Sögulegt geimskot í kvöld
Í kvöld verður fjórum geimförum skotið af stað til tunglsins. Geimskotið er liður í Artemis-áætluninni svokölluðu, sem er ætlað að leiða til varanlegrar dvalar manna á tunglinu. Þetta verður fyrsta mannaða tunglferðin í fimmtíu og þrjú ár en fjórir geimfarar, Wiseman, Glover, Koch og Hansen fara í tíu daga ferð í kringum tunglið.