Chelsea - Leeds | Rúllar Rosenior-lestin áfram? Chelsea getur unnið fimmta leik liðsins í röð er það fær Leeds United í heimsókn á Stamford Bridge í Lundúnum í ensku úrvalsdeildinni. Leikur liðanna hefst klukkan 19:30 og er sýndur beint á Sýn Sport 2. Enski boltinn 10.2.2026 19:00
Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mörkin úr stórleikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá hér fyrir neðan. Manchester United fagnaði fjórða sigrinum í röð, Cole Palmer skoraði þrennu í fyrri hálfleik fyrir Chelsea og Viktor Gyökeres kom boltanum tvívegis í netið fyrir Arsenal. Enski boltinn 8.2.2026 13:18
Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Chelsea sótti 3-1 sigur á útivelli gegn Wolves á Molineux leikvanginum. Cole Palmer skoraði þrennu í fyrri hálfleik en Úlfarnir minnkuðu muninn óvænt í seinni hálfleik. Enski boltinn 7.2.2026 14:32
Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Enski boltinn 1.2.2026 08:01
Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Chelsea hafði betur gegn Brentford með tveimur mörkum gegn engu þegar að liðin mættust á Stamford Bridge í Lundúnum í dag í 22.umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Enski boltinn 17. janúar 2026 16:58
Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Liðsfundur var haldinn í herbúðum Chelsea í gær þar sem þjálfarinn Liam Rosenior minnti leikmenn og starfsfólk félagsins á að sinna sóttvörnum, til að berjast gegn útbreiðslu vírussins sem er að hrella liðið. Enski boltinn 16. janúar 2026 10:30
Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Nýráðinn knattspyrnustjóri Chelsea var ekki sammála því að Arsenal væri að „fara með fótboltann aftur í tímann“ með því að leggja svona mikla áherslu á föst leikatriði undir stjórn Mikel Arteta. Enski boltinn 14. janúar 2026 13:30
Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR VAR-mistökum hefur fjölgað á fyrri helmingi enska úrvalsdeildartímabilsins og það virðist vera sem myndbandsdómarar séu ekki alveg að ná betri tökum á starfi sínu þrátt fyrir meiri reynslu og betri æfingu. Enski boltinn 14. janúar 2026 10:00
Mætir spútnikliðinu: Íslendingar í pottinum er dregið var í enska bikarnum Búið er að draga í fjórðu umferð enska bikarsins í fótbolta. Stórleikur umferðarinnar er viðureign Aston Villa og Newcastle United. Íslendingalið voru í pottinum Hákon Rafn Valdimarsson og félagar hans í Brentford mæta spútnikliði Macclesfield. Enski boltinn 12. janúar 2026 19:01
Utan vallar: Dauði knattspyrnustjórans Fimm dagar voru liðnir af nýja árinu þegar tveimur þjálfurum hafði verið kastað út í hafsauga. Þeir eiga sameiginlegt að hafa starfað í sérkennilegu starfsumhverfi sem endurspeglar breyttar starfsaðstæður knattspyrnuþjálfara á efsta stigi. Enski boltinn 10. janúar 2026 09:30
Sjáðu sögulega seint sigurmark og Manchester-liðin missa frá sér sigra Nú er hægt að sjá hér á Vísi mörkin og alla dramatíkina frá viðburðarríku kvöldi í ensku úrvaldeildinni í gærkvöldi. Enski boltinn 8. janúar 2026 09:04
Nýi stjórinn sá tíu Chelsea-menn tapa Liam Rosenior, nýr þjálfari Chelsea, fylgdist með úr stúkunni í kvöld þegar liðið tapaði gegn Fulham í Lundúnaslag í 21. umferð ensku úrvalsdeildarinnar, 2-1. Enski boltinn 7. janúar 2026 21:25
Enn í útlegð en hvert getur hann farið? Raheem Sterling hefur æft með varaliði Chelsea í allt haust. Hann situr þar með sín 300 þúsund pund í vikulaun og gæti gefið einhverja seðla eftir til að komast aftur á fótboltavöllinn. Enski boltinn 6. janúar 2026 22:47
Auðmjúkur nýr stjóri Chelsea „Þetta er mikill heiður og ég er mjög auðmjúkur að fá tækifæri til að verða stjóri Chelsea,“ segir hinn 41 árs gamli Englendingur Liam Rosenior í samtali við BBC en hann hefur skrifað undir fimm og hálfs árs samning við enska knattspyrnufélagið og tekur við liðinu af Enzo Maresca sem var rekinn á nýársdag. Sport 6. janúar 2026 18:00
Greindi sjálfur frá því að hann tæki við Chelsea Hinn 41 árs gamli Englendingur Liam Rosenior greindi frá því sjálfur í dag að hann hefði samþykkt að verða næsti stjóri Chelsea, eftir að Enzo Maresca var rekinn á nýársdag. Enski boltinn 6. janúar 2026 09:20
Fjórðungur félaganna í ensku úrvalsdeildinni skipt um stjóra Eftir tuttugu umferðir hafa fimm af tuttugu félögum í ensku úrvalsdeildinni rekið knattspyrnustjóra. Eitt þeirra hefur gert tvær stjórabreytingar. Enski boltinn 5. janúar 2026 14:17
Rosenior er mættur til London Chelsea er við það að ráða Liam Rosenior sem nýjan knattspyrnustjóra sinn eftir að fréttist að hinn 41 árs gamli þjálfari hefði komið til London á sunnudag. Enski boltinn 4. janúar 2026 22:30
„Við vitum ekkert um nýjan knattspyrnustjóra“ Chelsea-maðurinn Reece James var í viðtali eftir dramatískt 1-1 jafntefli við Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en Chelsea jafnaði metin á fjórðu mínútu í uppbótartíma. Enski boltinn 4. janúar 2026 20:05
Stjóralaust Chelsea-lið jafnaði metin í uppbótartíma Manchester City mistókst að minnka forskot Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld eftir að hafa fengið á sig jöfnunarmark í uppbótartíma í 1-1 jafntefli við Chelsea á heimavelli sínum. Enski boltinn 4. janúar 2026 19:32
Losnar Sterling úr frystikistunni hjá Chelsea? Enski knattspyrnumaðurinn Raheem Sterling er að vonast eftir varanlegum félagaskiptum frá Chelsea í þessum mánuði og það er vitað um áhuga frá bæði West Ham og Fulham. Enski boltinn 2. janúar 2026 19:31
„Bara plástur á sár, hann mun ekki vera þarna í mörg ár“ Enzo Maresca er hættur störfum sem knattspyrnustjóri Chelsea í ensku úrvalsdeildinni og Liam Rosenior er sagður líklegastur til að taka við starfinu en sérfræðingar Sunnudagsmessunnar hafa ekki mikla trú á honum til framtíðar. Enski boltinn 2. janúar 2026 11:30
Líklegast að Chelsea ráði stjóra Strassborg Liam Rosenior, knattspyrnustjóri franska liðsins Strassborg, er talinn líklegastur til að taka við starfi Enzo Maresca hjá Chelsea. Enski boltinn 1. janúar 2026 19:52
Chelsea búið að reka Enzo Maresca Knattspyrnufélagið Chelsea og Enzo Maresca aðalþjálfari hafa komist að samkomulagi um starfslok en þetta kemur fram á miðlum félagsins. Enski boltinn 1. janúar 2026 12:22
Slá því upp að Maresca gæti verið rekinn frá Chelsea í dag Chelsea hefur aðeins unnið einn af síðustu sjö leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og samskipti félagsins og knattspyrnustjórans Enzo Maresca hafa versnað mikið síðustu misseri. Enskir fjölmiðlar segja að von sé á ákvörðun um framtíð hans fyrir leikinn gegn Manchester City um helgina. Enski boltinn 1. janúar 2026 10:33
Sjáðu Arsenal rúlla yfir Villa og Úlfana ná í stig á Old Trafford Síðustu leikir ársins í ensku úrvalsdeildinni fóru fram í gær. Arsenal sýndi styrk sinn gegn Aston Villa en leikmenn Manchester United voru púaðir af velli eftir jafntefli við botnlið Wolves á heimavelli. Enski boltinn 31. desember 2025 08:01