„Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ Sindri Sverrisson skrifar 4. nóvember 2026 14:07 Arnar Gunnlaugsson segir að agabrotin í síðasta landsleikjaglugga heyri sögunni til. vísir/Anton „Ég fullvissa fólk um að þetta mun aldrei koma fyrir aftur. Ekki á minni vakt,“ segir Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari í fótbolta um agabrotin sem leikmenn urðu uppvísir að í síðustu landsleikjatörn.
Agabrotin fólust meðal annars í ferð á pókerstað í Skeifunni eftir þriðja leik af fjórum í landsleikjatörninni, kvöldið áður en hópurinn hélt af stað til Eistlands í lokaleik tarnarinnar, og var áfengi haft um hönd. Arnar var spurður að því á blaðamannafundi í dag hvort hann hefði hert reglur fyrir landsliðshópinn áður en að leikjunum við Búlgaríu og Lúxemborg 13. og 16. nóvember kemur. „Nei. Það er búið að gera upp þetta leiðindamál sem kom upp í síðasta glugga og ég sé ekki ástæðu til að hengja einhvern reglulista upp á vegg. Strákarnir vita þetta og andskotinn hafi það, ef menn geta ekki hagað sér núna eftir það sem á undan er gengið þá er eitthvað mikið að. Ekki eitthvað sem einhverjar reglur munu bjarga,“ sagði Arnar og talaði því á sömu nótum og í viðtali við Vísi í síðasta mánuði. „Erum við að fara að minna strákana á hver ábyrgð okkar er og hvað við ætlum að gera í þessum glugga? Já. En að setja einhverjar reglur upp á vegg… það fylgir því ákveðinn veikleiki að gera það og þá þarftu að framfylgja einhverjum ákveðnum reglum. Hvar endar það? Í staðinn fyrir að segja bara: „Strákar, við vitum til hvers við erum hérna. Hvað við erum að gera og hvað við þurfum að klára í þessum glugga.“ Líka bara hvað framtíðina varðar, í ykkar lífi sem atvinnumenn og persónur,“ sagði Arnar. „Ég veit að þetta mál er að baki. Þetta var tæklað vel af leikmönnum, þjálfarateymi, stjórn KSÍ og öllum sem að þessu koma. Ég held að þetta mál sé ekki gleymt, af því að ég skil alveg áhyggjur stuðningsmanna af því að þetta gerist aftur. En ég fullvissa fólk um að þetta mun aldrei koma fyrir aftur. Ekki á minni vakt,“ sagði Arnar.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Tengdar fréttir Arnar kynnti landsliðshópinn Arnar Gunnlaugsson opinberaði landsliðshóp karla í fótbolta fyrir komandi leiki í Þjóðadeild karla í höfuðstöðvum KSÍ í dag. 4. nóvember 2026 12:46 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Sjá meira
Arnar kynnti landsliðshópinn Arnar Gunnlaugsson opinberaði landsliðshóp karla í fótbolta fyrir komandi leiki í Þjóðadeild karla í höfuðstöðvum KSÍ í dag. 4. nóvember 2026 12:46