Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Þekktur ganverskur prestur, Nana Kwaku Bonsam, segist ætla að beita svartagaldri gegn fyrirliða Englands, Harry Kane, til að hjálpa landsliði Gana fyrir leik þeirra á móti Englandi á HM í fótbolta. Fótbolti 23. júní 2026 09:00
Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Erling Braut Haaland skoraði tvö mörk í nótt þegar Noregur tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins með 3-2 sigri á Senegal í New Jersey. Alsír vann 2-1 sigur á Jórdaníu sem þýðir að Jórdanía er úr leik. Fótbolti 23. júní 2026 06:31
Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Íran skildi eftir skilaboð í búningsklefanum sínum eftir leikinn gegn Belgíu í gær. Leikurinn endaði með markalausu jafntefli. Fótbolti 22. júní 2026 23:30
Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Kylian Mbappé skoraði tvívegis og jafnaði þar með Miroslav Klose í öðru sætinu yfir flest mörk í sögu heimsmeistaramótsins þegar Frakkar unnu öruggan 3-0 sigur á Írak á heimsmeistaramótinu í nótt. Þetta var leikur sem tók mun lengri tíma en áætlað var en leiknum seinkaði vegna veðurs í Fíladelfíu. Fótbolti 22. júní 2026 20:33
Áhorfendur beðnir um að mæta ekki Áhorfendum er ráðlagt að mæta ekki á leik Frakklands og Íraks á heimsmeistaramótinu í fótbolta í kvöld. Óveður er í aðsigi í Fíladelfíu þar sem leikurinn á að fara fram. Fótbolti 22. júní 2026 19:01
Messi bætti tvö met gegn Austurríki Argentína vann Austurríki í hörkuleik sem endaði 2-0. Lionel Messi er eftir leikinn orðinn markahæsti leikmaður í sögu heimsmeistaramótsins. Fótbolti 22. júní 2026 16:30
Norðmenn undirbúa sig fyrir blautan leik í kvöld Miklar líkur eru á ansi blautu kvöldi í New York í kvöld þegar Noregur mætir Senegal í öðrum leik þjóðanna á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Fótbolti 22. júní 2026 16:02
Lars Lagerbäck veit hvað er stærsta vandamál sænska liðsins Sænska landsliðið réði lítið við það hollenska í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í fótbolta og sænska þjóðin var fljót að gleyma stórsigrinum á Túnis í fyrsta leik. Fótbolti 22. júní 2026 15:00
Þjálfari Íraks um Mbappé: Bað um að fá að spila með þrjá markverði Næsta fórnarlamb Kylian Mbappé á heimsmeistaramótinu er mögulega íraska landsliðið í kvöld en margir bíða spenntir eftir því hvort Frakkinn nýti þar dauðafæri til að koma sér enn frekar á spjöld sögunnar. Fótbolti 22. júní 2026 14:32
Messi er ekki búinn að ná Mörtu Fjölmiðlar heimsins kepptust við að segja frá því að Lionel Messi hefði jafnað markamet heimsmeistaramótsins þegar hann skoraði sitt þriðja mark á móti Alsír. Það er samt ekki allur sannleikurinn því það er leikmaður sem hefur skorað fleiri mörk á HM en hann. Fótbolti 22. júní 2026 13:02
Maður dagsins: Fyrirliði Orra úr aðhlátursefni í hetju Mikel Oyarzabal átti magnaða byrjun í sigurleik Spánar á Sádí-Arabíu og hún gæti ekki verið ólíkari þeirri sem hann fékk í leiknum á undan. Fótbolti 22. júní 2026 10:02
UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, ætlar ekki að hafa vatnspásur í öllum leikjum á EM og í Meistaradeild Evrópu, líkt og tíðkast á HM í fótbolta í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Fótbolti 22. júní 2026 09:32
Kóngafólkið dansaði í klefa Curacao Curacao náði í sitt fyrsta stig í sögu heimsmeistaramótsins þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Ekvador á HM um helgina. Leikmenn liðsins fengu síðan óvænta heimsókn í búningsklefann í leikslok. Fótbolti 22. júní 2026 09:11
Lést uppi á hótelherbergi í draumaferð sinni á HM Skoskur stuðningsmaður mun aldrei snúa aftur heim frá heimsmeistaramótinu í fótbolta. Fótbolti 22. júní 2026 08:52
Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Argentínska fótboltalandsliðið er í miðri titilvörn á heimsmeistaramótinu í fótbolta og farsælasta fótboltastjarnan í sögu landsins er þar að kveðja landsliðið. Fótbolti 22. júní 2026 07:32
Grænhöfðaeyjar komu aftur á óvart og sögulegt hjá Mo Salah og félögum Tveir leikir fóru fram á heimsmeistaramótinu í fótbolta í nótt. Egyptaland vann 3-1 sigur á Nýja-Sjálandi í öðrum leiknum en í hinum gerðu Úrúgvæ og Grænhöfðaeyjar 2-2 jafntefli. Fótbolti 22. júní 2026 07:12
Belgar fóru illa að ráði sínu gegn Íran Þrátt fyrir mikla yfirburði Belgíu gerði liðið markalaust jafntefli við Íran í G-riðli á HM í fótbolta í kvöld. Það er allt galopið í riðlinum. Fótbolti 21. júní 2026 18:25
Gönguferð í garðinum hjá Evrópumeisturunum Hér fer fram bein textalýsing frá leik Spánar og Sádi-Arabíu í riðlakeppni HM í fótbolta. Flautað verður til leiks klukkan fjögur. Fótbolti 21. júní 2026 18:02
Slökktu á samfélagsmiðlum og treysta áfram á Ronaldo Diogo Dalot segir að þó að milljónir Portúgala vilji að landsliðinu vegni sem best á HM í fótbolta þá séu til menn sem vilji ekki að liðið vinni. Hann segir álit liðsfélaganna á Cristiano Ronaldo ekkert hafa breyst en að það að spila í liði með Ronaldo þýði að menn þurfi að þola óeðlilega gagnrýni. Fótbolti 21. júní 2026 13:16
Tárin streymdu hjá mömmu Cunha Móðir Matheus Cunha fylgdist afar stolt með þegar sonur hennar skoraði tvö mörk fyrir Brasilíu í 3-0 sigrinum gegn Haítí í fyrrinótt. Fótbolti 21. júní 2026 11:46
Sænska pressan tætir landsliðið í sig Óhætt er að segja að andrúmsloftið í Svíþjóð sé þungt eftir 5-1 tap sænska landsliðsins gegn Hollandi á HM í fótbolta í gær. Á aðeins nokkrum dögum hefur stemningin í kringum liðið gjörbreyst. Fótbolti 21. júní 2026 11:00
HM-maður dagsins: Vann í verksmiðju og lætur leiðindi þjálfarans ekki stöðva sig Þýski framherjinn Deniz Undav vann í verksmiðju og spilaði fótbolta í þýsku 4. deildinni en er nú orðinn sjóðheitur markaskorari á HM, þrátt fyrir að þjálfari Þýskalands hafi opinberlega verið með leiðindi við hann. Fótbolti 21. júní 2026 10:16
Slógu met Íslands og markvörðurinn jafnaði met á HM Curacao er núna orðin fámennasta þjóðin sem náð hefur í stig á HM, eftir markalaust jafntefli við Ekvador í E-riðli í nótt. Túnis er úr leik eftir að hafa aftur steinlegið, 4-0, þrátt fyrir að hafa ráðið nýjan þjálfara fyrir leik sinn við Japan. Fótbolti 21. júní 2026 09:04
Gagnrýndur fyrir að ætla af HM til að vera viðstaddur fæðingu Jeremy Doku, landsliðsmaður Belgíu í fótbolta, hefur verið gagnrýndur fyrir að ætla halda af HM til þess að verða viðstaddur fæðingu frumburðar síns og eiginkonunnar Shireen. Fótbolti 21. júní 2026 08:02
Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Þýskaland er komið áfram í 32-liða úrslit á HM í fótbolta eftir dramatískan 2-1 sigur gegn Fílabeinsströndinni þar sem að varamaðurinn Deniz Undav reyndist hetja Þýskalands. Fótbolti 20. júní 2026 22:00
Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Hollendingar unnu lífsnauðsynlegan sigur á Svíþjóð er liðin mættust í F-riðli HM í fótbolta í kvöld. Lokatölur 4-1 sigur Hollendinga sem verma toppsæti riðilsins. Fótbolti 20. júní 2026 18:58
Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Miðað við núverandi stöðu í riðlunum á HM karla í fótbolta má segja að Englands bíði alveg sérstaklega erfið leið í útsláttarkeppninni, að heimsmeistaratitlinum. Fótbolti 20. júní 2026 15:15
Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Eftir að hafa spilað fimm ár í neðri deildum á Íslandi er argentínski markvörðurinn Joaquin Ketlun nú mættur á HM í fótbolta til að hjálpa landsliði Paragvæ. Fótbolti 20. júní 2026 14:01
Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ Tyrkjum var spáð ágætu gengi á HM í fótbolta en eftir töp í fyrstu tveimur leikjunum er nú þegar orðið ljóst að þeir enda í neðsta sæti D-riðils og falla úr leik. Fótbolti 20. júní 2026 12:30
Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Skoska fótboltalandsliðið á hreint einstaka stuðningsmenn og í þeim hópi eru félagarnir David Smith og Fraser MacIntyre sem ákváðu að fara á lítilli flugvél yfir Atlantshafið og sjá sína menn spila á HM í Bandaríkjunum. Fótbolti 20. júní 2026 11:11