankans spá því að stýrivextir hækki í ágúst en að verðbólga standi í stað í mánuðinum. Forseti ASÍ segir að stýrivaxtahækkun muni gera verkalýðshreyfingunni erfiðara fyrir að finna lausn við því ef forsendur kjarasamningar bresta. Innlent 5. ágúst 2026 13:49
Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendastofa hefur sektað bílastæðafyrirtækin Parka Lausnir ehf. og EasyPark Ísland ehf. um hundruð þúsunda fyrir að tilgreina ekki kostnað á gjaldsvæðum nægilega vel. Neytendur 4. ágúst 2026 13:01
Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Björgvin Víkingsson framkvæmdastjóri Bónus birti í dag færslu þar sem hann ítrekar mikilvægi frídags verslunarmanna. Þá veltir hann upp spurningunni hvort það megi ekki gera þetta að venju aftur en Bónus var eina verslunarkeðjan þar sem allar verslanir voru lokaðar í dag, 3. ágúst. Viðskipti innlent 3. ágúst 2026 23:26
Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður James Fleatcher er síðasti útvörður reiðhjólaviðgerða í miðborginni. Hann rekur Borgarhjól – reiðhjólaviðgerðir við Hverfisgötuna í Reykjavík en hann er við það að gefast upp. Innlent 3. ágúst 2026 20:00
Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Flugfélagið EasyJet segir engar líkur á því að átt hafi verið viljandi við töskumátara sem notaður eru til að athuga hvort handfarangurstöskur rúmi innan stærðartakmarkana á Gatwick-flugvelli í Lundúnum. Neytendur 2. ágúst 2026 15:42
Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskiptavinir Arion banka og Landsbankans lentu í því í gær að færslur vegna notkunar á greiðslukortum voru tvírukkaðar. Um var að ræða kerfisvillu sem hefur nú verið leiðrétt. Viðskipti innlent 31. júlí 2026 21:34
Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Akureyringur gafst ekki upp eftir að hafa talið flugfélagið easyJet hafa svínað á sér og rukkað vegna handfarangurstaskna sem virkuðu of stórar. Hann taldi brögð í tafli og eftir heilmikla þrautargöngu hafði hann að lokum óvæntan sigur. Neytendur 28. júlí 2026 16:55
Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Viðbragðsaðilar og fjarskiptafélög hafa lagst á eitt til þess að styrkja fjarskiptakerfið á Íslandi í kringum almyrkva á sólu. Þá hefur Neyðarlínan einnig gefið út varanúmer sem hægt er að hringja í ef ekki næst samband við 112. Neytendur 24. júlí 2026 13:12
Arion banki hækkar gjöld Arion banki hefur tilkynnt um breytta verðskrá fyrir einstaklingsþjónustu bankans, sem tekur gildi þann 23. september. Flest gjöld hækka um þrjú til fimm prósent. Neytendur 24. júlí 2026 12:17
Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki „Ef markmiðið með forsenduákvæðinu var að tryggja kaupmátt þá held ég að allt bendi til þess að það hafi gengið eftir,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Neytendur 23. júlí 2026 13:28
Kalla inn fæðubótarefni Heilsubúðin og Heildsalan Mamma veit best ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes, ákveðið að innkalla fæðubótarefnið Liposomal NMN frá Codeage. Neytendur 21. júlí 2026 12:52
Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Ísband hefur sent HMS tilkynningu um innköllun á tveimur tegundum Jeep tengiltvinnbíla vegna eldhættu í háspennurafhlöðu. Innköllunin nær til 130 bíla af sex árgerðum. Neytendur 17. júlí 2026 16:36
Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára Almennt gjald fyrir útgáfu nýrra vegabréfa hækkaði úr 14 þúsund krónum í 19 þúsund krónur á milli ára. Gjald fyrir hraðafgreiðslu hækkaði um 11.200 krónur og er nú 39.200. Verðskráin hækkaði talsvert umfram verðlag til að endurspegla betur tíma og kostnað ríkisins að sögn ráðuneytisins. Innlent 17. júlí 2026 15:12
Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Tímabilskort hækka um rúm þrjú prósent í nýrri gjaldskrá Strætó. Verð á stökum fargjöldum helst óbreytt. Neytendur 14. júlí 2026 08:19
Lítil bjartsýni á úrslitastundu Olíuverð hefur hækkað um rúm níu prósent í dag eftir að átök Bandaríkjanna og Írans hörðnuðu og óvissa jókst um Hormússund. Hækkunin getur skilað sér í íslenskt verðlag einmitt þegar úrslitamæling vegna kjarasamninga er handan við hornið. Innlent 13. júlí 2026 23:16
Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Olíuverð hækkaði skarpt í morgun í skugga vaxandi spennu í Miðausturlöndum. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda hefur áhyggjur af þróuninni og höfðar til ábyrgðar olíufélaga. Íslenskir neytendur séu nú þegar að greiða óeðlilega hátt verð fyrir bensínlítrann. Viðskipti innlent 13. júlí 2026 12:01
Vekja athygli á innköllun leikfangs HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Neytendur 13. júlí 2026 11:32
Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Matvælastofnun varar við neyslu á þremur framleiðslulotum af Bapao beef frá Tjendrawasih þar sem óvissa er um öryggi kjöts sem notað var í vöruna. Neytendur 13. júlí 2026 10:11
Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Prófessor í hagfræði og fyrrverandi viðskiptaráðherra segir kostnaðinn við kortanotkun og aðra greiðslumiðlun vera háan á Íslandi og talsvert hærri en í nágrannalöndum. Telur hann að þessi kostnaður myndi lækka við upptöku evru þar sem Íslendingar myndu njóta hagkvæmni stórrekstrar í ríkari mæli. Viðskipti innlent 11. júlí 2026 22:46