„Það er hetja á Múlaborg. Hetja sem sagði frá“
Faðir barns á leikskólanum Múlaborg er sleginn vegna meints kynferðisbrots gegn barni í skólanum. Hann gagnrýnir Reykjavíkurborg fyrir seinagang í upplýsingagjöf og biður fjölmiðla um að vanda sig í umfjöllun um málið. Samkvæmt heimildum fréttastofu var starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í skólanum á síðasta ári vegna hegðunar sinnar.