Ólga í Bretlandi
Flest bendir til þess að Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri Manchester, verði næsti leiðtogi breska Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Keir Starmer tilkynnti um afsögn sína á níunda tímanum í morgun og sagði að ljóst væri að hann nyti ekki lengur nægilegs stuðnings meðal flokksmanna til að gegna stöðunni áfram. Burnham tilkynnti síðan í dag að hann hygðist sækjast eftir því að verða næsti leiðtogi Verkamannaflokksins. Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðiprófessor við Bifröst, mætti í sett til að ræða stöðuna.