Sjálfstæðisflokkur stærstur

Sjálfstæðisflokkurinn mælist í fyrsta sinn frá kosningum með meira fylgi en Samfylkingin í nýrri könnun Maskínu. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 25 prósent en Samfylkingin með 24,4 prósent. Munurinn er þó innan vikmarka. Miðflokkurinn mælist þriðji stærstur með 13,4 prósent og Viðreisn skammt á eftir með 12,7 prósent. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna er 43 prósent, eða um sjö prósentustigum minna en í kosningunum.

73
05:26

Vinsælt í flokknum Fréttir