Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi Allt besta fimleikafólk Danmerkur er hér á landi þessa dagana til að heimsækja fimleikadeildir víða á landinu til að kenna og vera með vinnustofur. Hópurinn, sem er á heimsmælikvarða, hefur á síðustu sex mánuðum verið á ferðalagi um heiminn. Innlent 11.3.2026 21:02
Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Sigurjón Vídalin Guðmundsson, sérfræðingur hjá Vegagerðinni og bæjarfulltrúi, leiðir lista Samfylkingarinnar í Árborg. Sitjandi oddviti flokksins skipar heiðurssætið. Innlent 11.3.2026 18:30
Fá rödd Guðna lánaða Tónleikastaðurinn Sviðið á Selfossi hefur fengið Guðna Ágústsson til að taka upp sérstakar tilkynningar sem heyrast í salnum fyrir og eftir viðburði. Guðni mun þar bjóða gesti velkomna, taka við þeim í hléi og þakka þeim loks fyrir komuna. Menning 11.3.2026 12:52
Átta konur eru í slökkviliðum í Árnessýslu Um 165 slökkviliðsmenn starfa hjá Brunavörnum Árnessýslu á sjö slökkviliðsstöðvum en nánast allir í hlutastörfum. Átta konur eru í liðinu. Slökkvilið kemur nánast að öllum aðgerðum í sýslunni og oftast þegar sérsveitin er kölluð til. Innlent 21. febrúar 2026 13:05
Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Nýjar verslanir Lindex í Kringlunni, Smáralind og á Akureyri verða opnaðar á vormánuðum. Fyrirtækið S4S tekur formlega við Lindex-umboðinu 1. mars næstkomandi og opnar fyrir netsölu í gegnum lindex.is í byrjun mars, þar sem bilið verður brúað fram að opnun verslananna. Viðskipti innlent 20. febrúar 2026 07:49
Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Vegagerðin hefur lagt fram tillögu um gjaldskrá fyrir nýja Ölfusárbrú, þar sem lagt er til að stakt gjald fyrir ferð um brúna yrði 495 krónur. Miðað er við verðlag í október 2028, þegar stefnt er að því að opna brúna. Innlent 20. febrúar 2026 06:44
Jötunheimar á Selfossi verður tólf deilda leikskóli Framkvæmdir standa nú yfir á fullum krafti við byggingu nýs leikskóla á Selfossi en skólinn, sem er sex deilda í dag verður tólf deilda og þar með stærsti 12 deilda leikskóli landsins undir sama þaki. Fulltrúar leikskólabarnanna hjálpuðu fullorðna fólkinu við að taka fyrstu skóflustunguna að nýbyggingunni. Innlent 19. febrúar 2026 20:03
Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Knattspyrnudeild Selfoss og umboðsaðilar Kappahl á Íslandi hafa undirritað samstarfssamning til fimm ára. Kappahl verður mikilvægur bakhjarl félagsins og knattspyrnuhöllin á Selfossi nefnd í höfuðið á tískumerkinu. Viðskipti innlent 19. febrúar 2026 12:02
Tannlæknir sem tannkrem á öskudaginn Sverrir Örn Hlöðversson, tannlæknir á Selfossi tók þátt í öskudagsfjörinu í bæjarfélaginu og mætti, sem tannkrem á tannlæknastofnuna sína í morgun. Lífið 18. febrúar 2026 16:18
Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Allar sundlaugar í Árborg verða lokaðar fram yfir helgi vegna lakrar vatnsstöðu heita vatnsins. Staðan er vegna mikils kulda og þurrkatíðar undanfarna daga. Innlent 17. febrúar 2026 23:00
Formaður Bændasamtakanna hefur aldrei orðið hræddur við tré Formaður Bændasamtakanna segir mikil tækifæri í skógrækt á Íslandi eins og nytjaskógrækt og skjólbeltarækt til að búa til skjól fyrir hús og búpening í sveitum landsins svo eitthvað sé nefnt. Innlent 15. febrúar 2026 13:03
Menntaverðlaun Suðurlands fóru á Hellu Íslenskukennsla Grunnskólans á Hellu er handhafi Menntaverðlauna Suðurlands, sem forseti Íslands afhenti. Þá fengu tvær konur myndarlegan peningastyrk úr Vísinda- og rannsóknasjóði Suðurlands við sama tækifæri, sem forsetinn afhenti líka. Innlent 11. febrúar 2026 21:31
Vel heppnaðir Stjörnuleikar á Selfossi Stjörnuleikar fóru fram á Selfossi um helgina, sem var íþróttaskemmtun fyrir börn með sér og stuðningsþarfir. Leikarnir tókust einstaklega vel en þeir fóru fram í íþróttahúsi Vallaskóla. Sport 10. febrúar 2026 20:15
Seldu upp og undirrituðu samning til 666 ára Rokkhátíðin Hellfoss fór fram í fyrsta skipti í miðbæ Selfoss, tónleikagestir komu víða að og seldist upp á hátíðina. Í tilefni af vel heppnaðri hátíð undirrituðu Davíð Lúther, eigandi Sviðsins, og Rúnar Hroði, stofnandi Hellfoss, samning til 666 ára um að hátíðin verði áfram haldin í miðbæ Selfoss. Menning 10. febrúar 2026 10:02
Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú eru í fullum gangi og hún farin að taka á sig mynd. Nýja brúin liggur austar en sú gamla sem liggur inn á Selfoss og er ætlunin að færa umferðina fjær þéttbýlinu. Gert er ráð fyrir að brúin verði til haustið 2028. Innlent 9. febrúar 2026 19:45
Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Ingibjörg Isaksen, formaður þingflokks Framsóknarflokksins hefur verulegar áhyggjur af atvinnuleysi ungs fólks á Íslandi, sem er nú um 10 prósent. Hún hefur líka áhyggjur af því að á sumum leikskólum úti á landi talar enginn starfsmaður íslensku. Innlent 8. febrúar 2026 13:03
Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Íbúi á Eyrarbakka, sem hefur heimsótt Grænland nokkrum sinnum hvetur Íslendinga til að heimsækja landið því fólkið þar sé svo blítt, gestrisið og stolt af landi sínu. Mótorhjól eru hins vegar alveg bönnuð í Grænlandi. Lífið 7. febrúar 2026 13:03
Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Aðalfundur Hestamannafélagsins Sleipnis og Sleipnishallarinnar ehf. á Selfossi var haldinn í vikunni. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa undirrituðu Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og Berglind Sveinsdóttir, formaður Sleipnis, nýjan fimm ára þjónustusamning milli Árborgar og félagsins. Samningurinn markar mikilvægt skref í áframhaldandi og öflugu samstarfi aðila. Innlent 7. febrúar 2026 10:17
Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi „Þessi stækkun mun gjörbreyta aðstæðum hjá okkur. Húsnæðisþörfin hefur lengi verið aðkallandi þar sem starfsemin hefur vaxið hratt og er orðin mjög aðþrengd. Þá er endurnýjunarþörf uppsöfnuð og vegna aldurs húsnæðisins uppfyllir skipulag og hönnun þess ekki lengur nútímakröfur um öryggi og gæði. Næstu skref eru að fara í útboð á fyrsta áfanga framkvæmda og síðan heldur þetta áfram koll af kolli,“ segir Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands aðspurð um viðbrögð vegna nýrrar 5.200 fermetra viðbyggingar við húsnæði stofnunarinnar á Selfossi. Innlent 6. febrúar 2026 10:06
Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Einn er enn í haldi Lögreglunnar á Suðurlandi vegna slagsmála á Selfossi í gær. Lögreglan á Suðurlandi mun ekki fara fram á gæsluvarðhald yfir manninum. Innlent 4. febrúar 2026 11:55
Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Kylfu var beitt í slagsmálum sem skárust upp í íbúð að Álftarima á Selfossi í dag. Einn maður var handtekinn og annar liggur á spítala. Samkvæmt heimildum fréttastofu urðu slagsmálin milli tveggja gestkomandi manna. Innlent 3. febrúar 2026 19:28
Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Hið minnsta einn var handtekinn í aðgerðum lögreglu og sérsveitar í fjölbýlishúsi á Selfossi um klukkan 15 í dag. Tilkynnt var um slagsmál þar sem vopni var mögulega beitt og er málið rannsakað með líkamsárás. Innlent 3. febrúar 2026 15:25
Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Fyrrverandi landgræðslustjóri gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að hugsa lítið sem ekkert um fæðuöryggi þjóðarinnar eins og þessum stríðstímum, sem eru núna í heiminum. Innlent 2. febrúar 2026 20:04
Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Listamenn úr Myndlistarfélag Árnessýslu (MFÁ) standa saman að styrktarviðburði til stuðnings Hinriki Sjørup, 10 ára dreng frá Selfossi, sem glímir við blóðkrabbamein. Hinrik er nú staddur í Svíþjóð ásamt foreldrum sínum í áframhaldandi meðferð, þar á meðal undirbúningi fyrir beinmergsskipti. Söfnunin fer fram í dag, 1. febrúar. Lífið 1. febrúar 2026 10:31