Coripharma hóf lyfjaframleiðslu í Hafnarfirði í dag
Lyfjastofnun staðfesti í gær framleiðsluleyfi fyrir lyfjaverksmiðju Coripharma í Hafnarfirði og hófst lyfjaframleiðsla í verksmiðjunni í dag. Verksmiðjan er í sama húsnæði og Actavis var í áður. Starfsmenn eru 37 en langflestir þeirra eru fyrrverandi starfsmenn Actavis.