Skoðar tilboðið þrátt fyrir að það sé langt fram úr áætlun
Innviðaráðherra útilokar ekki að tilboð Icelandair í áætlunarflug milli Ísafjarðar og Reykjavíkur verði samþykkt þrátt fyrir að vera langt yfir áætlun.Tilboðið er það eina sem barst og hljóðar upp á þrjá og hálfan milljarð króna, það er ríflega tveimur milljörðum yfir áætlun Vegagerðarinnar.