Litlu hlutirnir - Aggi Sverrisson #8

Það er oft sagt að það séu litlu hlutirnir sem skipta mestu máli. Smáatriðin sem flestir taka ekki eftir en geta breytt öllu. Í þessum þætti af Litlu hlutunum heimsækjum við Agga Sverris Michelin-stjörnu kokk og einn af fremstu matreiðslumönnum Íslands en hann hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir einstaka matargerð og metnað. Við förum yfir ferðalag hans, ástríðuna fyrir matargerð og hvað það var sem skilaði honum þeim árangri sem hann hefur náð. Á Moss skiptir hvert smáatriði máli – allt frá hráefninu og handbragðinu til upplifunar gestsins. En þessi hugsun nær líka út fyrir veggi veitingastaðarins. Hún snýst um að leggja metnað í það sem maður gerir, sýna þolinmæði og virðingu fyrir ferlinu og skilja að litlu hlutirnir eru oft þeir sem skapa stærstu augnablikin. Kannski er það einmitt þar sem leyndarmál velgengninnar liggur.

163
09:42

Vinsælt í flokknum Litlu hlutirnir