„Hræðileg hugmynd að nota klám sem hugmyndabanka“

Ofbeldi í nánum samböndum ungmenna er algengt á hér á landi. Í íslensku æskulýðsrannsókninni kemur fram að ein af hverjum átta stúlkum í tíunda bekk segist hafa orðið fyrir því að annar unglingur hafi haft samfarir eða munnmök við hana gegn hennar vilja. Hjá drengjum er hlutfallið fjögur prósent. Í Ísland í dag var rætt við ungmenni sem segja þessar niðurstöður endurspegla raunveruleikann. Þau telja allt of algengt að ungmenni beiti hvert annað andlegu, líkamlegu og stafrænu kynferðisofbeldi. Þau benda einnig á að oft sé nektarmyndum af jafnöldrum dreift, og jafnvel gert grín að þeim með því að nota þær sem „meme“ á samfélagsmiðlum. Samtökin Barnaheill – Save the Children á Íslandi standa þessa dagana fyrir ungmennaþingum víða um land þar sem málefnið er rætt. Stjórnandi þar segir mikilvægt að vekja athygli á vandanum og finna leiðir til að bregðast við honum í samfélaginu.

400
14:00

Vinsælt í flokknum Ísland í dag